Morgunblaðið - 17.10.1968, Page 1
28 SIÐliR
Elduðu mat og tóku til
— Apolloferðin gengur svo ve/ oð líklega
verður sent far umhverfis tunglið á
jóladag
Kennedyhöfða, 16. okt. AP.
SKEGGJAÐIR, en hvíldir ogr end
urnærðir, veittu geimfararnir í
Apollo 7, áhorfendum sínum á
jörðinnr tilsögn í geimaldarmat-
reiðslu í morgun. Hinar daglegu
sjónvarpsmyndir frá þeim eru
nú kallaðar „The Wally, Walt
and Don Show“ eða „Sjónvarps-
þáttur Wally, Walt og Dons“, og
hafa náð miklum vinsældum. —
Ferðin hefur gengið svo vel að
talið er mjög líklegt að þrír geim
farar verði sendtr í hringferð
umhverfis tunglið um jólaleytið,
nánar tiltekið á sjálfan jóladag.
Sjónvarpsþátturinn í morgun
byrjaði á því að venju að Walt)h-
er Schirra, flugstjöri, hélt kynn-
ingarspjaldi hans upp að sjón-
varpsvélinni, en á því stendur:
„Kveðjur frá fallega Apollo her-
berginu, hátt yfir jörðinni".
Þeir gerðu þó ekki jafn mikið
að gamni sínu og síðustu tvo
daga, en sýndu þess í stað ýmis-
legt sem þeir gera í sínum dag-
legu störfum. Walther Cunning-
Kosygin fdr til Prag til að ganga frá
nauðungarsamningunum
— þeir voru undirritaðir í gœrkvöldi
markmið þeirra er að tryggja öryggi
Tékkóslóvakíu, sagði Kosygin
Prag 16. okt. AP-NTB.
í kvöld undirrituðu forsæt-
isráðherrar Tékkóslóvakíu og
Sovétríkjanna í Hrddiny höll
inni í Prag samning þann,
sem gerður hefur verið um
áframhaldandi hernám Sovét
ríkjanna í Tékkóslóvakíu.
Alexei Kosygin, ritaði undir
samninginn fyrir hönd Sovét-
ríkjanna og Oldrich Cernik,
forsætisráðherra Tékkóslóvak
íu, af hálfu lands síns. Við-
staddur var meðal annarra
Ludvik Svoboda, forseti
Tékkóslóvakíu.
Að sögn tékkneska sjón-
varpsins er kveðið á um
„tímabundna“ dvöl sovézka
hernámsliðsins í Tékkóslóvak
íu, en einstök atriði voru ekki
birt. Þó er þess getið, að So-
vétríkin heita því að flytja á
brott nokkurn hluta herliðs
síns fyrir veturnætur og meiri
hluta hersveita hinna Var-
sjárbandalagsríkjanna, sem
að innrásinni stóðu, þ.e. frá
Austur Þýzkalandi, Búlgaríu,
Ungverjalandi og Póllandi
mjög bráðlega. í samningun-
um er lagt bann við að Tékkó
slóvakía haldi áfram þeirri
stefnu, sem þróazt hafði und-
anfarna mánuði í lýðræðisátt
og tekinn verði að nýju upp
réttlínu kommúnismi í land-
inu.
Kosygin kom ásamt fylgdar-
liði til Prag síðdegis í dag. Með
honum voru m.a.: Gretcho, varn
armálaráðherra, Gromyko, utan-
ríkisráðherra og Kusnetsov, að-
stoðarutanríkisráðherra. Flugvél
Kosygins lenti á flugvellinum
við Prag, aðeins fjórum klukku-
stundum eftir að Cernik, forsæt-
isráðherra kom heim frá fund-
unum í Moskvu, Þar sem gengið
Framhald á bls. 20
ham sýndi hvernig þeir fram-
reiddu heitan mat, og Schirra
sagði að hann væri hræðilegur
kokkur.
Eisele tók við vélinni og beindi
henni að vatnspolli á gólfinu. —
Schirra sagði að pollurinn stafaði
að því að gufa þéttist á rörum
kælikerfisins, en vissi ekki ná-
kvæmlega hvernig það skeði.
— Þar sem erfitt er að fá rör-
lagningamann hingað upp, ætlar
Don að reyna getu sína, ég 'hef
nú ekki alltof mikla trú á honum.
Framhald á bls. 20
Það er óvenjulegt að sjá ekkert brosandi andlit þegar leiðtogar kommúnistalandanna hittast.
En þegar Rússar komu til að fá nuðungarsamningana undirritaða voru engin faðmlög og mót-
tökurnar kuldalegar, eins og sjá má á andlitunum. Frá vinstri: Sendiherra Rússa í Tékkó-
slóvakíu, Kosygin og Cernik, forsætisráðherra Tékkóslóvakíu. (AP-mynd).
|Ætlo oð bjarga
Titanic
London, 16. október. AP.
. T1L.KYNNT var i dag að
íákveðið hefði verið að reyna
lað lyfta farþegaskipinu Tit. 1
|anic af hafsbotni. Titanic í
kfórst i jómfrúrferð sinni fyrir
l 56 árum, þegar það sigldi á
■ ísjaka á fullri ferð. Af 2.224
Imanneskjum um borð, fórust
|1.513. Skipið var 46.328 lestir
(að stærð.
Sá sem skipuleggur leið-
Framhald á bls. 20
Ota Sik kominn til Sviss með
fjölskyldu sína
— Sagður hafa beðið hœlis sem póli-
tískur flóttamaður
Harry Eddon
í sjúkrahúsi á ísafirði
Bern, Sviss, 16. október. AP.
OTA SIK, fyrrverandi varafor-
sætisráðherra Tékkóslóvakíu, er
sagður hafa beðizt hælis í Sviss
sem pólitískur flóttamaður. Það
voru fyrirhugaðar breytingar
hans á efnahagskerfi landsins,
sem leiddu af sér þá öldu aukins
frjálsræðis sem aftur leiddi til
innrásarinnar í landið. Hann er
Ross Clevelnnd stóðst ekki lúgmarks
öryggiskröiur
Systurskip togarans haía verið reynd
og eru ekki nærri nógu stöðug
Hull, 15. október.
(Einkaskeyti frá AP).
SJÓRÉTTUR hefur komizt að
þeirri niðurstöðu að togarinn
Ross Cleveland sem sökk und
an ströndum íslands í febrúar,
hafi verið það lélegt sjóskip að
hann hafi ekki staðizt lág-
markskröfur í þvi efni. Tog-
arinn, sem var 659 lestir að
stærð, valt á hliðina og sökk
vegná mikillar ísmyndunar. —
Aðeins einn maður komst af,
Harry Eddom, sem bjargaðist
á undursamlegan hátt. 18 félag
ar hans fórust.
Tilraunir voru gerðar með
systurskip Ross Cleveland og
kom í ljós að stöðugleiki
þeirra var fyrir neðan lág-
markskröfur. Þegar svo stöð-
ugleikinn minnkaði enn vegna
ísmyndunar þyrfti ekki mikið
til að hvolfa þeim.
Harry Eddom sa,gði, að um
11 vindstig hefðu verið á fsa-
firði, þar sem þeir leituðu
skjóls. Togarinn hefði skyndi-
lega hallazt á vinstri hlið og
ekki rétt sig af aftur. Hann
taldi að hægt væri að minnka
ísingu með því að nota há-
þrýstislöngu með gufu.
Hann taldi einnig að skjól-
fatnaður ætti að vera í útbún-
aði björgunarbáta, tveir fé-
lagar hans hefðu dáið úr
kulda. Len Whur, skipstjóri á
Kingston Andalusite, sem var
í talstöðvarsambandi við Ross
Cleveland rétt áður en hann
sökk, sagði að hknn teldi að
togarinn hefði sokkið vegna
ísfargsins sem var á honum,
vegna þess að skipið var létt,
þar sem eldsneyti og vistir
voru á þrotum, og vegna þess
að mikið hvassviðri var.
sá fyrsti af háttsettum tékknesk
um kommúnistum sem þetta ger-
ir, en þúsundir menntamanna eru
i Sviss, sem ferðamenn og biða
átekta.
Sik, sem er 49 ára gamall, kom
til Sviss frá Belgrad, þar sem
hann var staddur ásamt þrem
öðrum ráðherrum stjórnarinnar
í Prag, þegar innrásin var gerð.
Hinir þrír. einn þeirra var Jiri
Hajek, utanríkisráðherra, sneru
aftur til Prag og margir töldu að
það myndi Ota Sik einnig gera
er frammí sækir.
Ef hann hefur nú beðizt hælis
sem pólitískur flóttamaður er það
talið benda til þess, að hann
búist við að Rússar muni enn
herða tökin á Tékkóslóvakíu.
Svissneska dómsmálaráðuneyt-
Jð gaf úr yfirlýsingu, þar sem
segir, að Sik og fjölskylda hans
hafi komið í einkaheimsókn til
Sviss, og að svo stöddu sé ekki
hægt að segja meira um fyrir-
ætlanir hans. Tékkóslóvakíska
sendiráðið í Bern hefur upplýst,
að Sik hafi ekki haft samband
við neinn þar,. en gaf í skyn að
svissnesk yfirvöld hefðu sagt að
Sik hefði beðizt hælis.
Það getur dregizt í nokkra
daga að varaforsætisráðherrann
fyrrverandi fái landvistarleyfi.
Meðan Sik var í Júgóslavíu ein-
angraði hann sig og ræddi ekki
Framhald á bls. 20