Morgunblaðið - 19.03.1968, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.03.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBL.AÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1968 11 með betri kjörum en nokkru sinni COSTA 9EL SÚL og LONDON 17 DAGA SÓLARFEBÐIR FRÁ KR. 7.900.- Eftir voli hótela og brottiarardaga Söluskattur ioniiolinn í verði. BROTTFARARDAGAR: 22. maí — 5. júní — 19. júní — 3. júlí — 17. júlí — 31. júlí — 14. ágúst — 28. ágúst — 11 september — 25 .september — 9. október og 23. október. FERÐIN L & L bjóða sumarið 1968 ferðir til vinsælustu, veð- ursælustu og beætu baðstrandar Spánar — Costa del Sól — sem eru hagkvæmari og ódýrari, en áðnr hefur þekkzt hér á landi . Dvalizt verður hálfan mánuð á baðsiröndinni og tvo heiia virka daga í London á heimleið. Flogið er með islenzkum leiguflugvélum frá Loftleiðum til Spánar og beztu fararstjórar spönsku-mælandi — starfa á vegum okkar þar syðra. Við bjóðum mikið úrval af hótelum á ströndinni, þannig að hver og einn getur fundið og valið sér gistingu að vild. Costa del Sól er syðsta baðströnd Spánar — hún er ekki á eyju og því eru miklir ferðamöguleikar bæði um landið sjáift og t.d. til Norður-Afríku. t Torremolinos, þar sem öll hótelin eru staðsett, er fjölbreytt og líflegt skemmtanalíf og einnig er nýstárlegt að kynnast skemmtanalífinu í Tangier í ferð okkar til Marokko. STRÖNDIN Costa del Sól. Sólarströndin eins og hún heitir á ís- lenzku, er syðsta baðströnd Spánar, og er öll strand- lengjan milli Malaga og Gibraltar. Ströndin hefur hin síðustu ár verið ein eftirsóttasta baðströnd Ev- rópu vegna einstakrar veðursældar. VEÐURFAR Ef borið er saman við Mallorka, þá er hlýrra á Costa del Sól vor og haust, þannig að hægt er að nota sjóinn og á sumrin verður ekki óþægilega heitt. Meðalhiti í mai er um 19 gráður og í ágúst 25 gráður. Hvergi á Spáni eru fleiri sólardagar ár hvert og má nefna að í mánuðunum júlí og ágúst rígnir aldrei. VEÐURFAR SÍÐUSTU 30 ÁR maí júní júlí ág. sept. okt. meðalhiti sjávar 17.4 20.7 20.9 24.2 21.2 18.3 meðalhiti á C’ 19.0 22.2 21.5 25.4 23.1 19.5 sólardagar 28 28 31 31 27 27 rigningardagar 3 2 0 0 3 4 FERÐAMÖGULEIKAR Á Costa del Sól eru margir ferðamannastaðir, en þeirra vinsælastur er Torremolinos, en þar eru ÖU hótelin ,sem við bjóðum. Sandurinn við Torrenmolin- os er fínn og mjúkur og allan þann tíma sem hópar okkar dveljast þar syðra má nota sjóinn. Stutt er tU Malaga ,sem er merk borg fyrir margra hluta sakir, og einnig má fara ferðir til hinnar nafn- toguðu Granado og lengri ferðir til SeviUa og Cor- doba. Nautaat er reglulega í Malaga og MarbeUa, og enn má nefna, að mjög skemmtilegt er að fara ferð um Andlúsíu, sem telja má eánn spánskasta hluta Spánar. Varðandi ferðalög má að endingu nefna ferðalög til Marokko. Pangað gengur ný ferja, með sundlaug og öllum þægindum og er komið til Tangier eftir nokkra tíma siglingu. Dvalizt er í tvo daga í þessu ævintýra- landL HÓTELIN Það skal tekið fram strax, að öll hótelin, sem notuð eru, eru bæði með baði og W.C. FuUtrúi fyrirtækis- ins hefur nú nýlega verið á staðnum og sérstaklega valið þessi hótel, samkvæmt þeirri reynslu, sem við höfum varðandi ströngustu kröfur íslenzkra ferða- manna. 1. PIZARRO: Ódýrasta hótelið sem er í boði og það eina sem að- eins morgunmatur fylgir. Það er í sjálfum bænum Torremolinos og um 200 metra frá ströndinni. Hótel- ið er gott og hreinlegt, með öllum þægindum. 2. LAS PALOMAS: Nýtt hótel — opnað í marz sl. Þar eru ÖU þægindi, sem finna má á fyrsta flokks hótelum. Stór sundlaug og skammt er á bezta hluta baðstrandarinnar. Nætur- klúbbur. Öll herbergin með svölum. 3. COSTA DEL SOL: Hótel sem nýtur mikilla vinsælda. Þar ríkir skemmti- legt andrúmsloft. Öll þægindi, sérstök baðherbergi, lyfta, barir, góðir veitingasalir og sérstök sundlaug, Herbergin eru með loftkælingu og stutt á ströndina. 4. JORGE V. Hótelið stendur við ströndina og aðeins örfá skref í sjóinn .Eitt skemmtilegasta hótelið á aUri strönd- inni, byggt í spönskum stíl. Maturinn og þjónustan er rómuð á Jorge V, herbergin eru loftkæld ©g með sérstöku baði og svölum. 5. TORRE DE LA ROCA: Hótel í lúxusklassa, svokallað aparthótel. Ekki er um að ræða eitt hótelherbergi heldur heila íbúð. Öll þæg- indi sem nöfnum tjáir að nefna og veitingasaUrnir eru mjög glæsilegir og veitingarnar eftir þvL Hótel- inu fylgir sundlaug. 6. NAUTILUS: Einnig í Iúxusflokki og talið eitt bezta hótelið á Suð- ur Spáni. Það stendur við bezta hluta baðstrandar- innar og hefur tvær sundlaugar. Þar er saunabað ©g nuddstofa, verzlanir og hárgreiðslustofa. Margir veit- ingasalir og barir. FARARSTJÓRAR INNIFALIÐ I VERÐI: Fararstjórar okkar, þeir Guðmundur Steinsson og Svavar I.árusson hafa starfað á veguin L& L í mörg ár. Þeir þekkja báðir Spán eftir margra ára ferðir um landið og tala að sjálfsögðu spönsku. Guðmundur Steinsson Svavar Lárusson A. 1 Torremolinos: Gisting í tvcggja manna her- bergjum, fullt fæði nema á Pizarro, þar er aöeins morgunverður, íslenzkur fararstjóri. B. f London: Gisting í tveggja manna herbergjum með morgunverði, íslenzkur fararstjóri, ferð um London, ferð um London um kvöld. C. Flugfargjald, ferðir milli flugvalla og hótela, flug- vallarskattar og söluskattur. Afsláttur fyrir börn: Innan tveggja ára frítt, 2ja-10 ára 25% afsláttur. Okkar verð eru raunveruleg verð, það sem við bjóðum er bezta baðströnd Spánar, vinsælasta ferðamannalands Evrópu, beztu hótelin á þeirri strönd og leiðsögn beztu og reyndustu fararstjóra. Leitið nánari upplýsinga. LÖND & LEIÐIR Aðalstræti 8,simi 2 4313

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.