Morgunblaðið - 09.02.1966, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvíkudagur 9. febrúar 1966
FRÁ ALÞINGI:
Loödýrarækt
leyfö á ný
Sala loðskinna skapar nágrannalöndunum
! mikið útflutningsverðmæti
1 GffiR mæ'lti Jónas G. Rafnar
fyrir frumvarpi um loðdýrarækt
er !hann flytur ásamt fjórum
öðrum þingimönnum.
Flu.tningsmaður gat þ&ss, að
frumvarp þetta væri samlhljóða
frumvarpi er
utt hefði verið í
neðri deild á sl.
Hefði
frumvarpið mið
að að því, að
gera núgildandi
frá 8.
marz 1051 um
loðdýrarækt ein
faldari og einn-
ig væri gert ráð fyrir, að sett
yrði ýtarleg reglugerð um fram-
kvæmd hennar. 1 frumvarpinu
í GÆR var logð fram á Al-
þingi tillaga til þingsályktunar
frá Karli Kristjánssyni og Gísla
Guðmundssyni um skiptingu
landsins í fylki, er hafi sjálf-
stjóm í sérmálum. Aðalinntak
tillögunnar er, að ríkisstjórninni
yerði falið, að skipa 10 manna
nefnd er skuli rannsaka og at-
huga, hvort ekki sér rétt, að
skipta landinu niður í fylki með
sjálfstjórn í sérmálum, Og ef
nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu að þetta sé rétt, skuli hún
gera tillögur um fylkjaskipun-
ina.
í fylkjunum verði fylkisþing
og fylkisstjórar, er fari með
sérmál fylkjanna og taki þar
með við nokkur af störfum Al-
þingis og ríkisstjórnar, enda
verði í tillögunum ýtarlega um
það fjallað, hver sérmálin skuli
vera og eftir hvaða reglum
fylkin skuli fá ríkisfé til ráð-
stöfunar.
I>á var einnig lagt fram frum-
varp um breytingu á lögum um
þingsköp Alþingis. Flutnings-
xnaður frumvarpsins er Bene-
dikt GröndaL 3reytingar er
frumvarpið gerir ráð fyrir lúta
að útvarpi og sjónvarpi frá Al-
þingi. Er m.a. lagt til, að áður
en þrjár vikur eru liðnar frá
þingsetningu, skulu fram fara
almennar stjórnmálaumræður,
er skal útvarpa eða sjónvarpa.
Skulu þær hefjast á skýrslu
forsætisráðherra, og má hann
tala allt að 30 mínútum. Síðan
tala fulltrúar hinna þingflokk-
anna 20 mínútur hver. í annarri
umferð hefur hver flokkur 10
mínútur, í þriðju umferð 5 mín-
útur.
f>á eru einnig ákvæði þess
efnis, að útvarpa eða sjónvarpa
skuli umræðu um mál, ef allir
þingfokkar eru sammála um að
óska þess og að hver þingflokk-
ur éigi einu sinni á hverju þingi
rétt á útvarpsumræðu um mál,
þótt samþykki hinna flokkanna
komi ekki til.
Einnig er gert ráð fy/r að
ríkisútvarpið .veiti þingflokkun-
um tíma til að kynna í útvarps-
erindum stefnu sína og starf.
Hver flokkur skal að jafnaði fá
tvö slík erindi á ári, og tilnefna
formenn þingflokkanna menn
innan þings eða utan til þess að
ílytja þau.
væri kveðið á um það, að land-
búnaðarráðuneytið ábvæði,
hvort veitt skyldu leyfi til þess
að koma upp loðdýragörðum, en
varðandi hverja umsókn bæri
því að leita álits veiðistjóra, sem
kynnti sér öll gögn umsækjenda.
Helzta nýmæli frumvarpsins
væri, að leyft Skyldi að nýju
minkaeldi hér á landi, að full-
nægðum vissum skilyrðum og
innan ákveðinna takmarka.
Flutpingsmaður vék síðan að
að helztu röksemdum fyrir því
að minkaeldi yrði að nýju heim-
iiað hér á landi. Sagði hann, að
þar sem margir væru á móti
þessari atvinnugrein teldu flutn-
ingsmenn frumvarpsins rétt, að
farið yrði gætilega 1 sakimar,
þar til nokkuð örugg reynsla
væri fengin — og legðu þeir því
til, að eigi fleiri en fimrn aðilum
yrð veitt leyfi til minkaelds á
næstu tveimur árum eftir gildis-
töku laganna. Þá væri einnig
tekið fram í frumvarpinu, að
leyíi til minkaeldis mætti þó að-
eins veita í sveitafélögum, þar
sem villiminkur hefði þegar náð
öruggri fótfestu að dómi veiði-
stjóra. Með þessum takmörkun-
um væri gengið til móts við þá,
sem óttuðust að minkaeldi yrði
til þess að auka villiminkaplág-
una.
Jónas sagði síðan, að til þessa
hefði minkaeldi verið einkum
stundað meðal fiskveiðiþjóða,
enda væri fiskúrgangur aðal-
fæða minks, sem alinn væri upp
til slátrunar vegna skinnanna.
Segja mætti, að atvinnugreinin
ætti sér stað í öllum löndum,
sem greiðan aðgang hefðu að
fiákimiðum Norður-Atlantshaifs-
ins og Kyrrahafsins, nema hjá
íslendingum.
Samkvæmt upplýsingum lægi
það fyrir að skinnaframleiðslan
hefði vaxið gífurlega á undan-
förnum árum, eða úr 6 millj.
minkaskinna á árinu 1955 upp í
tæplega 22 milljónir, sem hún
væri áætluð 1965-1966.
Bandaríkin framleiddu landa
mest, en Norðurlöndin öll væru
mjög framarlega á framleiðenda-
listanum. Mætti nefna sem dæmi,
að í árslok 1946 hefðu verið rek-
in 4807 loðdýrabú í Noregi, þar
af aukning á árinu 584. Útflutn-
ingsverðmæti loðskinna hefði
numið á árinu 167 millj. n. kr.,
eða um 1000 millj. ísl. kr. í Dan-
mörku hefði útflutningsverðmæt-
ið verið sem svaraði til 1.200
millj. ísl. kr. og þar hefði skinna-
framleiðslan tvöfaldast á 3 ár-
um. í Finnlandi hefðu gjaldeyris-
tekjur vegna skinnasölu á árinu
1964 numið um 535 millj. ísl.
króna, en Finnar yrðu að flytja
inn verulegt magn' af fiskúr-
gangi, m.a. frá íslandi. Væri
stærsta minkafyrirtækið í Finn-
landi nú að láta smíða skip í
þeim tilgangi að flytja minka-
fóður frá Bandaríkjunum og
Kanada. Minkaeldi hefði einnig
verið hafið í Færeyjum fyrir
nokkrum árum og væri iþar nú
blómlegur atvinnuvegur og á
Grænlandi væri það nýlega byrj-
að, á vegum Grænlandsverzlun-
arinnar og einstaklinga.
Minkaskinnaframleiðsla Norð-
urlanda mundi nema samtals á
árunum 1965—1966 um 7,4 millj.
skinna og væri mestur hluti
þeirrar framleiðslu selt til Banda
verði
ríkjanna og Vestur-Þýzkalands,
en í þessum löndum hefði mark-
aðurinn verið í örum vexti. Jón-
as sagði, að á það hefði verið
bent, að fóðuröflunin væri eitt
þýðingarmesta atriðið varðandi
minkaeldið, iþar sem reiknað
væri með, að fóðurkaup næmu
um helmingi reksturskostnaðar
búanna. Hér á landi væru mögu-
leikarnir til fóðuröflunar svo til
ótæmandi, hvers kyns fiskúrgang
ur og úrgangur frá sláturhúsum.
Að því leyti væru aðstæður til
minkaeldis mjög góðar hér. Búin
mætti reisa í verstöðvunum og
spara þannig flutningskostnað að
miklu leyti. Þegar á þetta iþýð-
ingarmikla atriði væri litið
kæmu til athugunar hagsmunir
útgerðarinnar. Benda mætti á
það, t.d. að árið 1964 hefði út-
ílutningur á frystum fiskúrgangi
til dýrafóðurs numið 7.165 tonn-
um og hefði fob. verð á kg verið
kr. 3,20, en á sama tíma hefði
verð á fiskúrgangi í gúanó verið
68 aurar pr. kíló. Þegar litið væri
á þessar tölur kæmi í ljós, að
útgerðarmaðurinn fengi mangfalt
hærra vérð fyrir úrganginn sem
færi til vinnslu sem dýrafóður,
en ef úrgangurinn færi í gúanó
og þjóðin margfalt meiri igjald-
eyri fyrir sama magn af hráefni.
Minkaeldi gæti einnig verulega
stuðlað að atvinnuaukningu í
sjávarplássum og t.d. Kanada-
menn ynnu nú að því að koma
á fót loðdýrarækt í stórum stíl
í hinum afskekktari héruðum.
Flutningsmaður sagði, að látin
hefði verið í Ijós vantrú á því,
að hið háa verð á minkaskinnum
á heimsmarkaðinum gæti haldizt
til lengdar. Reynslan sýndi hins-
vegar annað, að eftirspurn væri
vaxandi sem byggðist m.a. á því
að lífskjör hefðu farið batnandi
í stærstu markaðslöndunum. —
Hinsvegar bæri að taka fullt til-
lit til þess, að aukin framleiðsla
leiddi til vaxandi samkeppni og
gæði vörunnar mundu ráða verð-
inu, sem fyrir hana fengist. Skil-
yrðf ættu að vera góð hérlendis,
en búast mætti við byrjunarörð-
ugleikum, þar sem íslendinga
skorti reynslu og þekkingu ann-
arra þjóða á þessum málum.
Sölumöguleikar okkar væru
hinsvegar nær þeir sömu og
keppinautanna þar sem sala loð-
skinna færi nær eingöngu fram
á uppboðum.
Jónas sagði að lokurn, að að
því hefði verið fundið sl. vetur
er frumvarp þetta kom til um-
ræðu að ekki skyldu fylgja því
rekstraráætlun fyrir minkabú af
meðalstærð. Þar sem minkaeldi
hefði verið bannað hér í mörg
ár, væri vitanlega erfitt að fá
slíkar tölur, en flutningsmenn
frumvarpsins hefðu aðallega
stuðzt við reynslu annarra þjóða.
í 6. grein frumvarpsins væru
ákvæði um að upplýsingar yrðu
að liggja fyrir um fjárhagsgrund
völlinn áður en til leyfisveitingar
kæmi.
Vissulega hörmuðu flutnings-
menn frumvarpsins það tjón, sem
viLliminkur hefði valdið hér á
landi í ríki náttúrunnar, en það
væri hinsvegar skoðun þeirra, að
minkaeldi undir ströngu eftirliti,
mundi ekki auka minkapláguna.
Bæri að hafa þá staðreynd í
huga, að litlar líkur væru á að
villimink yrði útrýmt hér og
meðan svo væri, væru engin rök
fyrir því að banna minkaeldi.
Geta mætti þess, að stjórnar-
fundur í Sölumiðstöð Hrað-
frystihúsanna mælti eindregið
með því að frumvarp þetta yrði
samþykkt og þá hefði Útvegs-
mannafélag Reykjavíkur einnig
mælt með því að komið yrði upp
loðdýrarækt í stórum stíl. Þá
hefði komið fram í blaðaviðtali
Framhald á bls. 27
TIL SÖLU
2ja herb. íbúð við Ljósheima,
Skipholt, Hagamel, Þórs-
götu og víðar.
3ja herb. íbúðir við Þórsgötu,
Asvallagötu, Sólvallagötu,
Langholtsveg, Kaplaskjóls-
veg og víðar.
4ra herb. íbúðir við Rauðalæk,
Barónsstíg, Leifsgötu, As-
braut, Miklubraut, Öldu-
götu, Lönguhlíð og víðar.
5 herb. íbúðir við Karfavog,
Njörvasund, Rauðalæk, Goð
heima, Hagamel, Ásgarð og
víðar.
6 heorb. íbúðir við Sólheima,
Skeiðarvog, Nýbýlaveg og
víðar.
Einbýlishús á Seltjarnarnesi
6—7 herbergi, 40 ferm. bif-
reiðageymsla.
Einbýlishús við Aratún 137
ferm.
Eintbýlishús við Vallargerði.
Raðhús við Kaplaskjólsveg,
Ásgarð, Álfhólsveg og víðar.
Tvíbýlishús á bezta stað í
Kleppsholti. Húsið er tvær
hæðir. 1. hæð: 3ja herb.
íbúð. 2. hæð: 4ra herb. íbúð.
Húsið er vandað, laust eftir
samkomulagi.
Einbýlishús og raðhús í smíð-
um í úrvali í borginni og
nágrenni.
íbúðir í smíðum 2ja, 3ja, 4ra,
5 herbergja íbúðir í Ár-
bæjarhverfi og víðar.
Athugið að um skipti á íbúð-
um getur oft verið að ræða.
Ólafur*
Þopgrímsson
hæstaréttarlögmaður
Fasteigna- og verðbréfaviðskifti
Austurstræíi 14, Sími 21785
BÍLAR
Ford Falkon station, árg. 1963.
Land-R/Over ’66, bensínbíll,
ókeyrður.
Vauxhall Viktor 1962.
Consul Cortina 1965, 2ja dyra.
Opel Record ’63, nýja gerðin.
Ekinn aðeins 21 þús. km.
Volkswagen ’65.
Renault sendibíll 1963.
Söluumboð fyrir
Trabant bifreiðir
Nokkrir bílar til afgreiðslu
strax. Greiðsluskilmálar.
bíloiafldg
GUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
Reyndur
verzlunarsfióri
óskar eftir vinnu, helzt í mat-
vörubúð, hálfan daginn e. h.
Hefur margra ára þjálfun ut-
anlands sem innan. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 12. þ. m.,
merkt: „Á fertugsaldri —
8551“.
Ráðskona
Stúlka með þriggja ára telpu
óskar eftir ráðskonustöðu á
góðu heimili. Má vera í sveit.
Tilboð er greini fjölskyldu-
stærð, kaup og aðrar uppl.
sendist afgr. Mbl. fyrir 15.
þ.m., merkt: „Dugileg —
13 — 8546“.
Styrmir Gunnarsson
lögfræðingur
Laugavegi 28 B. — Sími 18532.
Viðtalstími 1—3.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Stúlka
getur fengið vinnu við auðveld skrifstofustörf.
Tilboð auðkennt: „Stundvís — 8536“ er tilgreini
aldur og menntun sendist Mbl.
Hásetar
Einn háseta vantar á góðan netabát sem er að
hefja veiðar. Báturinn rær úr Þorlákshöfn.
Upplýsingar í síma 47170 og 34735.
íbúðir til sölu
3ja herb. nýleg kjallaraíbúð í húsi við Goðheima.
Sér inngangur. Vönduð íbúð.
4ra herb. góð risíbúð við Sörlaskjól. Hitaveita.
Mjög fallegur garður. Laus eftir 2—3 mánuði.
5 herb. íbúð á hæð í sambýlishúsi við Stóragerði.
Ræktuð og girt lóð. Stutt í verzlanir og önnur
þægindi.
5 herb. hæð í 2ja hæða húsi í Kópavogi, stutt frá ,
Hafnarfjarðarvegi. Hæðin er nú þegar tilbúin
undir trúverk, máluð að nokkru leyti, með
tvöföldu gleri í gluggum, húsið fullgert að ut-
an. Stór uppsteyptur bílskúr. Teikning til sýn-
is á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími 14314.