Morgunblaðið - 09.02.1966, Blaðsíða 3
MiSvTkuclaffur 9. febrúar 1966
MORCUNBLAÐIÐ
3
f
SNJÓR STÍFLAÐI
VATNIÐ TIL SKÓLANS
Nemendum var skipt niður á bæina
SKÓGUM, Axarfirði, 8. febr.
— Kennsla féll niður og ungl-
ingunum í skólanum í Lundi
í Axarfirði var skipt niður á
bæina, þegar vatnsieiðsla í
heimavistarskólanum bilaði við
að stíflast af snjó, Hefur svo
staðið í viku, 'og komst þetta
ekki í lag fyrr en í gær.
í skólanum eru 37 nemendur
víðs vegar að af landinu. Hér er
allt á kaf í snjó og allir vegir ó-
færir innahhéraðs. Póru ung-
lingarnir því gangandi á milli.
Samgöngur eru engar og síma
sambandslaust hefur verið við
Kópasker, sem er okkar aðal við
skiptastaður, þangað til í gær.
Er hér ein beltisdráttarvél, sem
notuð er til að flytja fólk á
milli staða, þegar nauðsyn kref-
ur.
Skemmdir urðu litlar hér í
óveðrinu. Hey fauk á stöku stað.
— S. B.
Aldrei meiri inn-
og útflutningur
tJtflutt í desember fyrir 835,4 millj. kr.
Uóðviðri var hér á lanai í
gær utan smáél á Austfjörð-
um og Norðurlandi. Frost var
þó talsvert í innsveitum, víða
10—12 stig vestan og norðan
lands rétt fyrir hádegið.
Engin veruleg breyting er
á hæðinni yfir Grænlandi eða
lægðinni vestur af Bretlands-
eyjum. Veður mun því hald-
ast nær óbreytt í bili.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi: Suðvesturmið: A-stinn
ingskaldi, hvasst með köflum
austan til, skýjað. Suðvestur-
land til Breiðafjarðár, miðin:
NA gola eða kaldi, léttskýjað.
Vestfirðir og Vestfjarðarmið:
NA gola eða kaldi, smáél
norðantil. Norðurland og mið-
in: A og SA gola viða létt-
skýjað. Norðausturland, Aust-
firðir, miðin og Austurdjúp:
NA gola eða kaldi, smáél.
Suðausturland og miðin: NA
kaldi, en stinningskaldi á mið-
unum, bjartviðri.
Veðurhorfur á fimmtudag:
Hægviðri og sennilega úr-
komulaust, allmikið frost á
Norðurlandi, en vægt á Suð-
urlandi.
VÖRUSKIPTA JÖ FNUÐURINN í
desem'ber var hagstæður um
103,2 mililj. króna. Flutt var út
fyrir 8i35,4 millj,, og er það lang-
mesti útflutningur sem orðið
hefur í einum mánuði. Næst-
mesti mánaðarútflutningur var í
nóvember 1965 þá var flutt út
fyrir 518,7 millj. kr. í aðeins eitt
annað Skipti hefur mánaðarút-
flutningur numið yfir 500 millj.
kr., þ.e. í nóvember 1984 509
millj. kr.
Innflutningurinn í desember
el. nam 616,4 miilj. kr. að frá-
dregum skipum og flugvélum,
og er þar einnig um að ræða
mesta innflutning, sem orðið
hefur í mánuði. Innflutningur
hefur aðeins tvisvar áður farið
yfir 500 millj. kr. í miánuði, í
nóvember 1965, 516,4 mi'llj. kr„
og í júní 1965, 507,2 millj. kr.
Innflutningur skipa og flug-
véla er ekiki meðtalinn við þenn-
í stuttu
máli
J 1 Berlín, 8. febrúar —
j AP — NTB.
• Tveimur vopnuðum a-
1 þýzkum landamæravörðum
I tókst í gær, mánudag, að flýj a
j til V-Berlínar. Báðir eru
J mennirnir 21 árs gamiir.
Þeir komust yfir hindranir
1 skammt frá þeim stað, þar
sem annar a-þýzkur flótta-
, maður var skotinn til bana,
1 fyrr urn daginn. Var skotið
á manninn a.m.k. 50 skotum.
I
Washington, 7. febr. AP:
• Bandaríska utanríkisráðu
neytið hefur staðfest, að
' Bandaríkjastjórn hafi selt
Istjórh fsraels skriðdreka af
Patton-gerð. Fregn þess efnis
var birt í blöðum í Kairo —
og sagði talsmaður róðuneyt-
isins, Marshall Wright, í gær,
að það væri rétt hermt. Hann
j sagði það stefnu Bandaríkja-
stjórnar að leitast við að
| viðhalda hernaðarlegu jafn-
j vægi rnilli Arabaríkjanna og
i fsraels og hefði hún jafnan
l hvatt til þess að sala herbún
I aðar þangað yrði takmörkuð.
í' Nú hefðu hins vegar borizt
Ifregnir um mikla hergagna-
sölu frá Sovétríkjunum til
landanna í Mið- og Austur-
löndum, Egyptalands, Sýr-
lands og íraks og því hefði
verið tekin ákvörðun um að
selja hergögn til ísraels, Jórd
an og Saudi Arabíu.
an samanburð, vegna þess að
hann er tekinn í skýrslu aðeins
tvisvar á ári: Innflutningur fyrra
hluta árs með innflutningstö'lum
júniimánaðar og innflutningur
síðari hluta árs með innflutn-
ingstölum desembermánaðar. En
innflutningur skipa og flugvéla
var í desemiber 1965 115,7 millj.,
fiskiskip fyrir 20,9 millj., önnur
skip fyrir 92,7 millj. og flugvél-
ar fyrir 2,1 mil'lj.
Frá janúar til desem'ber 1965
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 342,2 millj. útflutt
fyrir 5558,9 mi'llj. og innflutt
fyrir 5901,9 millj., þar af skip
og flugvélar fyrir 583,7 mill'j.
Á sama tíma 1964 var vöruskipta
jöfnuðurinn óhagstæður um 860
millj., útflutt fyrir 4775,9 mi'llj.
og innflutt fyrir 5635,6 millj.,
þar af skip_ og flugvélar fyrir
937,8 millj. í desem'ber 1964 var
vör uskiptaj öf nuðurinn óhags tæð
ur um 394,7 millj. kr.
„Við leggjum hér með blátt
ban.n við því að söngvar okk-
ar verði fluttir opinberlega, í
útvarpi, í glymskröttum og á
skemmtistöðum og gildir þetta
bann þar til stjórn Grikklands
hefur afnumið ritskoðun á
söngvum okkar“.
Þannig hljóðaði tilkynning
þeirra þriggja grísku tónskálda,
sem öðrum fremur hafa gert
grísk sönglög heimsfræg á sein
ustu árum. Mennirnir eru Man-
os Hadjidakis, sem hlaut „Osc-
ar“ verðlaunin fyrir lagið
„Aldrei á sunnudegi"; Mikis
Theodorakis, er skrifaði tón-
listina fyrir kvikmyndina
„Zorba the Greek“, og Stavros
Xarchakos er skrifaði tónlist
fyrir sjónvarpskvikmynd er
nefnist „Grikkland Melinu Mer
couri“.
í sameiginlegu bréfi til dag-
blaðanna í Aþenu, gáfu tón-
skáldin þær upplýsingar, að
stjórnin léti ritskoða alla
söngva þeirra, en slík ritskoð-
un færi ekki fram á neinum
grískum bókum eða leikhús-
verkum. í bréfinu kváðust þeir
mundu halda tónsmíðum áfram,
en aðeins fyrir útlendan mark
að, því þar þyrftu þeir ekki
að óttast ritskoðun á verkum
sínum. Tónskáldin undirstri'k-
uðu, að banninu við flutning
á söngvum þeirra í Grikklandi,
yrði ekki aflétt, fyrr en stjórn-
in legði niður „þessi kjána-
legu og ólýðræðislegu afskipti".
Reykjaskóli
sambandslaus
Nemendum líður vel
MIKIÐ ER um bilanir á síma
út á landsbyggðina. Það má m.a.
heyra í lestri tilkynninga í út-
varpinu, sem notaður er til að
koma skilaboðum áleiðis.
í gær var t.d. lesin tilkynning
frá skólastjóra Reykjaskóla um
að nemendum liði öllum vel. En
símasambandslaust hefur verið
við skólann síðan 28. janúar.
Má því búast við að aðstand-
endur nemenda hafi verið að
velta fyrir sér, hvernig þar hafi
liðið í þeim veðraham, er geng-
ið hefuv yfir. f tilkynningu skóla
stjórans segir að heilsufar sé
gott, nemendum líði vel og ekk-
ert hafi orðið að þeim í óveðr-
inu.
Talsmaður ritskoðunarnefnd-
arinnar, Takist Georgiou, sagði
að nefndin hefði starfað í 25
ár án nokkurra árekstra. Starf
nefndarinnar væri fólgið í því,
að yfirfara texta sönglaganna
og strika út þau orð og línur
er ósæmileg Þættu. í þau 25
ár, sem nefndin hefði starfað,
hefðu aðeins 10 sönglög verið
bönnuð.
Afmælis-
happdrætti
Varðar
ÞEIR, sem hafa fengið happ-
drættismiða frá Afmælishapp-
drætti Varðar eru vinsamlega
beðnir að gera skil sem fyrst.
Skrifstofan er í Sjálfstæðis-
húsinu við Austurvöll, —
sími 17104.
Tillaga um
vðrmaveitu-
áætlun fyrir
Akranes
- Akranesi, 8. februar: —
HEITT VATN þrá bæjarbúar til
að hita upp hýbýli sín. Það er
lofsvert framtak hjá bæjar-
stjóra, að tveir jarðborunar-
menn voru fengnir til að bora
eftir heitu vatni, eins og áður
hefur verið frá skýrt í Mbl., á
þremur stöðum á Stillholti, á
Innra Hólmi og á Hvítanesi.
Ekki hefur Jarðborunardeild
ríkisins unnið til fullnustu úr
árangri borananna. En sérfræð-
ingum þar þykir, eftir hitastig-
inu í borholunum að dæma, ein-
dregið benda til að jarðhiti sé
nógur á 500—700 m dýpi, sem
er samsvarandi niðurstaða og
reynzt hefur í Reykjavík. Spurn
ing er hvort vatnið fáist nóg.
Eitt er þó víst, að fáist vatn,
verður um að ræða heitt vatn.
Tillaga er komin fram um að
samin verði heildaráætlun um
varmaveitu fyrir Akranesbæ,
sem leggja megi til grundvallar
frekari framkvæmdum.
— Oddur.
Gæðingur varð
fyrir bíl
Akureyri, 8. febrúar: —
LAND-ROVERBÍLL rakst all
harkalega á hest á gatnamótum
Þórunnarstrætis og Hrafnagils-
strætis um 9 leytið í gærkvöldi.
Háir snjóruðningar voru með-
fram götunum og skyggðu á um-
ferðina.
Bíllinn lenti á vinstri lend
hestsins, sem skall flatur á snjó-
vegginn, en reiðmaðurinn og
eig'andi hestsins, Egill Jónasson,
kastaðist yfir hinn háa ruðning,
kom niður í mjúkan snjó og
slapp ómeiddur. Hesturinn marð-
ist nokkuð á lendinni, en mun
vera óbrotinn. Bíllinn beyglað-
ist dólítið að framan.
Hesturinn heitir Eldur og er
kunnur gæðingur og veðhlaupa-
hestur hér um slóðir. — Sv. P.
VARÐAR v
DREGIÐ 1I.FEBR0AR 1966 r
VERÐMÆTl VINNINGA KR.315.000.00
Þrjú grísk tónskáltí
mótmæla ritskoöun
STAKSTHNAR
Beinlausa
„furðuveikið“
í hlaðinu ,Suðurlandi“, sem út
kom 15. jan. sl. birtist þessi
klausa:
„Fyrsti jafnaðarmaðurinn,
sem myndaði stjórn í Bretlandi
var Ramsey MacDonald. Hann
þótti fremur reikull í ráði og ó-
sjálfstæður í skoðunum. Þess-
vegna gaf Winston Churchill
honum nafnið" „beinlausa furðu.
verkið“. Nú hafa íslendingar
greinilega eignazt slikt furðu-
verk, en það eru stjórnmálasam-
tök þau, er nefna sig Fram-
sóknarflokk. Þegar rætt hefir
verið um stóriðjumál, hafa sum-
ir framsóknarmenn talið sjálf-
sagt að virkja Jökulsá á Fjöll-
um og stofnsetja aluminium-
verksmiðju á Norðurlandi. Hér
syðra hafa tveir varaþingmenn
flokksins lagt áherzlu á, að
verksmiðjan yrði staðsett á
Suðurlandi. Hefir annar mælt
sterklega með Þorlákshöfn, en
hinn talið Dyrhólaós rétta stað-
inn. Nú hefir formaður flokks-
ins kvatt sér hljóðs, og sagt
flokkinn vera á móti stóriðju-
hugmyndum, (aftur á móti sé
flokkurinn með hinni leiðinni,
sem enginn veit hver er, enda
varla von, þar sem talið er, að
þar sé aðeins um að ræða gaml-
an bandarískan kosningaslag-
ara: „the alternative way.“)
Verður nú fróðlegt að sjá,
hvernig hinir garpslegu „lókal-
patríótar“ framsóknarmanna
hér í Suðurlandskjördæmi
bregðast við þessari afstöðu for-
manns síns. Sýnt er, að foring-
inn telur ekki, eins og liðsmenn
hans, að vegir liggi til allra
átta; Dyrhóla, Húsavíkur, Þor.
lákshafnar; — heldur aðeins á
hinn staðinn.“
„Frdbær"
írétta-
þjónusta
HÆSTA TILB0Ð1400MILLJ.
;
Þessi mynd er af hluta forsiðu
Tímans sl. Iaugardag. Hún gefur
glögga mynd af hinni „frábæru“
fréttaþjónustu þess blaðs. 1 frétt
neðarlega á forsíðu skýrir blað-
ið frá því að tilboð í Búrfells-
virkjun hafi vwáð opnað daginn
áður og í fyrirsögn er þess getið
að hæsta tilboð hafi verið 1400
millj. kr.
Ekki þykir blaðinu ástæða til
að vekja athygli í fyrirsögn á
lægsta tilboði og bendir
það ótvírætt til þess, að Fram-
sóknarmenn vilji láta taka hæsta
tilboði en ekki því lægsta. Væri
það í samræmi við aðra afstöðu
þeirra til virkjunarmála Tím-
inn bætir svo gráu ofan á svart
með því að birta mynd af vara-
formanni flokksins, prúfessar
Ólafi Jóhannessyni, ofan við
þessa dæmalausu fyrirsögn,
væntanlega sem merki þess, að
andi hins virta lagaprófessors
svífi yfir afturhaldsafstöðu Fram
sóknarmanna til virkjunarmála
og stóriðju. Er gerð tilraun til
þess að setja svartan stimpil á
þennan ágæta prófessor, því að
hann hefur þó verið einn fárra
Framsóknarmanna sem haft hef-
ur tilburði í þá átt að taka mál-
efnalega og heiðarlega afstöðu
til mála, sejn ekki verður hins
vegar sagt um formann flokks.
ins, Eystein Jónsson. Það er ein-
mitt í samræmi við málflutning
hans og afturhaldsstefnu, sem
Tíminn iðkar hina „frábæru“
fréttaþjónustu sína um tilboðin
í Búrfellsvirkjun.