Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 11
Sunnudagur 2. águst 1964 II MORCUNBLAÐIÐ hátíðlegur 2. ágúst 1893 vera tal- inn með þeim allra beztu bæði íyrr og síðar. í>að sumar stóð yfir heimssýn- ingin miikla í Chicago í minningu um 400 ára afmæli Ameriku- fundur Kristófers Kóiumbusar. Ttáðgert var að sendur væri mað- ur frá íslandi vestur með heilla- óskir og sögusannanir um Am- eríkufund íslendinga. Þjóðskáld- inu, séra Matthíasi Joohumssyni var boðið að sækja sýninguna, sem fulltrúa íslands. En að kosta Eiíka för fékk litlar undirtektir é íslandi. Nokkrir Vestur-íslend- iftgar efndu þá til samskota til að kosta för skáldsins. Séra Matfhías kom vestur, fiiitti sýningarstjóranum í Chi- cago ávarp og heiliaóskir ís- lenzku þjóðarinnar. Þaðan hélt hann til Angyle- og Ðakota- fcyggða og síðan til Winnipeg. I>ar flutti hann ræðu og flutti kvæði á íslendingadeginum fyrir •ninni V-ísl og hvatti þá eggj- unarorðum að varðveita íslenzk- una og brýndi það siðan enn betur í Braigarbót sinni er hann eendi þeim vestur. Hann trúði á mátt málsins eins og einhvern kynngikraft: . . . „Það hefir voða þungar tiðir (þjóðinni verið guðieg móðir; Ihennar brjóst við hungri’ og þorsta, hjartaskjól þegar burt var sólin, iiennar Ijós í lágu hreysi, langra kvelda jóla-eldur“. o. s. frv. II Hann minnist trúarskáldsins á neyðaröld þjóðarinnar: . . . „Halligrimur kvað í heljarnauðum fceiiaga glóð í freðnar þjóðir". Tungan: ► . . „Hún er list sem logar af hreysti lifandi sál í greyptu stáli, endans form í mjúkum myndum minnissaga farinna daga“. o .s. frv. Þvi miður gefst ekki rúm til »ð birta allt kvæðið, en skáldið 1. Hon. George Johnson, M.D. Fulltrúi Manitobastjórnar. lýkur Bragarbót m_o pessum Ijóðlínum: „Særi ég yður við sól og báru, eæri ég yður við líf og æru; yðar tungu (orð þó yngist) eldrei gleyma í Vesturheimi tnunið að skrifa meginstöfum mannavit og stórhug saman! Andans sigur er æfistundar eilífa lífið. Farið heilir! — “ Heimsókn séra Matthiasar fcafði mikil áhrif á V.-íslendinga. Hann færði þeim hjartahlýju engu síður en andagift. Hvorki fyrr né síðar hefir heimsótt þá hugljúfari gestur að heiman. Agreiningur Næstu árin reis ágreiningur tim það hvort ætti að halda hátíð- ina í kringum 2. ágúst eða 17. júní. Ritstjóri Heimskringlu IBaldwin L. Baldwinsson mæ<lti með 2 ágúst en ritstjóri Lög- bergs, Sigtryiggur Jónasson með 17. júní. Stjórnmál og trúmál fclönduðust inn í bessa deilu og menn skiptust 1 tvo illvíga flokka. Fundir voru haldnir sem urðu svo fjölsóttir að hús rúm- aði ekki fólkið, talið er að um 1000 manns hafi sótt fund, sem haidinn var í Albert Hall. 17. júní flokkurinn sagði sig úr lög- um við hinn flokkinn ' 1898 og sóttu þjóðminningahátíð, sem haldin var í Selkirk 17. júní cg árið 1900 sóttu þeir hátíðina í Argyle. Þessar deilur urðu til. þess að íslendingadeginum í Winnipeg hnignaði mjög og árin 1903 og 1904 var tvisýnt um framtíð hans. En þó fór svo að deilur þessar lægði fyrir tilstilli .góðra manna, og árið 1907 áttu menn úr báðum flokksmenn sæti í íslendinga- dagsnefndinni og hefir hátíðin verið haldin síðan um 2. ágúst. Íslendingar i öðrum byggðum tóku snemma að efna til þjóð- minninigahátíða og gera það enn og hafa margar þessar farið fram hafa verið staddir á íslendinga- aaginum þessi 75 ár að beinni eða óbeinni tilhlutan hátíðar- nefndarinnar. Á fyrstu árum hátíðarinnar voru hér ritstjórar við vikublöð- in, skáld og ræðumenn, nýkomn- ir að heiman, Einar Kvaran, Jón Ólafsson, Gestur Pálsson. Við ‘höfum þegar minnst á heimsókn skáldsins Matthíasar Jochums- sonar. Hér fara á eftir nöfn nokk- urra gesta úr fjariægð er hafa flutt erindi eða kvæði á íslend- ingadeginum: Dr. Valtýr Guðmundsson, 1896. Þorsteinn Erlingsson, skáld, 1896. Jón Helgason, forstöðumaður Prestaskólans, síðan biskup 1914. Guðmundur Kamtoan, leik- ritaskáld, 1916. Einar Jónsson, myndhöggvari, 1917. Halldór Hermannsson, bóka- vörður, 1920. Einar Benediktsson, skáld, 1921 . Dr. Ágúst H. Bjarnason, há- skólakennari, 1923. Guðm. Grimsson, dómari, 1924. Einar H. Kvaran, skáld, 1925. Gunnar B. Björnsson, ritstjóri, 1928. » Séra Benjamín Kristjánsson, rithöfundur. Dr. Jón S. Árnason, 1931. Séra Raignar Kvaran, 1983. Hjálmar Björnson, ritstjóri, 1936. Jónas Jónsson, alþingismaður, 1938. Thor Thors, sendiherra, 1941. Dr. Thorbergur Thorvaldson, 1941. Hendrik S. Björnsson, 1942. Séra Pétur Sigurgeirsson, 1946. Séra Eirikur Brynjólfsson, 1947. Andrew Danielsson, þingmað- ur, 1947. Dr. Thorkell Jóhannesson, 1940. William Benedickson, þing- maður, 1951. Séra Einar Sturlaugsson, 1953. Dr. Watson Kirkconnell, 1958. Séra Robert Jack, 1954. Vaidimar Björnsson, fjármála- ráðfcerra, 1956. Framhald á bls. 17 Hon. Wm. M. Benedirkson. Fulltrúi Kanadastjórnar. um 17. júní leytið. Eftir að hætt var að halda Winnipeg hátiðina handan við ána i Elm Park, fór hún fram i River Park í fjöldamörg ár, en árið 1982 var ákveðið að flyja hátíðina til Gimli og halda hana sameiginlega með Gimlibúum oig fer vel á því að hún sé haídin á þessum söguríka stað — vöggu landnámsins. Hátíðin fer nú fram árlega í hinum fagra skrúðgarði Gimli Park. Fjallkonan Árið 1924 kom fjallkonan fram í fyrsta skipti á íslendingadegi vestan hafs og var það á þjóð- minnirugadeginum í River Park. Táknar hún vitaskuld ísland og mælir hún til hinna útfluttu barna sinna. Þykir konum hinn mesti sómi að því að vera vald- ar í þetta hlutverk. Fjallkon- an og hiiðmeyjar hennar auka mjög á glæsibrag dagsins. Fjall- konan er leidd til hásætis. í bak- sýn eru tjöld, sem máluð hafa verið af listmálaranum Árna Sigurðssyni — myndir af ís- lenzku landslagi. Tekur þess upp- setning sig vel út innanum greni trén. — íslendingadagsnefnd- in hefir látið prenta bók með myndum af öllum konunum sem komið hafa fram í búningi Fjall- konunnar frá 1924 til 1964, ásamt ritgerð um Fjallkonuna og verður bókin til sölu á íslendingadeg- inum. íslendingar reistu mikinn varða á Gimli í minningu um landnemana og var hann af- hjúpaður með viðeigandi við- höfn 20 .okt. 1935 og síðan hefur Fjallkonan ávallt iagt blóm- sveig við varðann. í ár leg.gur forsætisráðherra íslands, dr. Bjarni Benediktsson einnig blómsveig við varðann. Heiðursgestir Það eykur ekki lítið á til- breytni og aðdráttarafl hátiðar- innar ef einn ræðumanna er langt að komin, ekki sízt ef það er nafnkunnur maður frá íslandi, með því er hátíðin þjóðminninga- dagur í fyllri skilningi. Hún verður þá einskonar stofnun er sameinar ísiendinga í eitt. Marg- ir kunnustu menn þjóðarinnar Séð yfir mannfjöldann í skemmtigarðinum að Gimli á íslendingadegi. Dagskrá íslendingadagsins HÉR fer á eftir dagskrá íslend- ingadagsins, mánudagsins 3. ágúst, að Gimli, Mánitoba: Kl. 11.00 f.h. hefst skrúðför frá Johnson Memorial Hospital og verða blómsveigar lagðir á minnisvarða landnemanna kl. 11.30. Skemmtiskrá hátíðahaldanna hefst svo með því að leiknir verða þjóðsöngvar landanna, „O, Canada“ og „Ó, Guð vors lands“. Þá setur forseti dagsins, Mr. S. Aleck Thorarinson, hátiðina og frú Ásgerður Bessason flytur á- varp Fjallkonunnar. Næst syngur barnakór Gimli undir stjórn frú Shirley Johnson, frú Önnu Stev- ens og frú Guðrúnar Stevens. Þá eru ávörp tiginna gesta og mæla þar: F.. h. ríkisstjórnar Kan ada, The Hon. Wm. M. Benedick- son, f. h. fylkisstjórnar Manitoba, The Hon. George Johnson, f. h. bæjarstjórnarinnar í Gimli, frú Violet Einarson, bæjarstjóri, f. h. borgarstjórnar Winnipeg, Steph- en Juba, borgarstjóri, og loks flytja ávörp sín ræðismaður ís- lands, Grettir Leó Jóhannson og séra P.M. Pétursson, f. h. Þjóð- ræknisfélags íslendinga í Vestur- heimi. Þá syngur barnákór Gimli öðru sinni og þá verður flutt ræða — Kanada, His Honor Errick F. Willis flytur. Næst syngur The Scandinavian Choir, undir stjórn Arthurs Andersons, söngstjóra. Gunnar Erlendsson leikur undir. Þá flytur forsætisráðherra ís- lands, dr. Bjarni Benediktsson, ræðu — ísland. Að ræðu forsætisráðherra lok- inni flytur dr. Sveinn E. Björns- son kvæði og The Scandinavian Choir syngur öðru sinni og loks verður leikinn brezki þjóðsöngur inn, „God Save The Queen". Að skemmtiskránni lokinni sýnir drengjaflokkur frá Árborg íslenzka glímu, undir stjórn Steina Eyjólfssonar og Harvey Benson. Til kl. 7.30 síðdegis verð ur á vegum The Icelandic Canadi- an Club minjasýning, sem minja- safn Þjóðræknisfélags fslendinga í Vesturheimi og aðrir hafa lánað muni á. Að kvöldi, kl. 7.00, hefst svo kvöldskemmtun, með almennum söng undir stjórn Gústafs Krist- jánssonar, við undirleik frú Jónu Kristjánsson. Sýndar verða þrjár kvikmyndir Osvalds Knudsens: Askja on fire, Hornstrandir (báð- ar með ensku tali) og Hrognkelsa veiðar í Skerjafirði (meðísienzku tali). Að kvikmyndasýningu lok- inni, eða um kl. 9.30 leika svo Johnny and his Musical Mates fyrir dansi. Horft yfir Gimli úr flugvél. Fremst á myndinni er Betel, elliheimili V-íslendinga þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.