Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.1951, Blaðsíða 4
312
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
HIÐ MIKLA
Þ J ÓRSÁRHR AUN
KORTRISS af Þjórsárhrauni eftir Guðmund Kjartansson. Hraunið sjálft merkt með deplum, en upptiik þess hjá Tjörva-
felli merkt með hring.
ÞEGAR MENN fara um Flóa og
Skeið, verður ekki hjá því komist,
að sú spurning vakni upp hjá
manni, hvað eftir annað: Hvaðan
er þetta mikla hraun komið, sem
flætt hefur um þessar sveitir?
Þegar menn fara um sljettlendi
Flóans, undrast menn, að hraunið,
sem trryndar undirlagið þar, skuli
hafa rúnnið yfir svo flatt land, við-
stöðulaust í sjó fram, hafa komist
svo langt frá upptökunum, að sjálf-
ar eldstöðvarpar eru hvergi sýni-
legar.
Nýlega . hafa landsmenn verið
sjónarvottar að Heklugosi, sieð hve
hraunið komst skammt frá upp-
tökum sínum, áður en það storkn-
aði og stöðvaðist.
í íslandslýsingu Þorvaldar Thor-
oddsen, er að sjálfsögðu talað um
þennan hraunstraum, er hulið hefir
Skeið og Flóa, sem hinn mesta,
sem nú er sýnilegur á yfirborði
landsins.
íslandslýsing Þorvaldar Thor-
oddsen var, eins og kunnugt er,
yfirhtsrit. Hann einn hafði engin
tök á að eyða tíma og kröftum til
þess að grandskoða fjölmörg ein-
stök atriði í jarðfræði landsins. —
M. a. gafst honum ekki tími til að
ráða þá gátu, hvar upntök þessa
mikla hraunstraums hafa verið.
Þar sem upptökin eru, sýnilega ná-
lægt Veiðivötnum, nefnir hann
hraun þetta í ísiandslýsingu sinni,
Veiðivatnahraun. Hann segir m. a.:
„Enginn veit enn, með vissu, hvað-
an þessi stórkostlegu hraun eru
komin eða úr hve mörgum eld-
vörpum þau eru runnin?"
Á sumardaginn fyrsta, flutti
Guðmundur Kjartansson jarðfræð-
ingur mjög eftirtektarvert og
skemmtilegt erindi um hraun þetta.
í tíu ár hefur hann varið mörgum
tómstundum sínum til þess að
grandskoða svæði þetta, upptök
hraunsins, hve víðáttumikið það er
og hverjum breytingum þessi
hraunstraumur hefur valdið á Suð-
urlands-undirlendinu.
Jeg hlýddi á erindi þetta með
mikilli athygli, en hef síðar átt
tal við Guðmund, til þess að rifja
upp aðalatriðin úr niðurstöðum
hans, en þau eru svohljóðandi:
Iiann kallar hraunin Þjórsár-
hraun. Eitthvað af þessu samfellda