Börn og menning - 01.05.1998, Blaðsíða 10
IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR
BÖRN OG /aENN|N6
IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRETTIR IBBY FRETTIR
barnabókadaga á Álandseyjum 26.-28. september.
Efni ráðstefnunnar var það sama og í Nordisk blad
1997, Síðurnar eru segl og sögurnar skip. Dagskráin
var mjög fjölbreytt og fyrirlestrar frá öllum
Norðurlöndum. Iðunn Steinsdóttir, formaður Barna
og bóka, var fulltrúi okkar.
Hinn árlegi fundur deildanna árið 1998 var
haldinn í Kaupmannahöfn í mars síðastliðnum. Þar
var lagt til að íslenska deildin héldi næstu ráðstefnu
árið 1999 ef til þess fengist fjármagn. Ekki er búið að
ákveða yfirskrift hennar en uppástungur komu um að
tengja viðfangsefnið vesturferðum norrænna manna
eða sambandi norrænna þjóða við Irland eða
Orkneyjar. Á þessum fundi kynntu fulltrúarnir áhuga-
verðar nýjar barnabækur hverjir fyrir öðrum.
Undirrituð sat fundinn fyrir íslensku deildina og
kynnti þarna barnaljóðabækur Þórarins og Sigrúnar
Eldjárns. Ljóðabækur þeirra hafa verið þýddar á
dönsku á vegum Félags skólasafnskennara, sem
tilnefndi bækurnar til Norrænu barnabókaverðlaun-
anna 1998. Finninn Tom Eckerman, stjórnarmaður í
Finnlandsdeildinni, er fulltrúi í aðalstjórn IBBY.
Hann sagði frá undirbúningi heimsráðstefnunnar sem
haldin er annað hvert ár og nú á Indlandi. Það kom
fram á fundinum að mikill áhugi var meðal stjórnar-
manna deildanna að komast á þessa ráðstefnu.
Tækifæri til þess eru ólík. Frá Noregi, Svíþjóð og
Danmörku fara fjórir til fimm fulltrúar frá hverju
landi. Styrkir hafa fengist frá hinu opinbera og
útgefendum sem vilja nýta sér þetta tækifæri til þess
að kynna bamabókmenntir sínar í fjarlægum heims-
hluta. Formaður Barna og bóka, Iðunn Steinsdóttir
rithöfundur, fer væntanlega á ráðstefnuna, og þá á
eigin vegum. Fulltrúamir voru allir sammála því að
norræna samstarfið hefði nú þegar skilað miklu og
vonuðu að það myndi blómstra enn frekar í
framtíðinni.
Jónína Friðfinnsdóttir
Rétt er að vekja athygli á
tímaritinu Bookbird: World of
children’s books sem er eitt af
þekktustu alþjóðlegu tímaritum
um bamabækur og er gefið út af
IBBY. Blaðið kemur út
ársfjórðungslega. Þar er að finna
faglega umfjöllun um barna- og
unglingabækur frá öllum heims-
hornum auk frétta af þessum vettvangi. Hvert blað er
helgað vissu efni, til dæmis hafa síðustu þrjú hefti
fjallað um vísindaskáldskap fyrir börn, barnabók-
menntir í Afríku og manndómsvígslur margskonar í
barnabókum, það er sögur af leiðum til þroska og
skilnings á heimi hinna fullorðnu. Næsta hefti sem
kemur út í sumar fjallar um goðsagnir, töfra og
fantasíu.
Heimilisfang blaðsins er: Bookbird Subscriptions,
P.O. Box 807, Highland Park IL 60035-0807, U.S.A.
Fax: Bookbird Subscriptions (847)432-4038. (Fáið
upplýsingar um eldri blöð, sem einnig eru til sölu).
s
Ahugaverðar heimasíður
Umboðsmaður barna hefur fengið eigin heimasíðu:
http://www.umbam.is Einnig er hægt að senda rafpóst
til hennar: ub@umbarn.is
Valhöll: Samnorrænt net tileinkað menningu barna
og unglinga: Nordisk nætverk for börne- og
ungdomskultur. Áhugaverð og skemmtileg vefsíða.
http://valhalla.norden.org/
Heimasíða Sigrúnar: Þar má finna Disneyland,
Lególand o.fl.: http://www.treknet.is/sigge
Heimasíða G. Péturs: Þar má til dæmis finna
skemmtilega leiki fyrir böm og fullorðna.
http://www.itn.is/~gpetur/
Barnaefni: Sérlega skemmtileg og metnaðarfull
heimasíða frá Bókasafni Suður-Þingeyinga. Á bama-
síðunni má meðal annars sjá upplýsingar um álfa og
huldufólk, Farskóla Langföruls og Krákustigann.
Unglingasíðan er mjög vönduð með fróðleik um hitt
og þetta, til dæmis bókmenntir, íslenskt mál, landa-
fræði, náttúrufræði, trúarbrögð, stjórnmál, sögu
íslands, tónlist, myndlist og leiklist. Tekið er fram ef
síðurnar eru á ensku. http://www.nett.is/bokhus
Almanakið
13.-15. september 1998 verður haldin í Odense norræn
ráðstefna um leik bama. Áður hafa verið haldnar tvær
ráðstefnur um sama efni, fyrst í Stokkhólmi 1991,
síðan í Noregi 1994 og nú er komin röðin að
Danmörku. Ráðstefnan er haldin á Hótel H.C.Andersen
og nánari upplýsingar fást hjá: Kulturens börn,
Nybrogade 10, DK-1203 Köbenhavn K (tel. 45-3392
3040, fax 45-33923547). í tengslum við ráðstefnuna
heldur Center for kulturstudier, Odense universitet
rannsóknarþing þann 16. september 1998.
■<
T1
73
m-
73
5
w
<
m
73
m>
3
73
w
m
<
m
g.
H
w
w
-<
w
w
<
w
w
<
w
w
<
w
w
<
T1
g.
3
73
w
w
<
■n
g.
3
73
W
w
<
■n
g.
3
73
5
w
w
<
■n
73
m>
3
73
W
W
<
w
w
<
n
g.
3
73
W
w
<
g.
3
5
HIU.3HJ Aflfll HIJLL3HJ Aflfll HIUL3HJ Aflfll HIJLL3UJ Aflfll IIIJUL3UÍ Aflfll LIIJJL3UJ Aflfll Aflfll HIJJ.3HJ Aflfll HIJJL3HJ Aflfll HIJJL3HJ Aflfll HIJJL3HJ Aflfll
8