Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 48

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 48
Ritfregn FERÐ ÁN ENDA. ÁGRIP AF STJÖRNUFRÆÐI Ari Trausti Guðmundsson Isafoldarprentsmiðja 1992 Verð: 1950 kr. (pappírskilja) Færa má rök að þvf að stjömufræðin sé hentugasta greinin til að kynna raunvísindi á aðlaðandi hátt. Kemur þar margt til en ekki síst það að mörgum finnst næturhiminninn spennandi og stjörnufræðin sveipuð meiri vísindarómantík en aðrar greinar. Til skamms tíma voru það einkum sólstjörnur, stjörnu- þyrpingar, vetrarbrautir og önnur fjarlæg fyrir- bæri sem heilluðu fólk. En síðustu tvo ára- tugina hefur orðið gjörbreyting á þekkingu manna á reikistjörnunum; þar hafa opnast nýir, margbreytilegir heimar. Upplýsingar um reikistjömur sólkerfisins eru því í dag ekki síður spennandi fyrir áhugamenn um stjömu- fræði en það sem utar liggur. Talsvert hefur verið skrifað um stjörnufræði á íslensku og skal hér getið nokkurra rita. Vetrarbraut eftir Ásgeir Magnússon og Himingeimurinn eftir Ágúst Bjamason komu báðar út 1926. Hjörtur Halldórsson þýddi bækurnar Heimurinn okkar (ísl. útgáfa 1957) en þar er fjallað ítarlega um stjömugeiminn í síðasta kaflanum, og Uppruni og eðli al- heimsins (1951). Gísli Halldórsson samdi Til framandi hnatta (1958), sem fjallar einkunt um eldflaugar og geimferðir, en hann setti reyndar einnig fram (einn íslendinga) tilgátu í heimsfræði, Samdráttarheimar (1965). í alfræðasafni AB komu út Könnun geimsins í þýðingu Baldurs Jónssonar og Gísla Halldórs- sonar (1966) og Reikistjörnurnar í þýðingu Arnar Helgasonar (1967). Þá kom út orð- skýringarsafnið Stjörnufrœði - Rímfrœði eftir Þorstein Sæmundsson (1972) og þýddu bækurnar Nœturhiminninn (þýðing Guðrún Karlsdóttir, 1974) og Alheimurinn og jörðin (þýðing Ari Trausti Guðmundsson, 1981). Saga stjörnufræðinnar er að hluta rakin í Heimsmynd á hverfanda hveli (tvö bindi eftir Þorstein Vilhjálmsson, 1986 og 1987) og upphaf alheims í Saga tímans (þýðing Guð- mundur Arnlaugsson, 1990). Engin þessara bóka er samin sem kennslu- bók en kennsla hefur verið talsverð í stjörnu- fræði í framhaldsskólum, einkum síðustu tvo áratugina. Kennslubókin Stjörnufrœði, eftir þann sem þetta ritar, kom út í tveimur bindum (1981-1982). Að auki hafa margir kennarar tekið saman kennslufjölrit en tæmandi yfirlit yfir þau vantar og þeirra því ógetið hér. Ferð án enda er ríkulega myndskreytt bók með mörgum ljósmyndum og skýringarteikn- ingum í lit. I inngangi gerir höfundur grein fyrir því að hún sé hugsuð jöfnum höndum sem yfirlitsrit um stjörnufræði fyrir almenning og fyrir framhaldsskólanema. Hún gæti líka nýst sem ítarefni í efri bekkjunt grunnskóla; sonur minn 10 ára las kaflana um reiki- stjörnurnar og hafði gaman af. Bókin er þannig upp sett að höfundur fer með les- andann í ferð um sólkerfið, síðan til næstu sólstjama, þá út úr Vetrarbrautinni til fjar- lægra vetrarbrauta, og loks aftur til jarðar. Bókin skiptist í 15 kafla og henni fylgir ítarleg atriðisorðaskrá. I fyrsta kaflanum eru helstu grunnhugtök stjörnufræðinnar kynnt. Þar eru skilgreind hugtök eins og sólstjama, reikistjarna, himinhvel, stjörnuhnit, eigin- hreyfing og sýndarhreyfing, frumefni, massi, þrýstingur og þyngdarkraftur. Þá er rætt um stjömumerkin, hvemig þau em hugsuð, fjar- lægðarhugtök í stjömufræði, birtustig stjama og hitastig, lit og ljósafl þeirra. I öðrum kafla er fjallað um könnun geims- ins og helstu viðburði geimferðasögunnar. Þar er rætt um eldflaugar, geimför, geimstöðvar, geimskutlur og gervitungl. í þriðja kafla er gerð grein fyrir þekkingu manna á tunglinu og rætt um tunglmyrkva, sólmyrkva og kvartila- skipti tungls. í tjórða kafla er fjallað um Venus, en þar hefur verulega bæst við þekk- ingu manna nú allra síðustu árin (frá Mag- Náttúrufræðingurinn 62 (1-2), bls. 42-44, 1993. 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.