Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1998, Síða 16
HARRI Heikkinen
hvernig má kafa dýpra í eigin sköpunarmátt.
Þeir eru mjög opnir fyrir því að taka við því
sem aðrir hafa fram að færa - og þeir eru
ekki eins líkamlega formaðir, ekki strangt
mótaðir."
Um hvað fjallar „Night,“ verkið sem þú
ert að æfa með flokknum?
„Jorma Uotinen skrifaði það upphaflega
fyrir sex konur og einn karldansara, en mitt
helsta verkefni hér er að æfa verkið fyrir
þann flokk sem þið eigið og hér verður það
dansað af sex konum og fjórum körlum. Mér
sýnist að það muni koma vel út.
Hugmyndina að þessu verki sótti Jorma í
mjög gamlan finnskan þjóðsöng þar sem
sagan segir frá konu sem átti í ástarsam-
bandi fram hjá eiginmanni sínum - á 8. eða
9. öld. A þeim tíma voru voru þungar refs-
ingar í Finnlandi fyrir konur sem gerðust
sekar um svona hluti. Þær voru lokaðar inni í
vegg þegar kastalar voru byggðir.
Þetta er sagan sem var kveikjan að verk-
inu en sjálft verkið fjallar um það að konurn-
ar komi út úr veggjunum. Astæða fyrir því
er sú að karlarnir hafa raskað sálarró kvenn-
anna. Þær ákveða að standa mjög þétt sam-
an og það fer smám saman að þrengja að
körlunum þangað til þeir þurfa sjálfir að fara
inn í vegginn.
Ég er mjög hrifinn af þessu verki og það
er dálítið merkilegt að Jorma samdi það vor-
ið 1995 og það var í fyrsta sinn sem hann
skrifaði verk fyrir konur. Fram að þeim tíma
hafði hann alltaf verið að fjalla um karlork-
una.“
Nú ert þú æfingastjóri. Hvað er það?
„Þegar dansflokkur, eins og Islenski dans-
flokkurinn í þessu tilfelli, er að byrja að æfa
nýtt verk, kem ég til að skoða hvers konar
dansarar eru í flokknum, finn leiðir til að að-
laga verkið að þeim dönsurum og legg á ráð-
in um það hvemig sé best að þjálfa hvem og
einn dansara. Það er ekki nóg að senda verk-
ið bara til flokksins og láta vaða. Nútímaball-
ett er allt öðravísi en klassískur ballett, þar
sem oft er verið að endurtaka hreyfingar frá
einum flokki til annars og löngu komin hefð á
það hvernig eigi að sýna þau ævintýri sem
verið er að segja. í nútímaballett eru hins
vegar allt aðrar hreyfingar og verið að túlka
mjög ólíka hluti. Karakterarnir era oft
margþættir og flóknir, en ekki einhliða
prinsessur eða prinsar eins og í ævintýran-
um. Hver og einn dansari verður að geta
túlkað svo miklu fleiri hliðar og tilfinningar í
DANSARAR MEÐ STERK
TENGSL VIÐ JÖRÐINA
Einn virtasti ballettæfingastjóri Finna, Harri Heikkinen,
dvaldi hér ó landi við skipulag æfinga Islenska dans-
flokksins fyrir Listahátíð. SUSANNA SVAVARSDOTTIR
ræddi við Harri um hans eigin feril, Islenska dansflokk-
inn og stöðu nútímaballettsins.
r
ISLENSKI dansflokkurinn er nú á
ferðalagi um Lettland og Litháen með
verkið Útlaga, sem hann áður sýndi á
sviði Borgarleikhússins, sýningu sem
óhætt er að segja að marki nokkur
tímamót hjá flokknum. Flokkurinn
hefur gengið frá samningi um að sýna
uppfærslur sínar í Borgarleikhúsinu,
íslenskum dönsuram við flokkinn hefur fjölg-
að og hinn nýi listdansstjóri, Katrín Hall,
hefur kynnt þá stefnu sem flokkurinn mun
vinna eftir undir hennar stjóm.
Þegar maður svo spyr um nánustu framtíð
- er auðvitað sýning flokksins á Listahátíð
1 ‘98 næst á dagskrá.
Jú, nú þegar er byijað að æfa á fullu -
verk eftir danshöfunda sem ekki era nein
aukanúmer. Eitt af þeim verkum sem verða
sýnd á Listahátíð er „Night“ eftir hinn
finnska Jorma Uotinen. Hann er okkur ís-
lendingum að góðu kunnur eftir að dans-
flokkur hans sýndi hér á Listahátíð fyrir fá-
um áram, við einróma lof og fögnuð. En í ár
eigum við flokk sem er í stakk búinn að
dansa sjálfur verk Uotinens.
Hægri hönd og æfingastjóri Jorma Uotinens
er Harri Heikkinen. Þeir hafa fylgst að frá
1986 þegar Harri fór að vinna við dansflokk
Jorma, Helsinki City Theatre Company.
1 Harri yfirgaf þó flokkinn sem fastur æfinga-
stjóri 1991 og starfaði næstu þrjú árin sem
lausráðinn æfingastjóri með dansflokkum í
sínu heimalandi og erlendis. En árið 1994
réðst hann, ásamt Jorma til Finnska þjóðar-
ballettsins 1 Óperuhúsinu í Helsinki og hefur
verið æfingastjóri þar síðan, auk þess sem
hann hefur haldið áfram að vinna með minni
flokkum, sem æfingastjóri, í sjónvarpsupp-
færslum og við tískusýningar. Helsta sérsvið
hans er nútímaballett og dansútfærslur.
íslenskir og finnskir
dansarar líkir
Harri kom hingað til lands til að útsetja og
aðlaga „Night“ að íslenska dansflokknum og
þegar ég spyr hann hvemig honum lítist á
flokkinn í dag, segir hann: „Mjög vel,“ eins
og það komi honum á óvart.
„Þetta hefur verið óskaplega skemmtilegur
tími,“ bætir hann við. „Ég hef líka verið að
velta því fyrir mér hvað það er sem gerir
finnska og íslenska ballettdansara svona líka.“
Era þeir eitthvað frábragðnir dönsurum
frá öðram löndum?
„Já. Ég sé að dansarar þessara tveggja
þjóða bera með sér svo sterk tengsl við nátt-
úruna og jörðina. íslenskir og finnskir dans-
arar era miklu fremur jarðbundnir en loft-
kenndir eins og svo algengt er með ballett-
dansara. Ég segi oft um okkur Finna að við
séum nýkomnir út úr skóginum. Þeir hafa,
eins og íslenskir dansarar, mjög gott innsæi.
Þeir eru ekki bara að forma hreyfingar eftir
skipun, heldur fara þeir miklu dýpra til að
skapa þá sögu sem þeir eru að segja.
Arangurinn sem flokkurinn hefur sýnt á
þeim fáu dögum sem ég hef unnið með hon-
um er miklu betri en ég átti von á og það er
auðvitað alltaf mikið gleðiefni.“
Þegar þú talar um jarðbundna og loft-
kennda dansara, ertu þá að meina að önnur
tegundin sé betri í nútímaballett, hin í klass-
ískum?
„Nei. Ef þú skoðar rússneska, bandaríska,
jafnvel suður-evrópska dansara, þá era þeir
mjög loftkenndir og svífandi. En það hefur
ekkert með tækni að gera, heldur túlkun. Is-
lensku dansaramir hafa þekkingu á því
nútímaballett sem þýðir að hann þarf oft að
búa yfir gríðarlegri tækni og sveigjanleika.“
Á ekki klassiskan
bakgrunn
Hvað um þig sjálfan. Varst þú ballettdans-
ari?
„Nei. Ég byrjaði í danstímum þegar ég
var sextán ára og byrjaði þá í djassdansi. Ég
bjó fram að unglingsáranum í litlu þorpi
lengst norður í Finnlandi þar sem var engin
danskennsla en flutti síðar til stærri borgar
þar sem ég dreif mig í dansinn. Ég fikraði
mig smám saman yfir í klassískan dans, jafn-
vel klassískan ballett en Jorma var fyrsti
raunveralegi dansmeistari minn í nútíma-
dansi. I skólun minni var hann bæði gagn-
fræðaskóli og menntaskóli - en á endanum
útskrifaðist ég frá Carolyn Carlsson í París.
Þangað sendi Jorma mig vegna þess að þau
kenna sömu tækni og stíl. Jorma hafði sjálf-
ur unnið með Carolyn í tíu ár áður en hann
sneri aftur til Finnlands til að taka við stjóm
ýmissa ballettflokka þar.“
Hvaða tækni og stfll eru það?
„Það er tækni sem er byggð á Alvyn
Nicholas aðferðinni. Það er til Alvyn
Nicholas dansskóli í Bandaríkjunum en sjálf-
ur dó hann árið 1993. Hann er hinn mikli
meistari þessarar aðferðar, en Jorma hefur
auðvitað þróað sína eigin útgáfu af henni frá
því að hann vann með Carolyn Carlsson.
Þetta er nútímatækni, sem er grundvölluð
á fjóram hornsteinum; rými, lögun, tíma,
'16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. MARZ1998