Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1996, Síða 11
Mynd/Guðný Svava Strandberg.
Þab var eins og vid manninn mcelt, strax dag-
inn eftirstód ungurmaöurá tröppunumy spurbi
hvortþetta vceri ekki húsió þarsem frúin dó og
sagdi vib komum héma þrírmeb lögfrcebingi á
morgun, verburþá einhver hér?
fyrstu þrjá áratugina, eftir það mátti hún
bera frúnni kopp að og frá. Allan tímann
mataðist frúin í rúminu; lét færa sér meðöl
kvölds og morgna og stundum vildi hún
láta lesa fyrir sig, hagræða koddum í rúm-
inu eða láta slökkva og kveikja ljósin eða
slökkva eða kveikja á útvarpinu eða það
þurfti að hugga hana þegar hún fór að
veina. Annars var hún bara þarna ein á
róli, vinnukonan í húsinu, ráðskonan, hús-
hjálpin, það var aldrei gert neitt með slíka
titla; hún borðaði standandi í eldhúsinu,
þurrkaði af, fægði, sópaði og ryksugaði
þartil ryksugan sjálf bilaði blessunarlega,
henni hafði aldrei fallið við þennan hávaða-
belg sem síðan þá hafði fengið að rykfalla
sjálfum sér ti! háðungar inni í skáp og síð-
an lét hún sér nægja að sópa og skúra
hvern krók og kima í húsinu vikulega, líka
útidyratröppurnar, jafnvel þegar frost og
fannfergi var mest sleppti hún því ekki að
hreinsa og hvítskúra útidyratröppurnar; það
var einu sinni hennar starf og fyrir það
fékk hún laun, óhagganlegar hundrað og
fimmtíu krónur á ári.
Já, þetta var lífið. Áratug eftir áratug.
Hún heyrði lítið af umheiminum nema þeg-
ar systir hennar ein sem líka bjó í höfuð-
borginni kom í heimsókn og drakk með
henni kaffi i eldhúsinu og barmaði sér; hún
var alltaf að kveinka sér eitthvað hún Inga
systir, henni fannst allt ómögulegt í veröld-
inni; hún sagði fréttir af systkinunum, tveir
bræður voru báðir einbúar, hvor í sínum
firði fyrir vestan, þijú af systkinunum
bjuggu saman á ríkisjörð þartil yngsti bróð-
irinn drukknaði i lendingunni neðan við
bæinn, eftir það voru þau bara tvö. Ein-
hver þeirra voru ennþá viðloðandi herkastal-
ann á ísafirði, komin í einkennisbúning
Hjálpræðishersins, mamma náttúrlega fyrir
löngu dáin, — allt fannst Ingu systur þetta
eitthvað hræðilega raunalegt og hún jesús-
aði sig mikið og hristi hausinn og stundum
féllu tár af hvörmum hennar niður í kaffi-
bollann og það var hreinlega hálfniðurdrep-
andi að fá hana í heimsókn, það fór allt
úr skorðum, frúnni var ekki um það gefið
að heyra mannamál og fór alltaf að veina
þegar svo stóð á, en svo veiktist hún Inga
eitthvað á sinninu og fór á hæli og ekkert
hafði til hennar spurst í meira en tíu ár
og það var allt í lagi. En svo fór frúnni í
húsinu að hraka, það varð að lyfta henni
úr rúminu þegar hún skipti um lök og sæng-
urver og hún var eiginlega alveg hætt að
nærast, hún varð að biðja Garðar kaup-
mann um að minnka innkaupaskammtinn
af sólgijónum, súrmjólk, fiskibúðingi, rúg-
brauði og kartöflum — og læknirinn kom
og sagði að þetta væri nú bara aldurinn
að færast yfir húsfrúna og ekkert við því
að gera; hann var líka að vestan og hafði
gaman af að rifja upp gömlu vestfirskuna
þegar hann kom í þetta hús og skiptist á
orðum við húshjálpina á leiðinni út; — æjá
hún er hætt að bleyta smjörið blessuð frú-
in, ætli hún fari ekki að beija nestið. Sjálf-
ur var hann orðinn gamall og sagði: —
þetta á fyrir okkur öllum að liggja, það eru
samt ekki allir jafn heppnir að hafa konu
einsog þig til að sjá um sig, sagði hann,
og svo lét hann borga sér þijúhundruð krón-
ur fyrir komuna, tvöfalt árskaup vinnukonu.
Svo dó gamla frúin fyrir þremur dögum,
vaknaði ekkert um morguninn, og þá kom
læknirinn aftur. — Hefur þú samband við
ættingjana? spurði hann, og hún svaraði
nei, ég held hún eigi enga slíka. — Allir
eiga ættingja, sagði læknirinn þá, að
minnsta kosti þeir sem ekki deyja snauðir.
Og það var einsog við manninn mælt, strax
daginn eftir stóð ungur maður á tröppun-
um, spurði hvort þetta væri ekki húsið þar-
sem frúin dó og sagði við komum hérna
þrír með lögfræðingi á morgun, verður þá
einhver hér? — Nei, sagði hún, hér verður
enginn nema ég. Og þá brosti ungi maður-
inn vinsamlega, honum fannst þetta ágæt-
lega svarað, kvaddi.
Og svo komu þeir. Fóru um allt, hristu
hausinn yfir gluggum, allt einfalt sögðu
þeir, það er fúi í þessu, fundu sprungu í
vaski sem hafði verið frá því hún kom í
húsið, skipta um það sögðu þeir, og út með
þetta teppdrasl áður en varður farið að
sýna íbúðina! Þeir virtust ekkert taka eftir
því að öll gólf voru hrein og skúruð, öll
teppi rækilega bönkuð, að hvergi var ryk-
arða, nei, þeir tóku ekki einu sinni eftir
henni sjálfri fyrren þeir voru búnir að spíg-
spora um allt í meira en klukkutíma og
fylla allt af tóbaksreyk og voru að búa sig
undir að fara, þá var einsog rynni af henni
huliðshjálmur, þeir spurðu: — hver ert þú?
— Ég hef séð um frúna, sagði hún.
— Jæja, það er víst ekki meira hægt að
gera fyrir hana úrþví sem komið er, sagði
einn þeirra og brosti elskulega.
— Nei, sagði hún, og í þögninni sem
fylgdi fann hún að þeir biðu eftir að hún
færi svo þeir gætu lokað húsinu; voru bún-
ir að slökkva ljósin. En þeir vildu allt fyrir
hana gera, spurðu hvort hún ætti nokkra
peninga inni fyrir húshjálpina, og hún svar-
aði nei, ég var búin að fá borguð launin,
og þeir buðust líka til að keyra hana þang-
að sem hún vildi fara, en það var alltof flók-
ið, enda vissi hún ekkert hvert hún vildi
fara, svo hún afþakkaði kurteislega og þeir
héldu þá á brott, hver á sínum bfl, en hún
gekk af stað, framhjá Garðarsbúð, götuna
allt á enda, og stóð nú hér á vegamótunum.
Henni fannst að hún yrði að komast yfir
götuna, en það gafst aldrei færi, því að í
hvert sinn sem vegurinn virtist auður birt-
ist nýr bíll úti við sjóndeildarhringinn.
Höfundurinn er rithöfundur.
KRISTJÁN J. GUNN-
ARSSON
LOKA-
SPRETTUR
Ferðbúinn bíður rakkinn.
Berar tennur. Urrar
er sestu öfugt í hnakkinn.
Heljartaki þú heldur í taglið
og hefur upp spora.
Hleypur Bleikur
trylltur. Reistur makkinn.
Blakar eyrum. Brettist grönin.
Bylgjast mönin.
Hvítmatar hægra auga.
Á hinu vaglið.
Hlaupið blindingsleikur
um ófærur urða og fora
ofaní kviksyndið,
dökkvan jarðarsora.
Með glæsibrag skaltu
til grafar
geiglaus þora.
Höfundur er fyrrverandi fræðslustjóri.
RAGNHILDUR
ÁGÚSTSDÓTTIR
ÞRÍHYRN-
INGUR
Þríhyrningur er eitthvað
sem hefur þrjú horn
þrjár hliðar.
Þeir geta verið
hvassir, gleiðir eða réttir.
Það er líka til
annars konar þríhyrningur
ástarþríhyrningur.
Hann er að sumu leyti
eins og aðrir þríhyrningar
með þrjú horn
þrjár hliðar.
Ástarþríhyrningurinn
er hins vegar
ósýnilegur, óáþreifanlegur
eitt horn þjáist
tvö ekki.
FYRSTI
VANGA-
DANSINN
Fyrsti vangadansinn
var sætsúr á bragðið.
I hikandi skrefum
hring eftir hring eftir hring.
Fyrsti vangadansinn
var sterkur á bragðið.
Með höfuð í hálsakoti,
hring eftir hring eftir hring.
Síðustu tónarnir
voru beiskir á bragðið
þegar faðmlögin hættu,
í undrandi brosi.
Hver getur gleymt
slíkum dásemdardansi?
Höfundur er nemandi í Víðistaóaskóla
í Hafnarfirði.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. JÚLÍ 1996 1 I