Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1996, Page 6
KYRRÐ, TÓNLIST
OG ÍHUGUN Á
NORÐLENSKU
SUMARKVÖLDI
Sumartónleikar á Noróurlandi veróa haldnir í tíunda
sinn frá 11. júlí tilll. áqúst. ORRI PÁLL ORMARS-
SON kynnti sér dagskrá hátíóarinnar oq ræddi vió
framkvæmdastjórann, Hrefnu Haróardóttur.
SUMARTÓNLEIKAR á
Norðurlandi hafa verið við
lýði í áratug. Fyrstu árin var
tónleikahaldið með einföldu
sniði en umfangið hefur
jafnt og þétt aukist og að
þessu sinni verða tónleikarn-
ir þrettán talsins í sex kirkj-
um á tímabilinu frá 11. júlí til 11. ágúst.
Hrefna Harðardóttir framkvæmdastjóri
tónleikanna segir að þeir þyki nú sjálfsagð-
ur og ómissandi þáttur í menningarlífinu
norðan heiða en framkvæmd, skipulagning
og fjármálastjórn Sumartónleikanna fara
fram hjá framkvæmdastjóra í Akureyrar-
kirkju en heimamenn á viðkomandi stöðum
utan Akureyrar hafa umsjón á hverjum
stað. Alls hafa tíu kirkjur á norður- og
norðausturlandi verið með á liðnum níu
árum og mun sú ellefta bætast við nú í
sumar. „Mikil gjafavinna og styrkir frá
einkaaðilum og fyrirtækjum hefur ávallt
verið stór þáttur og mun láta nærri að hátt
i fimmtíu aðilar leggi hönd á plóginn til
að gera þetta verkefni að veruleika sem
sýnir glögglega áhuga norðlendinga,“ seg-
ir Hrefna.
Kirkjur hafa einatt verið vettvangur
Sumartónleika á Norðurlandi. „Kirkjur ís-
lendinga eru í mörgum tilfellum ekki bara
fagur staður ástundunar messugjörða og
guðsorðs, heldur líka samkomuhús menn-
ingar og lista og hefur ein af grundvallar-
hugmyndum tónleikahaldsins frá upphafi
verið að skapa skilyrði til þess að heima-
menn og ferðamenn megi hlýða á vandaða
tónlist og njóta um leið kyrrðar og íhugun-
ar í guðshúsi á norðlensku sumarkvöldi,"
segir Hrefna.
Afbragðs listamenn
Að sögn framkvæmdastjórans verður
að venju vandað mjög til dagskrárinnar í
sumar og mæta bæði innlendir og erlendir
tónlistarmenn til leiks — „allt afbragðs
listamenn." Aðgangur er sem fyrr ókeypis
en sú stefna var mörkuð þegar í upphafi.
Hjónin Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleik-
ari og Hörður Áskelsson orgelleikari hefja
leikinn á þessu tíu ára afmælisári og verða
fyrstu tónleikarnir í Dalvíkurkirkju
fimmtudaginn 11. júlí, daginn eftir koma
Karel Gunnar Zeuthen
Paukert Idenstam Schneider
þau fram í Þóroddsstaðarkirkju og laugar-
daginn 13. júlí verða þau á ferð í Reykja-
hlíðarkirkju. Lokatónleikarnir verða síðan
í Akureyrarkirkju sunnudaginn 14. júlí.
Allir tónleikarnir hefjast kl. 21 nema þeir
síðastnefndu sem hefjast kl. 17.
Á efnisskrá verða leikin verk fyrir selló
og orgel frá barokk til rómantíkur, meðal
annars eftir Vivaldi, J.S. Bach, Hándel,
Saint-Saéns og Rheinberger;_ íslensk
kirkjulög eftir Jón Leifs, Pál ísólfsson,
Sigvalda Kaldalóns, Áskel Jónsson og Árna
Thorsteinsson og orgelverk eftir Couperin,
J.S. Bach, Saint-Saéns og Jónas Tómasson.
Föstudaginn 19. júlí taka Margrét Bóas-
dóttir sópransöngkona og Kristinn H.
Árnason gítarleikari upp þráðinn í Snartar-
staðakirkju kl. 21. Verða þau öll aftur á
ferð í Reykjahlíðarkirkju daginn eftir á
sama tíma. Margrét er frumkvöðull Sumar-
tónleika á Norðurlandi ásamt Birni Stein-
ari Sólbergssyni organista í Akureyrar-
kirkju. Á efnisskrá verða verk eftir Barri-
os, Scarlatti, Tarrega, J.S. Bach og Al-
beniz, auk íslenskra þjóðlaga.
Orgelleikarinn Karel Paukert efnir til
tónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn
21. júlí kl. 17. Hann er fæddur í Tékkósló-
vakíu en gerðist bandarískur ríkisborgari
fyrir hartnær aldarfjórðungi. Fjölmörg tón-
skáld hafa samið orgelverk sérstaklega
fyrir hann og hefur listamaðurinn kynnt
þau á fjölmörgum tónleikaferðum víða um
heim. Paukert var um tíma óbóleikari hjá
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir
Pasquini, J.S. Bach, Bellini, Vierne, Liszt,
Franck, Alain, Eben og Ives.
HORÐUR Askelsson og Inga Rós Ingólfsdóttir verða fyrst til að kveðja sér
hljóðs á Sumartónleikum á Norðurlandi að þessu sinni.
Kammerkór Langholtskirkju
Kammerkór Langholtskirkju er einnig
þátttakandi í Sumartónleikum á Norður-
landi. Ríður hann á váðið í Raufarhafnar-
kirkju föstudaginn 26. júlí, daginn eftir
verður kórinn í Reykjahlíðarkirkju og
sunnudaginn 28. júlí kemur hann fram í
Akureyrarkirkju. Fyrri tónleikarnir tveir
heíjast kl. 21 en þeir síðustu kl. 17. Stjórn-
andi kórsins er Jón Stefánsson.
Á efnisskrá verða íslensk þjóðlög í útsetn-
ingu Hafliða Hallgrímssonar og Hjálmars
H. Ragnarssonar. íslenskt sálmalag í út-
setningu Jóns Þórarinssonar og verk eftir
Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Jón Nor-
dal, Mist Þorkelsdóttur, Kjartan Ólafsson,
Jón Ásgeirsson og Þorkel Sigurbjörnsson.
Annar erlendur gestur á hátíðinni er
danski fiðluleikarinn Elisabeth Zeuthen
Schneider sem heldur tónleika í Reykjahlíð-
arkirkju laugardaginn 3. ágúst kl. 21 og í
Akureyrarkirkju sunnudaginn 4. ágúst kl.
17. Hún hefur leikið einleik með öllum
helstu hljómsveitum Danmerkur og hlotið
fjölda verðlauna fyrir leik sinn. Þá hefur
Zeuthen Schneider haldið einleikstónleika
og leikið kammertónlist í Bandaríkjunum
og á íslandi, meðal annars með Tríói
Reykjavíkur.
Á efnisskrá verða verk eftir Prokofiev,
Áskel Másson, Nordentoft og J.S. Bach.
Sænski orgelleikarinn Gunnar Idenstam
slær botninn í Sumartónleika á Norðurlandi
á þessu sumri með tónleikum í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 11. ágúst kl. 17. Árið
1984 hlaut hann fyrstu verðlaun í spuna-
leik í Grand Prix orgelkeppninni í Chartres
í Frakklandi og síðan hafa fylgt tónleika-
ferðir um heim allan, sjónvarpsþættir og
hljóðritanir á tíu geislaplötum og lofsamleg-
ir dómar gagnrýnenda. I ferð sinni til Is-
lands mun Idenstam jafnframt hljóðrita
geislaplötu og leika á tónleikum í Hallgríms-
kirkju.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir
J.S. Bach og Dupré, auk útsetninga á nor-
rænum fiðlulögum, þjóðlögum og hjarðljóð-
um eftir Idenstam og tónsmíða eftir hann
sjálfan.
Eugenia Ratti
heldur söng-
námskeið
ÍTALSKA óperusöngkonan og söng-
kennarinn Eugenia Ratti heldur nám-
skeið fyrir söngvara og söngnema í
Reykjavík sem hefst 14. ágúst næst-
komandi. Hún kemur hingað á veg-
um Jóhönnu G. Möller söngkonu.
Eugenia Ratti
kemur nú hingað til
námskeiðahalds í
12. skipti. Það er því
orðinn stór hópur
íslenskra söngvara
sem notið hefur leið-
sagnar hennar á
þessum námskeið-
um, auk þess sem
margir íslendingar
Eugenia Ratti hafa á undanförnum
árum stundað nám
hjá henni á Ítalíu. Næsta vetur munu
a.m.k. fimm íslendingar vera þar við
nám.
Að þessu sinni mun Ratti dvelja
hér í rúmar tvær vikur. Á námskeið-
inu verður um einkatíma að ræða
Ratti er þekkt í heimalandi sínu
og víðar, bæði sem söngkona og
söngkennari og söng á sínum tíma
við Scala óperuna í Mílanó og í óperu-
húsum víða um heim. Hún starfar
nú sem prófessor við tónlistarháskól-
ann Giuseppi Nicolini í Piacenza, tón-
listarskólann Mario Mangia í Fior-
enzuola d’Arda (Pc) og Accademia
d’Arte í Citta di Vogera. Kennslu-
greinar hennar eru auk raddþjálfun-
ar, túlkun á leiksviði og óperuleik-
stjórn.
Allar frekari upplýsingar um nám-
skeiðið veitir Jóhanna G. Möller
söngkona.
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6.JÚLÍ 1996