Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 35

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 35
er. Ekki gat ég heldur séð að ungböm væru með bleyjur. Alls staðar var fólk, bograndi á hrís- gijónaekmnum, með þvott eða ávexti í va- skafötum eða körfum á höfðinu, menn að bera vatn, maður með kippur af lifandi hænsnum. Allir brostu. Jemberbúinn ber alla skapaða hluti eða flytur þá á reiðhjólum eða í hjólhestavögn- um, „bejaks", sem em þriggja hjóla létti- vagnar stignir af karlmanni. Þeir era al- gengir hvarvetna og notaðir til vöm- jafnt sem farþegaflutninga. Um hádegisbilið ákvað ég að snúa við. Tvær konur höfðu boðið mér inn í hús sín en ég afþakkaði. Það hafði mér verið ráð- lagt vegna þess hve fólk yrði vandræðalegt og vissi ekki hvað það ætti af sér að gera, þæði maður boðið. Næsta dag hafði ég myndirnar undir höndum og ákvað að gefa fólkinu þær, þeim sem ég næði til. Varð nú mikill fögnuður og ég tók fleiri myndir. í áveituskurðinum var reyndar bóndi að baða uxana sína í þetta skiptið. Endurtók þetta sig í nokkra daga. Konur tóku að skipta um föt á börn- um og ungar stúlkur greiddu sér vandlega. Öllum fannst ævintýralegt að fá mynd af sér. Gæti ég sjálfsagt dvalið þama enn við myndatökur, hefði ég ekki átt bókað far heim til íslands. Áður en ég kvaddi þetta indæla fólk, þáði ég heimboðið. Var það mikil lífs- reynsla. í húsinu var lítið borð og fjórir garðstólar. Breitt heimagert' rúmstæði. Að öðra leyti ekkert. Ekkert á veggjum. Engin dýna eða sængurföt. Bert steingólf. í loftinu var ein neonljósapera, var það eina ljósið, og engar rafmagnsinnstungur sá ég. En fjölskyldan var glöð, að eiga húsaskjól, klæði og mat er það sem skiptir meginmáli. Eftir allt þetta fór ég ósmeyk með mynda- vélina í bæinn. Bæði ég böm um að fá að taka mynd, varð ég þegar umkringd stóram hópi. Bæjarbömin voru ekki eins feimin, brostu, veifuðu og hoppuðu jafnvei upp til þess að véra alveg viss um að vera með á myndinni. Nokkur þeirra sögðu: Money, money. En ég hristi ævinlega höfuðið og sagði: Foto, foto. Erfitt var þó að finna þau aftur til þess að færa þeim mynd. Sjónvörp, myndavélar, ísskápar, húsgögn og margt fleira sem okkur þykja sjálfsagðir hlutir era tæpast fyrir millistéttina, aðeins þá æðstu. BÓKAHUNGUR Að lokum vil ég segja frá heimsókn í háskólann í Jember. Deildarstjórinn, sem sýndi mér staðinn, var sorgmæddur á svip- inn þegar við gengum um sárafátæklegt bókasafnið, sem með öllu er óflokkað. Er- lend tímarit örfá, fræðibækur, nokkrar ástr- alskar skáldsögur og enskur skáldskapur frá Viktoríutímanum. Það var allt og sumt. Stúdenta þyrstir svo mjög í bækur að þrír bókaverðir gæta þeirra fáu bóka sem þar eru. Annars er við búið að bækumar hyrfu út um gluggann. Deildarstjórinn sagði að breyta þyrfti af- stöðu fólks til lestrar. Algengt er að foreldr- um finnist börnin vera að eyða tímanum til einskis, sitji þau og lesi. Einnig þyrfti að efla áhuga bama og unglinga á bókum. Bókmenntaarfleifð er lítil og á meðan rit- frelsi ríkir ekki, er erfítt um vik. Að öðru leyti var gaman að ganga um nýjar byggingar háskólans. Bjartar skóla- stofur miðaðar við 25 nemendur. Sæmileg kennslutæki. Iðjagrænt umhverfi. í glæsilegri nýrri ritfanga- og bókaversl- un í Jember var fátt bóka, mestmegnis kennslubækur enda verða ferðamenn að taka með sér lestrarefni. Þó vora þarna indónesísk ævintýri á ensku og Ástríkur á indónesísku. Þama starfar íjöldi afgreiðslufólks. Öll afgreiðsla tekur langan tíma. Sérhver hlutur er skrifaður niður, sérstakur gjaldkeri tekur við greiðslu og sá þriðji pakkar inn og af- hendir vörana. Mikil skriffinnska, en eins og einhver sagði: „Við verðum að skapa atvinnu handa fólkinu okkar.“ I Jember var víða aðstaða til ljósritunar. í undarlegustu húsakynnum voru ljósritun- arvélar, oft eina rafmagnstækið, og kostaði blaðsíðan tæpar tvær krónur. Frá svo ótal mörgu er að segja en mál er að linni. Eitt er þó víst. Eigi ég þess nokkum kost, fer ég aftur til Indónesíu. ÝMISLEGT UMINDÓNESÍU Vegabréf er nauðsynlegt en vegabréfs- áritun er óþörf fyrir Islendinga. Gjaldmiðill er rúpíur. 300 rúpíur eru um það bil 10.000 Isl. kr. í Indónesíu er hitabeltisloftslag og aðeins tvær árstíðir, þurr og vot. Sú vota hefst venjulega í október og endar í apríl, sú þurra er frá maí til september. Meðalraki I Alvarlegt augna- blik og ekki laust við tortryggni þeg- ar greinarhöfund- urinn smellir af mynd. uðu eyjar Balí sem flestir hafa heyrt getið. Þangað koma m.a. Ástralir, ítalir, Þjóðveij- ar og Japanir. Þar hefur margt breyst. Minnir borgin Denpasar helst á Hawaii eða spænskar baðstrendur. Balí er þó enn heill- andi. Einn ungur Balíbúi, kominn á kaf í ferðamannaiðnaðimn, orðaði það þó svo: Andar hrísgijónaekranna gráta. Aðeins símastaurar og hótel vaxa nú á ekrunum okkar.“ Á. paradísareyjunni Lombok má þó enn finna dularfullan anda Asíu, þar sem fjallið Rinjani (12.300 fet) gnæfír í tiginni ró hita- beltisins. Bobobdur á Mið-Jövu er stærsta Búddaklaustur Suðaustur-Asíu og frægasti ferðamannastaður Indónesíu. (Byggt 750-850 f.kr.) Eldfjallið Bromo er ein tilkomumesta sýn á Austur-Jövu. Eldjallið rís upp af eyðilegri sléttunni umlukið hrauni og sandi. Bromo er gígur innan í gíg. Eitt fjögurra fjalla sem hafa myndast inn hringlaga sigdals hins foma Tengger-eldfjalls. Skömmu fyrir sólar- uppkomu hlykkjast ferðamennimir í langri röð eftir Himnastígnum svonefnda upp á gígbarminn. Horfa á sólina koma upp og heillast af litbrigðum náttúrunnar. Til foma vora mannfómir færðar guðunum til dýrðar enda engum lífs auðið sem fellur niður í kraumandi gígínn. Nú era guðunum færðir ávextir og blóm. Áður fyrr vora landbúnaðarafurðir aðal- útflutningasvaran svo sem gúmmí, þurrkað- Bömin eru böðuð og þvotturinn þveginn í áveituskurðum. Grasakona með jurtaseið: -Má ef tíl vill blanda þér yngingardrykk? Warung kallast veitingahús fátæka mannsins. Þar fæst ósvikinn, rétt kryddaður, indónesískur matur. Að snæða kvöldverð undir beru lofti í birtu frá kerósín- lampa er ævintýralegt. Jakarta er um 81%; meðalhiti á daginn er 27°C en um nætur 25°. Trúfreisi ríkir. Um 90% Indónesíubúa era Múhameðstrúar. Er trúin mildari en í öðram Múhameðstrúarríkjum og bera konur ekki blæjur. Beðist er fyrir fimm sinnum á dag. Moskan er staðurinn þar sem karimennirnir hittast fyrst og fremst því eftir bænargjörð fá þeir sér reyk og spjalla saman. Hrísgijón eru aðalfæða landsmanna. In- dónesar eru þriðju stærstu hrísgijónafram- leiðendur í heimi næst á eftir Kína og Ind- landi. Síðustu árin hefur framleiðslan aukist um 50% með því að nota gjöful afbrigði hrísgijóna, áburð, áveitur og skordýraeitur. Framleiðslan er þó rétt nægilega handa öll- um þessum fólksfjölda og sívaxandi fjöldi krefst æ meiri framleiðslu. Flestir borða hrísgijón þrisvar á dag. Á Jövu og Balí era tvær uppskerar á ári, jafnvel fleiri, þannig er hægt að fæða 2.000 manns á hveijum ferkílómetra, meira en þekkist nokkurs stað- ar í heimi. Fyrst era akramir plægðir með vatnabuffalóum. Plógamir era heimagerðir og einfaldir. Hrísgijónaplönturnar eru settar niður með handafli þar sem fólk stendur í vatni upp á hnjám, þá vinnur það baki brotnu í orðsins fyilstu merkingu. Ferðamenn flykkjast til hinnar margróm- ir kókoshnetukjamar, kakó, hnetur, soja- baunir og maís. Nú er aðalútflutningsvaran olía og jarðgas og koma % olíunnar frá Sumötra. Við þá framleiðslu vinna þó ekki margir, yfír 90% iðnverkamanna era starf- andi í litlum fyrirtækjum sem framleiða salt, kókoshnetuolíu og húsgögn. Kakó er vaxandi útflutningsvara svo og sykur. Jakarta er höfuðborgin með yfir 7 milljón- ir íbúa, Surabya með rúmlega 2 milljónir, Semarang yfir 1 milljón og Bandung með 1,5 milljónir íbúa. Alla þessar borgir era á Jövu. Flestir Indónesar búa í litlum landbún- aðarþorpum sem hvert um síg hafa sína eigin siði og venjur. Yfr 250 tungumál era töluð í Indónesíu. Ríkismálið er indónesíska, náskylt mala- ysku, sem töluð er á Súmötru. Öll menntun fer fram á indónesísku í skólunum og flest- ir íbúar skilja þá tungu, þó ekki allir. Ríkismálið er auðlært og borið fram eins og það er skrifað. Áherslan er þó oft á öðra atkvæði. Málfræði er lítil sem engin. Sagn- ir tíðþeygjast ekki og sögnin að vera er ekki til. Nafnorð era eingöngu til í eintölu (orðið er jafnvel endurtekið ef maður vill fá fram fleirtölu) og hvorki þau né lýsingar- orð fallbeygjast. Þegar Indónesíubúar stafa orð, er framburður starfrófsins undarlega líkur íslensku, a-ið og errið era t.d. eins. Selamat pagi = góðan dag (morgunn); terima kasiti = þökk fyrir; satu duga, tiga, empat, lima, = einn, tveir, þrír, Qórir og fimm. Höfundur býr í Ástralíu Heimildir: „Indonesia - a Travel Survival Kit“ eftir Joe Cummings, Susan Forsyth, John Noble, Alan Samagalski og Tony Wheller. (Lonely Planet Publicati- on Australia, Jan 1990.) „Culture Shock - Indonesia" eftir Cathie Draine og Barbara Hall. (1986 Times Editions Pte Ltd.) ■ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. DESEMBER 1992 35

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.