Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1991, Side 16
RANNSOKN I R A I SLA
Umsjón: Sigurður H. Richter
M
Stækkuð mynd af sárinu á kýlaveika
fiskinum.
Fiskur með kýlaveiki af völdum þeirrar undirtegundar kýlaveikibakteríunnar sem
finnst hér á landi. Sár er á fiskinum milli kviðugga og raufarugga og blæðingar
í roðinu.
Bakteríusjúk-
dómar í eldisfiski
rið 1986 var Rannsóknadeild fisksjúkdóma
stofnuð við Tilraunastöð Háskólans að Keldum
til þess að stunda rannsóknir á fisksjúkdóm-
um. Hlutverk deildarinnar er þríþætt: Sjúk-
dómsgreining og ráðgjöf, reglubundið heil-
brigðiseftirlit með eldisfiskum og svo rann-
sóknir á sviði fisksjúkdóma.
Sjúkdóma, sem upp koma í eldisfiski,
má greina í smitsjúkdóma, næringarsjúk-
dóma og sjúkdóma vegna eldisaðstæðna. I
fiskeldi á íslandi hafa smitsjúkdómar, og
þá einkum bakteríusjúkdómar, valdið nokkr-
um usla. Hér verður fjallað um bakteríusjúk-
dómana.
KÝLAVEIKI
Bakterían Aeromonas salmonicida veldur
kýlaveiki og eru til þrjár undirtegundir af
henni, misjafnlega sjúkdómsvaldandi. Sjúk-
dómseinkenni eru oft aðeins lítilsháttar
trosnun á uggum og roði við eyruggastæði.
Þegar sjúkdómurinn ágerist sjást blæðingar
víðar, bæði í innri líffærum og utan á fiskin-
um. Opin sár myndast á roði og á stærri
fiskum sjást stundum vökvafylltir hnúðar,
„kýli“, undir roði.
Undirtegundin A. saimonicida achro-
mogenes er algeng í laxeldi á íslandi og
hefur fundist í 22 eldisstöðvum, aðallega
strandeldisstöðvum með ísöltu vatni. Ut-
breiðsla kýlaveikibakteríunnar hefur aldrei
verið athuguð í villtum fiski við strendur
landsins.
Nýrnaveiki
Bakterían Renibacterium saimoninarum
veldur nýrnaveiki í laxfískum. Smitið getur
borist inni í hrognum frá sýktu foreldri til
Bakteríusjúkdómar hafa
valdið verulegum usla í
íslensku fiskeldi.
Eftir EVU
BENEDIKTSDÓTTUR
Fjöldi sýna
Vikur
Línuritið sýnir hversu langan tíma það getur tekið að rækta nýrnaveikibakler-
íuna. Þegar sýking er á lágu stigi kemur smitið stundum ekki fram fyrr en eftir
allt að 12 vikna ræktunartíma en flest tilfellin koma þó fram eftir 7-10 vikur.
Þegar um talsverða eða mikla sýkingu er að ræða er ræktunartími oftast styttri
og flest tilfellin eru komin fram eftir 6 vikur.
afkvæma. Sjúkdómurinn er oft hæggengur
og fiskar geta borið bakteríuna í sér allt
lífið án nokkurra einkenna. Við vissar að-
stæður getur sjúkdómurinn blossað upp og
valdið stórfelldum dauða. Fiskar verða þá
oft dökkir á lit, augun útstæð og í innri
líffærum sjást hvítir hnútar. Sé sjúkdómur-
inn langt genginn eru líffærin þrútin.
Eftir að fiskeldi fór að byggjast upp hér
á landi hefur nýrnaveiki verið greind nokkr-
um sinnum. Meðal annars kom í ljós haust-
ið 1985 að í þremur stórum hafbeitarstöðv-
um var mikið af undaneldisfiski sýkt. Úr
villtum undaneldisfiski hefur nýrnaveiki-
bakterían fundist í 23 tilfellum úr 8 ám
víðsvegar um landið síðan 1986.
RAUÐMUNNAVEIKI
Bakterían Yersinia ruckeri veldur rauð-
munnaveiki, og er þekkt sem sjúkdómsvald-
ur bæði í fersku vatni og sjó. Sjúkdómurinn
dregur nafn sitt af einkenni sem stundum
verður vart, roða í kjafti sem orsakast af
bkíðingum. Sjúkir fiskar verða ofl dokkir
með útstæð augu og blæðingar á búk og í
innri líffærum. Sjúkdómsvaldandi áhrif
bakteríunnar eru sögð mest við 15—18°C
en lítil undir 10°C. Oft blossar veikin upp
ef fiskarnir eru undir álagi, t.d. vegna ann-
arrar sýkingar.
Rauðmunnaveiki hefur aðeins orðið vart
einu sinni hér á landi, í júlí 1990 í strand-
stöð. Smitið varð ekki rakið til neinnar
þeirra seiðastöðva sem fiskarnir í strand-
stöðinni komu úr.
AðrarBakteríur
Á fiski í sjókvíum og strandkerum mynd-
ast stundum stór grunn sár á roði þegar
fiskurinn nuddast í næturnar eða þröngft
er um hann. Með slík sár getur fiskurinn
litla vörn sér veitt gegn bakteríum úr um-
100%
N D I
hverfinu, þótt þær séu meinlausar ósködduð-
um físki. „Tækifærissýklar“, en svo eru
þeir sýklar nefndir sem aðeins geta sýkt
lífverur sem eiga erfítt með að beijast við
sýkingu, geta átt greiða leið inn í vefina.
Við rannsóknir hefur komið í ljós að oft
finnast sömu bakteríutegundirnar í þessum
fiskum. Á Rannsóknadeild fisksjúkdóma er
þessum bakteríustofnum haldið til haga til
frekari rannsókna á sýkingarmætti þeirra.
Meðhöndlun Bakteríu-
SJÚKDÓMA
Meðhöndlun nýrnaveiki með sýklalyfjum
gerir takmarkað gagn miðað við kostnað.
Rauðmunnaveiki og kýlaveiki má aftur á
móti halda í skefjum með sýklalyijum serfi
gefin eru með fóðri. Lyljagjöf hefur þó
marga ókosti í för með sér: Sýklalyf eru
dýr, veikustu fiskarnir neyta ekki lyfjafóð-
ursins vegna lystarleysis og mikil hætta er
á að bakteríurnar verði ónæmar fyrir lyfjun-
um. Auk þess er fiskurinn ekki söluhæf
matvara fyrr en lyfin hafa horfið úr hold-
inu, tíminn er háður eldishitanum. Hér á
landi er miðað við 50 eða 100 daga eftir
að lyfjagjöf er hætt.
BÓLUEFNI
Til eru bóluefni á markaðnum sem hafa
gefið góða raun gegn rauðmunnaveiki. Gegn
kýlaveiki eru til bóluefni sem ekki þykja
gefa viðunandi vörn. Vonandi verður ráðin
bót á því á næstu árum. Nokkuð langt er
í land með nothæft bóluefni gegn nýrna-
veiki vegna þess hve sérstæður sjúkdómur-
inn er.
Smitvarnir
í búgrein eins og fiskeldi ganga hrogn
og fiskar kaupum og sölum milli stöðva og
talsvert er um að villtur fískur eða hafbeitar-
fiskur sé tekinn til undaneldis. Einnig ber-
ast sýklar auðveldlega inn þar sem sjór eða
sjóblöndun eldisvatns kemur við sögu. Þann-
ig geta smitsjúkdómar borist inn í eldis-
stöðvarnar úr náttúrunni og magnast þar.
Smitvarnir eru því sérlega mikilvægar í fisk-
eldi. Má þar nefna sótthreinsun hrogna og
skipulagða leit að sýklum í undaneldisfiski
og eldisfiski, sem dýralæknar og Rann-
sóknadeild fisksjúkdóma annast.
Rannsóknir
Á Rannsóknadeild físksjúkdóma að Keld-
um fara um þessar mundir fram rannsóknir
á kýlaveiki- og nýrnaveikibakteríunum.
Kannað er hvernig kýlaveikibakterían berst
inn í fiskinn og hvort selta eða hiti hafa
áhrif á gang sjúkdómsins. Reynt er að finna
vírkt bóluefní gegn kýlaveiki, en þekking á
þeim eiginleikum bakteríunnar, sem sjúk-
dómnum valda, eru forsenda bóluefnagerð-
ar. Tekist hefur að einangra nokkur af þeim
meinvirku efnum sem bakterían gefur frá
sér við sýkingu og rannsaka áhrif þeirra.
Greining nýrnaveikibakteríunnar með
hefðbundnum aðferðum tekur að meðaltali
6 vikur, en getur tekið talsvert lengri tíma.
Á Keldum hefur verið þróuð hraðvirkari
greiningaraðferð á nýrnaveiki og byggir hún
á ensímmerktum mótefnum. Með henni má
greina bakteríuna á einum degi. Er nú ver-
ið að prófa öryggi aðferðarinnar svo hægt
verði að taka hana upp á næstunni við reglu-
bundið eftirlit.
Höfundur er örverufræðingur á Tilraunastöð
Háskóla (slands í meinafræði að Keldum.
ELISA
Ræktun
hópur1 hópur 2 hópur 3 hópur 4 hópur 5
Hraðvirk aðferð (ELISA) og hefðbundin ræktunaraðferð voru notaðar samhliða
á fimm hópa af sýktum laxfiskum. I hópi 1 voru seiði, hópi 2 klakfiskar en hóp-
um 3-5 matfiskar. Samanburðurinn sýnir að hraðvirka aðferðin er næmari en
ræktunin í fjórum hópanna.
16
Fi’lóT/i