Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1991, Qupperneq 15
mongólskan þjóðflokk, sem. býr í
skinntjöldum eða einföldum timb-
urhúsum og lifir á hreindýrarækt
og fiskveiðum. Það kom mér á
óvart hvað fólkið var ófeimið. Sér-
staka athygli vöktu skínandi fagr-
ir útsaumaðir skinnfeldir sem fólk-
ið klæddist, fjór- til sexfaldir til
að halda á sér líkamshita.
Græningjar hefðu verið hér út
úr myndinni líkt og „appelsína á
hjóli“! Frumbyggjar teljast 40-
50.000, en fer fækkandi. Hart er
sótt að frumlífkerfinu með hernað-
armannvirkjum og ásókn í verð-
mæta málma og kol. Fólkið er
bláfátækt. Mér fannst ég vera
jólasveinninn sjálfur, þegar ég dró
upp sælgæti, kúlupenna, límmiða
og sitthvað smálegt sem við tókum
með okkur. Slíkur var fögnuður
a barnanna.
Dansleikir og íþróttakeppnir
Krakkarnir skemmtu sér vel í
Salekhard. Vorfrí var í skólunum,
en þeir voru opnir sem tómstunda-
miðstöðvar. íslenski hópurinn sló
í gegn í körfubolta! Og dansleikir
og diskótek voru á kvöldin. Rússn-
esku hermennirnir slógu í gegn í
dansinum! Ég skoðaði geysistóra
hermannaskála og lék mér að því
að laiíma amerískum sígarettum
og kúlupennum undir kodda her-
mannanna!
Lífsbarátta er hörð í bruna-
gaddi og ég tók eftir að fólk um
fertugt var orðið mjög þreytt og
gamalt. Síberíubúar lesa mikið. I
herbúðunum var bókasafn upp á
25.000 bindi, um 8.000 bindi í
skólabókasafninu. Vandamál hjá
síberískum unglingum sá ég ekki,
enda mjög erfitt að nálgast vín
og bjórinn skammtaður. Og ekki
er eiturlyfjum fyrir að fara.
Steik í morgunmat
Alltaf var verið að punda í okk-
ur mat 7 þremur heitum máltíðum
á dag. í Vorkuda var kjöt í allar
máltíðir - jafnvel í morgunmat!
En í Salekhard er nóg af góðum
físki og veitingahús með góða físk-
rétti, sem kom okkur mjög á
óvart. Nóg er af eplum, appelsín-
um og grape ávöxtum frá Úkra-
ínu, en grænmeti sést vart. Þeir
könnuðust við síld og sardínur frá
íslandi. Og þeir fá töluvert af nið-
ursoðnum mat frá Portúgal. Sjálf-
ir sjóða þeir niður ber og sveppi.
Alls staðar er boðið upp á te.
Krakkarnir sögðu „sykur með tei“,
en allir drykkir éru geysilega sykr-
aðir með grófum, ljósum púður-
sykri. Gosdrykkir sáust ekki, en
rauður, dísætur ávaxtadrykkur
var mikið á boðstólum.
Með herflutningavél
til Moskvu
Brottförin frá Salekhard var
ævintýraleg, eins og flest í þess-
ari ferð. Við vorum sent til Moskvu
með skrúfuvél eða herflutninga-
vél, sem var 5 tíma á leiðinni.
Kaðalstigi á afturhlera var land-
gangur. Farangri okkar var stafl-
að á mitt gólf og látinn renna frá
borði um afturhlera. Við vorum
60 sem sátum þarna í 5 klst. hálf-
bogin á bekkjum meðfram veggj-
um. Þeir sem sátu aftast voru
hríðskjálfandi úr kulda, en við sem
sátum fremst - í svitakófi. Og að
sjálfsögðu var engin þjónusta um
borð. 1 lendingu voru rússnesku
krakkarnir mjög illa haldin af hellu
fyrir eyrum. Við hin björguðum
okkur með að tyggja tyggigúmmí
í gríð og erg.
í hálfan mánuð var maður lok-
aður frá umheiminum. Engin er-
lend blöð eða fréttir. En ég held
að ekkert okkar hefði viljað missa
af þessari ævintýraferð sem verð-
ur lengi í minnum höfð. Fyrir utan
mig voru í ferðinni: Gunnar Freyr
Steinsson og Leifur Þór Leifsson
frá Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og
Auður Elfa Kjartansdóttir frá
Hlíðaskóla í Reykjavík.
Oddný Sv. Björgvins
Upplýsingar um ævintýraferðir
til Síberíu hjá: THE ADVENT-
URE CLUB, 15 Kosygin Street,
Moscow. Sími: 939-83-25. Fax:
938-11-92. í Salekhard er veiði-
klúbbur fyrir ferðamenn. Umboðs-
aðili hans í Noregi er: Per M.
Morken, N-2100 Skarnes. Sími:
066-633-66.
Borg lífsgleði og menningar
Amsterdam:
Schiphol nýtur sívaxandi vinsælda sem tengiflugvöllur
Lífinu tekið með ró á veitingahúsi á brú yfir einu af sikjum
Amsterdam.
MIKIL uppbygging stendur
fyrir dyrum á Schiphol-flug-
velli í Amsterdam, enda er
áætlað að fjöldi ferðamanna,
sem fara um flugvöllinn, tvö-
faldist fyrir aldamót. Það er
margt sem laðar ferðamenn-
ina að. Schiphol er einn af
bestu tengiflugvöllum Evrópu
og býður ennfremur upp á
mikla ferðamöguleika í Hol-
landi og nágrannaríkjunum.
Þó er engin ástæða til að leita
langt yfir skammt, því Amster-
dam er ein af áhugaverðustu
og líflegustu borgum álfunnar.
Schiphol er fimmti stærsti
flugvöllur Evrópu miðað við
fjölda farþega. Þaðan er flogið
til um 200 borga í meira en 90
löndum, þar af til 100 áætlunar-
staða í Evrópu.
Schiphol nýtur sívaxandi vin-
sælda sem tengiflugvöllur, ekki
aðeins vegna fjölda áætlunar-
staða heldur einnig vegna
fríhafnarinnar sem er talin ein
sú allra besta í Evrópu. Vöruúr-
valið þar er meira en í nokkurri
annarri fríhöfn í álfunni og með-
alverðið það lægsta. Stefnt er að
því að halda verðinu um 20-25%
lægra en gengur og gerist í versl-
unum í Hollandi.
Þá byggjast vinsældir Schiphol
ekki síst á því að aðeins ein flug-
stöð er á flugvellinum. Skemmri
tíma tekur fyrir farþega að kom-
ast í framhaldsflugið en til að
mynda á Heathrow-flugvelli í
Lundúnum, sem hefur fjórar
flugstöðvar (svo ekki sé minnst
á þá ferðamenn sem þurfa að
fara á milli flugvalla, Heathrow
og Gatwick).
Öll þjónusta er til fyrirmyndar
á Schiphol, auðvelt að rata um
þessa einu flugstöð og mun minni
líkur eru á töfum á flugi vegna
of mikillar umferðar.
Stækkun í samræmi við
fjölgun farþega
Tæplega 60.000 farþegar að
meðaltali fara um flugvöllinn
daglega og áætlað er að þeir
verði tvöfalt fleiri fyrir aldamót.
Því hefur verið hafist handa við
uppbyggingu á flugvellinum,
fjölga á álmum í áföngum eftir
því 'sem umferðin um völlinn
eykst.
Samkvæmt áætlunum Flug-
leiða verður Amsterdam einn af
þremur helstu viðkomustöðum
flugfélagsins í Evrópuflugi,
ásamt Kaupmannahöfn og Lund-
únum. Gert er ráð fyrir að Flug-
leiðir flytji um 30.000 farþega
milli Keflavíkur og Schiphol í ár.
Búist er við að farþegar í tengi-
flugi, sem hingað til hafa mest
farið um Kaupmannahöfn og
Lundúnir, fari í vaxandi mæli um
Schiphol-flugvöll og noti hol-
lenska flugfélagið KLM til fram-
haldsflugs. Til þessa hafa íslend-
ingar einkum notfært sér áætlun-
arferðir félagsins til fimm borga
á Spáni og í Portúgal.
Land túlipana
Schiphol býður upp á marga
aðra möguleika en framhaids-
flug. Kjörið er að ferðast um
Holland, skoða þar vindmyllur,
túlípanaakra (túlipanar eru ein
af helstu útflutningsvörum Hol-
lendinga) og vinaleg þorp sem
einkenna landið. Þægilegt er að
aka um Holland og stutt er til
Belgíu, Þýskalands og Frakk-
lands. Hægt er að leigja reiðhjól
til að notfæra sér hjólabrautirn-
ár, sem liggja víðsvegar um
landið og eru samtals 10.000 km.
Þá er hvarvetna hægt að taka
smáhýsi eða sumarhús á leigu.
Frá Schiphol er skotferð til
Amsterdam, sem dregur nafn
sitt af fljótinu Amstel og stíflu
(dam) sem reist var í sjónum við
ströndina til að hægt yrði dæla
sjónum landmegin í hafið. Þannig
hafa Hollendingar stækkað land
sitt um 20 af hundraði. Schiphol
er til að mynda fjórum metrum
undir sjávarmáli.
Feneyjar norðursins
Amsterdam er borg lífsgleð-
innar, hlýleg og alþjóðleg. íbú-
arnir eru um 700.000 og munu
vera af um 125 þjóðemum.
Amsterdam-búar eru vingjarn-
legir og stoltir af borg sinni, lið-
legir í að greiða ferðalöngum veg
og fræða þá um borgina. Hol-
lenska er erfið í framburði en
óþarft er að kvíða fyrir tjáskipta-
erfiðleikum því langflestir
Amsterdambúar tala ensku, enda
byija þeir að læra hana í skóla
á sjö ára aldri. Frönsku- óg
þýskukunnátta er einnig almenn.
Um Amsterdam liggja um 100
km af síkjum, enda er borgin oft
nefnd „Feneyjar norðursins".
Elstu síkin voru grafín fyrir skip
og báta fyrir fjórum öídum þegar
kaupmennska tók að blómgast í
borginni.
A síkjunum eru um 2.400 hús-
bátar, þar sem fólk býr allt árið.
Flestir þeirra hafa rafmagn og
vatn og frárennslið fer beint í
síkin. Bátarnir eru æði misjafnir,
sumir glæsilegir, aðrir hrörlegir.
Bátafólkið greiðir skatta af hý-
býlum sínum eins og aðrir en
hefur ekkert heimilisfang nema
eitthvað í líkingu við: „Á móti
Xgötu nr. 13“.
Tilvalið er að fara í skoðunar-
ferð um síkin á báti og virða
fyrir sér byggingarnar á bökkun-
um, sem eru fjölbreytilegar og
oft með afar skrautlega hús-
gafla. Sumar þeirra voru reistar
á 15. öld og tæplega 7.000 á
16.-18. öld.
Göturnar í miðborginni eru
þröngar og umferðin mikil - hjól,
bifreiðar og sporvagnar oft á
sömu götunni. Því er ráðlegra
að nota sporvagna borgarinnar
fremur en leigu- og einkabíla^
Reiðhjólin eru litlu færri en íbú-
arnir og setja mikinn svip á götu-
lífið.
Líf og list
Mörg af frægustu málverkum
veraldar eru í Amsterdam og eitt
af söfnunum er tileinkað Vincent
van Gogh. Alls eru 42 söfn í
borginni og 140 listhús og er því
af nægu að taka fyrir myndlistar-
unnendur. Að auki er boðið upp
á um 40 tónleika og leiksýningar
að meðaltali á degi hverjum.
Þeir sem vilja skemmta sér
hafa úr mörgu að velja. í borg-
inni eru á áttunda hundrað veit-
ingahúsa af ýmsum toga, um
1.400 kaffíhús og krár, auk 36
dansstaða. Hollendingar hafa
haldið nánum tengslum við Indó-
nesíu, fyrrum nýlendu sína, og í
Amsterdam eru hátt á annað
hundrað indónesískra veitinga-
húsá. Sælkerum er ráðlagt að
fara á einn þeirra og fá sér
„rijsttafel", hrísgijónahlaðborð
með allt að 25 smáréttum. Þeir
ættu að finna þar sitthvað sem
þeir líkar.
Reyndar má líkja borginni allri
við góðan indónesískan veitinga-
stað; í Amsterdam er úrvalið nóg
og allir ættu að finna þar ýmis-
legt við sitt hæfí.
Dæmigerð götumynd í Ainsterdam: hjól, sporvagnar og bílar
á sömu götunni.
Montelbaans-turninn, sem var hluti af varnarkerfi Amsterdam.
Nú er vatnshæð síkjanna stjórnað frá turninum.
*
Sumaráætlun Flugleiða:
Sætaframboð í Evrópuflugi eykst um 22,5%
FLUGLEIÐIR gera ráð fyrir að farþegar í millilandaflugi félags-
ins verði um 12% fleiri í ár en í fyrra. Þessi áætlun byggist eink-
um á því að Amsterdam hefur bæst við áætlunarstaði flugfélags-
ins og búist er við fjölgun erlendra farþega. Sætaframboðið í
Evrópufluginu eykst um 22,5% á árinu.
í áætlunum Flugleiða er gert
ráð fyrir 658 þúsund farþegum í
millilandaflugi á árinu og þar af
ferðist um helmingur þeirra á fjór-
um mánuðum frá júní og út sept-
ember. Auk þess sem Amsterdam
bætist við áætlunarstaðina verður
nú í fyrsta sinn flogið allt árið
milli Stokkhólms og Baltimore.
Þessi flugleið hefur gefist vel og
nýtur hún einkum vinsælda á
meðal Skandinava. Þá verður
flogið til tveggja nýrra áætlunar-
staða í sumar, Hamborgar og
Zurich.
í sumar fljúga Flugleiðir til 20
áætlunarstaða, tveggja í Banda-
ríkjunum og átján í Evrópu og á
Grænlandi. Gert er ráð fyrir að
farþegum fjölgi verulega í áætlun-
arfluginu til og frá Frankfurt,
París og Vínarborg, en fækki í
Lúxemborgar- og Stokkhólms-
fluginu.
Flugleiðir hafa nú í fyrsta sinn
gefíð út vandaða ferðabók, þar
sem fjallað er um lönd og borgir
sem félagið flýgur til. Þar eru
einnig upplýsingar um hótel, bíla-
leigur og önnur fyrirtæki á sviði
ferðaþjónustu sem Flugleiðir hafa
gert samninga við. Bókinni fylgir
verðskrá. Hægt er að fá bókina
á öllum söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum félagsins og
hjá ferðaskrifstofum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. APRÍL 1991 15