Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1991, Page 13
iML
MGLEIDIR
íslenski hópurinn fyrir framan tjöld frumbyg-gjanna.Á efri myndinni sést eldamennska hjá frumbyggjunum, en þeir buðu okkur upp
á máltíð.
ÍSLENSKIR
LANDKÖNNUÐIR
í SÍBERÍU
UM miðjan mars lagði fjögurra manna sendinefnd upp frá íslandi
- kennari og þijú 15 ára ungmenni - áleiðis á slóðir, áður óþekkt-
ar af Islendingum. Flogið var til Moskvu og lagt í 36 klst. lestar-
ferð til Vorkuta, stærsta kolanámubæjar Síberíu - og aftur í lest
yfir Úralfjöll til Salekhard Asíumegin. Og þau voru ekki ein -
220 unglingar frá norðlægum löndum voru með í ferð. Öll á leið
á hátíð norræns æskufólks í Síberíu.
- Stóðust þínar hugmyndir um
Síberíu, Matthías? „Alls ekki! Ég
hafði ímyndað mér dapurlegt land,
íbúa með „nefið niður í maga og
munnvikin í brjóstvasanurn", en
sú hugmynd stóðst engan veginn.
Fólkinu líður vel þarna. Og eftir
ferðina eru það kynnin við þetta
gestrisna og elskulega fólk sem
standa upp úr.“
Virkileg ævintýraferð
- Stóðst dagskráin? „Nei“, seg-
ir Matthías hlæjandi. „Reyndar sá
ég aldrei neina dagskrá og ýmis-
legt sem talað hafði verið um,
stóðst ekki. Engir hundasleðar
sáust og ég sá ekki Gulag-safnið,
þó að krakkarnir laumuðu sér
þangað. En þetta var ævintýraferð
með óvæntum uppákomum! Vissu-
lega erfið á stundum, en í upp-
hafi ferðar sagði ég við krakkana:
Við skulum ekki gagnrýna! Við
förum til að upplifa og öðlast
reynslu. Þetta voru okkar vígorð!
Og við kvörtuðum ekki þó að
ýmislegt færi úr böndum. Þvert á
móti var mikið hlegið, sungið og
dansað.
Við komum til Moskvu 17.
mars. Daginn sem kosningarnar
voru. Við sáum ótrúlega langar
biðraðir við verslanir, en engar
óeirðir. Uppi á Lenínhæðum horfð-
um við yfir uppljómaða Moskvu,
fallegustu borg sem ég hef séð.
Kvöldið eftir lögðum við síðan af
stað, norður til Vorkuta - 220
unglingar, fararstjórar og blaða-
mannalið.
Það var mikill viðburður fyrir
Sovétmenn að halda þessa hátíð.
I hvorugri borginni, Vorkuta eða
Salekhard, liöfðu sést svona marg-
ir útlendingar áður. Hópurinn var
forsíðufrétt með inyndum í dag-
blöðum borganna, bæði í Vorkuta
og Salekhard. Franskt sjónvarps-
lið og finnskir blaðamenn voru líka
með. Islensku krakkarnir voru
mikið í viðtölum. Mesta athygli
vakti þegar Auður Elfa sagðist
hafa séð 7 eldgos - hvort sem hún
var nú að stríða þeim með því!
Lestarferð í 36 tíma!
I 2 nætur, heilan dag og fram
að hádegi komudags gisti hópur-
inn rússneska svefnvagna, á ódýr-
asta farrými. Þrengslin voru mikil
og snyrtiaðstaðan skelfileg! í raun
sváfu 70 krakkar saman í einni
þyrpingu. Skilrúm voru engin í
vögnunum, en hópurinn var í
þremur vögnum. En þrengslin
urðu til þess að liðið hristist rosa-
■¥
i
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. APRÍL1991 13.