Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.1990, Side 8
Flugstöðin í Keflavík. Arkitekt: Húsameistari ríkisins, Garðar Halldórsson. Hér var staðið að verki með listrænum metnaði og byggingin getur talist táknræn fyrir
þá nýsköpun sem orðin er í íslenskri húsagerð á síðustu árum. Myndtextar eru irá Lesbók.
fslenskur arkitektaskóli
er nú nauðsynlegur
rkitektar á íslandi eru nú um 230 talsins.
Fjöldi þeirra hefur meira en tvítugfaldast á
50 árum. Haldi þessi fjölgun áfram næstu
50 árin má reikna með að arkitektar verði
orðnir um 1.000 að tölu upp úr miðri. næstu
Á síðasta ári var þess
minnst, að 50 ár voru
liðin frá stofnun^
Arkitektafélags íslands,
en raunar ná samtök
arkitekta aftur til 1926.
Á samkomu í tilefni
afmælisins, hélt
formaður félagsins ræðu
um stöðu íslensks
arkitektúrs og er hún birt
hér ásamt myndum af
nokkrum verkum
íslenskra arkitekta frá
síðustu árum.
Eftir STEFÁN
BENEDIKTSSON
öld.
Arkitektar móta þann ramma sem vort
ídaglegt líf hrærist í. Þeir skipuleggja byggð
°og opin svæði, hanna byggingar og garða,
innréttingar, húsgögn og lausamuni.
Lífsþægindi og ánægja fólks eru háð því
hversu vel arkitektar leysa verkefni sín. Góð
menntun arkitekta er því stórt samfélags-
legt hagsmunamál.
Saga íslenskra arkitekta er ekki löng.
Það er fyrst á þessari öld sem íslendingar
leita háskólamenntunar í arkitektúr. 1918
útskrifaðist fyrsti arkitektinn, Guðjón
Samúelsson. 1940 voru háskólamenntaðir
arkitektar 10 talsins, 1950 voru þeir 11,
1960 17, 1970 62 og 1980 137. Nú eru
íslenskir arkitektar um 230 talsins. Reiknað
er með að mennta þurfi um 15 arkitekta
árlega til að mæta nauðsynlegri endurnýjun
og fjölgun í stéttinni í samræmi við áætlaða
fólksfjölgun og hagvöxt fram yfir aldamót.
Um aldamótin yrðu arkitektar hér á landi
þá um 320.
1926 var stofnað Byggingarmeistarafé-
lag íslands með aðild háskólamenntaðra
arkitekta og annarra sem að hönnun bygg-
inga stóðu. 1934 var síðan stofnað Félag
íslenskra arkitekta og 1936 Akademíska
arkitektafélagið. Þessum tíðu félagamynd-
unum lauk með stofnun Húsameistarafélags
íslands í maí 1939 en þá voru hin félögin
Sambýlishús við Hæðargarð í Reykjavík. Arkitekt: Vífíll Magnússon. Athyglis-
vert hús þar sem form og litir haldast í hendur.
Innan úr Epal-húsinu við Faxafen. Arkitekt: Manfreð Vilhjálmsson. Arkitektúr i
háum gæðaflokki, jafnt að utan sem innan.
lögð niður og starfsheitið arkitekt var lögg-
ilt. 1956 breytti félagið síðan um nafn og
kallaðist uppfrá því Arkitektafélag íslands.
Örðugt er að gera sér grein fyrir hlutverki
arkitektúrs í dag, örðugra en áður; það,
gerir hin flókna samfélagsgerð. Allt fram á
þriðja áratug þessarar aldar var hlutverk
arkitektúrs hreint og klárt. Arkitektúr var
til þess að úpphefja og fræða almenning
með lærðri notkun algildra tákna í bygg-
ingu. Þeir sem áttu fjármagnið byggðu.
Arkitektúr bar uppi og umlukti alla menn-
ingu. Fyrst leitaði á hugsandi menn sú
spurning hvað arkitektúr sé. En af þeirri
leit spratt svokallaður nútíma arkitektúr.
Þróun mannsandans er meinstríðið fyrir-
bæri í því að hún er aldrei samfara þróun
daglegs lífs þó hvorugt verði úr samhengi
slitið.
Sú listastefna í mynd- og byggingarlist
sem kennd er við nútímann var langt á
undan sínum samtíma. Byggingar frá þess-
um tíma eru margar hverjar eins og frá
öðrum hnetti í samanburði við aðra hönnur
eins og t.d. bíla. Þegar það samfélag serr
nútímalist var ætluð varð til, var listastefn-
an sjálf í raun um garð gengin. Því spyija
menn sig en’n hvað arkitektúr sé. Svarið et
þekkt en að finna því stað í nútímanum ei
erfiðara. Enn sem fyrr er arkitektinn ábyrg-
8