Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1981, Page 8
■ m
heillar mig og,
Um
SIGURLAUGU
RÓSINKRANZ
Sigurlaug hefur valiö sér starfsvettvang erlendis og kemur aöeins
annaö veifiö heim til íslands.
söngkonu
sem býr ásamt
börnum sínum
í Stokkhólmi,
heldur konserta
í Svíþjóð og
víðar og hefur
tekizt að lifa
af list sinni.
Meöal þess, sem Sígurlaug er meö á
döfinni er hljómplata, þar sem hún
syngur m.a. Ijóö eftir fööur sinn, sem
hún hefur þýtt á sssnsku.
Sigurlaug í konsertkjólnum (sjá einnig
á forsíðu) sem Gróa Guðnadóttir kjóla-
meistari hannaöi og Sigrún Jónsdóttír
batiklistakona skreytti. Meö kjólnum
ber Sigurlaug íslenzkt stokkabelti.
Fyrirsögnin ætti aö vera vel viö hæfi,
þvi hún var á sínum tíma ort um
Sigurlaugu Rósinkranz — aö vísu ekki á
gömlum heimaslóöum hennar norður í
Skagafiröi, heldur úti í Þýzkalandi. En í
heild er vísan svona:
Hennar röddin há og þýö
heillar mig og fleiri.
Svo er hún bæði björt og fríö
og ber sem gull af eiri.
Sigurlaug haföi gott upplag og löngun
til að syngja á unga aldri og lagði stund
á söngnám hjá ágætum kennurum,
þegar hún haföi aldur til. Hún kom
skyndilega fram í dagsljósið og varö
fræg á íslandi, þegar hún fékk eftirsótt
hlutverk greifafrúarinnar í Brúökaupi
Fígarós í Þjóðleikhúsinu. Ekki voru allir
á eitt sáttir um þá ráöstöfun og virtist í
því sambandi skipta verulegu máli, aö
söngkonan var þá eiginkona Þjóöleik-
hússtjórans. En vegna þess umtals, sem
af þessu spratt, vissu allir hver Sigur-
laug Rósinkranz var; þetta fylgir
fámenninu og er kannski hvorttveggja í
senn, kostur og galli.
Um skeiö hefur verið hljótt um
Sigurlaugu Rósinkranz, en flestir vita aö
líkindum, aö hún hefur búiö í Svíþjóö og
haldið áfram að syngja, bæöi þar og
víöar. Aftur á móti hefur hún ekki látiö til
sín taka í sönglistarlífi hér aö ööru leyti
en því, aö hún hefur nokkrum sinnum
haldiö konserta, þegar hún hefur veriö á
ferðinni, bæöi noröanlands og í Hafnar-
firöi, — nokkur lög söng hún í útvarpiö
á síðastliönu sumri og raunar hefur hún
oftar komiö fram í útvarpinu.
Kannski er þaö heldur ekki svo mjög
eftirsóknarvert aö sækjast eftir frama á
íslenzku söngsviði. Sönglistarheimurinn
hér er víst oft eins og stormur í
vatnsglasi; talsvert margir kallaöir, en
fáir útvaldir, þegar til þess kemur aö
skipa í hlutverk, þá sjaldan óperuupp-
færslur eiga sér staö. Og vísast er þaö
vanþakklátt verk aö ráöstafa hlutverk-
um. En óhætt er aö segja, aö síöan
Brúökaup Fígarós var flutt, hefur Sigur-
laug ekki skyggt á neinn, sem sækist
eftir frama hér heima.
Hún hefur aftur á móti kosið sér
starfsvettvang erlendis og fengið bæöi
góöar viðtökur og lofsamlega gagnrýni,
— án þess aö athygli hafi veriö vakin á
því hérlendis svo sem vert væri. Sigur-
laug hefur þó haldiö áfram aö vera
góöur íslendingur og kynnir stundum
íslenzk sönglög á konsertum. Eftir því
sem hún sjálf segir, sækist hún rétt
mátulega eftir hinum skæru sviösljósum
frægöarinnar. En hún hefur meö tíman-
um áunniö sér traust sambönd í Sví-
þjóö, Vestur-Þýzkalandi og ítalíu — og
hún lifir af list sinni.
Þau Sigurlaug og Guölaugur Rósin-
kranz fluttust til Svíþjóðar eftir aö
Guölaugur lét af embætti Þjóöleikhús-
stjóra. Þau voru búin aö búa þar um
fimm ára skeiö, þegar Guðlaugur lézt og
Svíþjóöardvöl Sigurlaugar er oröin nær
níu ár. Börn þeirra tvö, Guölaug, sem er
9 ára og Ragnar, 8 ára, eru bæöi í
grunnskólanámi, en aö auki í tónlist-
arskóla og þykja framúrskarandi efnilég
á því sviði. Þau leika bæði í hljómsveit
skólans; Ragnar á fiölu, en Guölaug á
píanó og þau uröu meðal fimm nem-
enda skólans, sem valdir voru til aö
koma fram í sænska sjónvarpinu síðar í
vetur. Síöan í haust hafa þau veriö á
vikulegum æfingum vegna þessa. Auk
þeirra er til heimilis hjá Sigurlaugu eldri
dóttir hennar, Anna Marta, sem hefur aö
undanförnu stundaö nám viö Tónlistar-
háskólann í Stokkhólmi og veröur
væntanlega músíkprófessor áöur en
langt um líöur. Þau búa þar sem heitir
Tyresö; þaö er úthverfi frá Stokkhólmi.
í sumar leiö var Sigurlaug á feröinni
UR
GAGNRÝNI
í
BORLANGE
TIDENDE
UM SÖNG
SIGURLAUGAR
RÓSINKRANZ
Þaö var afar ánægjulegt
aö kynnast íslonsku óper-
usöpransöngkonunni Sig-
urlaugu Rósinkranz, sem
var á tónleikum Börlánge-
sinfóníuhljómsveitarinnar
á laugardaginn.
Aheyrendur fögnuðu
henni svo ákaft að hún
varð að endurtaka megin-
hluta síöasta verksins, sem
var konsertaría eftir Moz-
art.
Sigurlaug Rósinkranz
hefur dramatíska leikræna
kóloratur sópranrödd, sem
er afar fögur. Hæð raddar
hennar virðist óendanleg.
Án minnstu þvingunar
söng hún hið háa E í
annarri konsertaríu eftir
Mozart“.
Millitónsvið hennar er
lika afar fallegt. Hljóms-
veitarstjórinn Stig Eklund
hafði gert mjög blæfagrar
útsetningar fyrir hljóms-
veitina við íslensku verkin,
sem Sigurlaug söng líka
jjetta kvöld, og kom einnig
vel fram þar bæöi túlkun.
skap og tilfinningar söng-
konunnar. Hún var töfrandi
frjálsleg og eðlileg. Mjúkir
tónar hennar fylltu kons-
ertsalinn.
Fögnuðu áheyrendur
henni með dynjandi lófakl-
appi.