Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.1979, Blaðsíða 9
Vík
A
Mýrdal
Víkurkauptún í Hvamms-
hreppi er eina kauptúniö í Vest-
ur-Skaftafellssýslu. Þessi mynd
er tekin úr hlíöum Reynisfjalls
til austurs og sér yffír aöalgötur
staöarins. Byggöin var áöur
eingöngu uppi undir hlíöum
Reynisfjalls en hefur nú á síö-
ustu árum færst út á sandinn,
sem var svört gróöurlaus auön
en er nú hulinn grængresi allt
fram undir sjávarmál. Uppi á
hól austan viö aöalbyggöina
hafa Víkurbúar valiö kirkju sinni
staö eins og á myndinni sóst.
Ofariega til vinstri eru Víkur-
hamrar par sem er fjölskrúöugt
fugiafíf eins og vegfarendum
má vera kunnugt, en í baksýn
sést Hjörleifshöföi, sá sögu-
frægi staöur.
Reynisdrangar sem rísa úr sjó
undan Reynisfjalli vestan viö
kauptúniö sjást hins vegar ekki
á pessari mynd en peir eru
mikil staöarprýöi.
Reynisfjall er 340 m yfir sjó og
upp baö liggur einn brattasti
fjallvegur á Islandi. Þar uppi var
Loranstöö, sem landssíminn
starfrækti en hún hefur nú veriö
lögö niöur. Hins vegar mun
rafeindafyrirtækiö Rafrás hafa
komiö sér fyrir í stöövarhúsinu
og hyggst hefja framleiöslu par
á rafeindatækjum.
íbúar í Vík eru 371 og hefur
fjölgaö um 22 á síöasta ári. Þar
er aösetur sýslumanns, læknis
og prests. Þar er grunnskóli í
nýbyggöu skólahúsi og heilsu-
gæslustöö er þar fullbyggö, en
hefur staöiö ónotuö í eitt ár og
fyrirhugaö eroiö hefja byggingu
elliheimilis í Vík á Þessu ári.
Atvinnulíf er fjölskrúöugt á
staönum. Kaupfélag Skaftfell-
inga rekur auk verzlunar tré-
smiöju, húsbyggingarfyrirtæki,
bílaverkstæöi og gistihús. Þar
eru tvö sláturhús og prjónastof-
an Katla, par sem starfa 20—30
manns.
Af öörum fyrirtækjum mætti
nefna Víkurvagna sem fram-
leiöa aftanívagna, húsbygginga-
fyrirtækiö Klakk og Eikur, sem
annast steypusölu og vélaleigu.
Hestamennska er mikiö
stunduö meöal Víkurbúa og er
ahugi vaxandi og hestamanna-
félagiö Sindri rekur par tamn-
ingastöö. Af útgerö frá Vík fara
litlar sögur enda lendingarskil-
yröi afleit. Á síöari árum hafa pó
nokkrir menn fariö á sjó, aöal-
lega síöari hluta vetrar og á
vorin en eingöngu á mjög litlum
bátum. Þeir hafa fiskaö vel enda
auöug fiskimið skammt undan
landi.
Fyrr á öldum mun sjór hafa
gengiö alla leið upp aö brekk-
unni ofan kauptúnsins og fiskur
var dreginn á 20 faöma dýpi Þar
sem nú er fast land undir fótum.
En Víkurbúar eiga aö nágranna
eina af Þekktustu eldstöövum
landsins Þar sem er Katla í
suö-vesturhluta Mýrdalsjökuls
og sandströndin er til komin
fyrir framburö úr Kötlugosum
frá 1661 og síðar.
Ibúarnir í Vík una vel sinum
hag. Þeir búa viö mikla náttúru-
fegurð, fjölÞætt og blómlegt
atvinnulíf og gróandi mannlíf.