Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1979, Blaðsíða 6
PEANUTS
SMÁFÓLK
Hver er nú
hver á því
heimili?
Nokkrir punktar um per-
sónur í vinsælustu
myndasögu heimsins.
SMÁFÓLK leit fyrst dagsins Ijós í Mbl.
fyrir nokkrum árum. í fyrstu var þýðingin
handskrifuö inn á hverja mynd, en þar
sem hún þótti ekki njóta sín þannig var
breytt yfir í núverandi form, þar sem
þýöingin er latin fylgja meö fyrir neðan
hverja mynd fyrir sig. (Þá geta a.m.k. allir
notiö þess að gagnrýna þýðinguna!)
SMÁFÓLK, eöa Peanuts á enskunni, er
uppspretta milljaröa króna iðnaöar og er
nú vinsælasta myndasagan í heiminum.
Þó að persónur Smáfólks séu eins vel
þekktar hér á íslandi og í heimahögum
þeirra, Bandaríkjunum, þá vefjast stund-
um nöfn þeirra fyrir lesendum, svo og
samband þeirra á milli og einkenni
hverrar fyrir sig. Til að kynna persónurnar
og höfund þeirra, þá birtist hér grein úr
The Observer.
CHARLES M. SCHULZ — kallaöur
Sparky — er uppspretta milljóna dollara
iönaöar og skapari heimsins vinsælustu
og langlífustu myndasögu, en þrátt fyrir
þaö fá næstum allir þeir, er biöja hann
um, sérstaklega teiknaöa mynd af vöru-
merki hans, Snata.
Schulz hefur teiknaö meira en 10.000
myndasögur um Kalla Bjarna og félaga
síöustu 27 árin. Þær hafa veriö birtar í 60
þjóölöndum heims til lesningar fyrir 257
milljónir lesenda. Námsmenn skrifa heim-
spekilegar og afar torskyldar ritgeröir um
„mikilsþurfandi framkvæmdafólk“ og
„uppfyllingu óska“ í Smáfólki — og áhöfn
Apollo 10 skírði stjórnskip sitt „Charlie
Brown" og tunglferjuna „Snoopy".
Þaö er mikill oröstír sem Charles
Schulz lifir viö, en samt heldur hann
áfram aö vera sá feimni og frekar
kjarnyrti persónuleiki sem hann áöur var.
Og ef þú leggur þig eftir því, þá geturðu
heyrt spurnartón krakkans meö kringl-
ótta höfuðiö í rödd Schulz. Og eins og viö
er að búast, býr hann á no. 1, Snoopy
Place, Kaliforníu.
Schulz læröi aö teikna í bréfaskóla,
þótt ótrúlegt megi viröast. Hann fór í
listaskóla, þar sem hann kenndi síöar, og
loks eftir mikiö umstang og erfiði, tókst
honum aö selja United Features Syndic-
ate Smáfólk, árið 1950. Af tilviljun, var
þaö United Features sem gaf myndasög-
unni nafniö „Peanuts", nafn sem Schulz,
aö því er viröist, líkar ekki.
©
Fyrstu myndasögurnar hafa í gegnum
árin veriö gefnar út í bókarformi, það
hafa veriö geröir sjónvarpsþættir um þær
og loks hafa þær veriö kvikmyndaöar.
Þriöja kvikmyndin, „Race For Your Life
Charlie Brown", hefur veriö sýnd hér á
landi.
„Þaö er mjög erfitt fyrir mig aö teikna
kvikmynd eftir aö hafa teiknaö mynda-
sögurnar í blöö,“ segir Schulz — og
maöur er haldinn þeirri löngun aö kalla
hann Charlie.
„Ég er ekki góöur aö segja sögur. Ég
hugsa í 16 sekúnda myndröö — og
þannig teikna ég þær. Kvikmyndir eru
einungis samsettir atburöir, hengdir hver
aftan í annan. En þetta er erfitt verk.“
í leit aö róttum röddum handa Smá-
fólki, hafa komiö upp ýmis vandamál fyrir
Schulz. „Hver og einn hefur sína hug-
mynd um raddir persónanna svo ég get
ekki veriö aö einskoröa mig viö eina
ákveöna rödd fyrir hverja persónu í
kvikmyndunum. Og auk þess stækka
krakkar og ég verö aö leita aö nýjum
röddum. Krakkarnir í Smáfólki breytast
ekki.“
Sá fyrsti sem talaöi fyrir Kalla Bjarna í
fyrstu kvikmyndinni um Smáfólk, er gerð
var 1969, er nú læknastúdent viö háskóla
í San Diego, svo að alvörugefinn, óörugg-
ur tónn þess Kalla Bjarna er glataður fyrir
fullt og allt.
Pérsónur Smáfólks — sem áttu upp-
tök sín í eldri myndasögu sem Schulz
geröi áriö 1947 og hét „Li‘l Folks" — hafa
oröiö til úr æskuminningum og áhrifum,
er Schulz sjálfur hefur oröiö fyrir um
ævina.
Það hefur veriö sagt, aö persónuleiki
hins góöviljaöa Kalla Bjarna, sem bíður
alltaf ósigur í öllu, hafi oröiö til, þegar
Schulz sjálfur var krakki. Hann hljóp yfir
bekk og var minnstur og yngstur í bekk
meö eintómum stórum strákum. Og
auövitaö var honum útskúfaö úr félags-
skapnum.
Fólk spyr stundum hvers vegna þaö sé
aldrei neitt fulloröiö fólk í Smáfólki. „Þaö
geröi myndasöguna aö of mikilli speglun
raunverulegs lífs,“ segir Schulz. „Ég gæti
ekki látiö hund fara á Wimbledon eöa
látiö hann vera að vélrita, ef ég heföi
einhvern fullorðinn á myndinni. Og auk
þess er ekki nóg pláss fyrir þá fullorönu."
SNOOPY — Snati,
er aöalhetja Smáfólks. Hann
er ailtaf nógu slunginn, en
vinsældir hans jukust mjög,
er hann hætti aó ganga
á fjórum fótum og
fór aó ganga uppréttur.
Þegar veriö var
aó semja spurningar
um hlutverk hans
sem rithöfundar
(best pekkt er sagan:
„It Was a Dark and
Stormy Night“), pá lýsti
Snati pví yfir, aö hann væri
einn af átta hvolpum,
sem fæddust í hundabúinu á Ólafsvöllum (Daisy Hill Puppy Farm) og hann
hafði falliö í hundaskóla. Snata til mikillar hrellingar, var hann keyptur í pví
skyni aö vera Kalla Bjarna til hughreystingar eftir erfióa æsku. Snati neitar
aö leika hlutverk venjulegs kjölturakka og hugsar um eiganda sinn sem
„krakkann meö kringlótta höfuóió“. En hann er veikur fyrir mat og er pví
upp á Kalla Bjarna kominn. Kannski eru stærstu stundir Snata pegar hann
leikur flughetjuna úr fyrri heimsstyrjöldinni sem er í leit aó Rauöa
baróninum. Flughetjan flýgur um loftin í Sopwith Camel flugvólinni sinni —
hundahúsinu.
Snati talar aldrei. Hann hefur samband viö umheiminn meó hugsunum
sínum.
SCHROEDER —
Hjálmar, er hljómlist-
arséní, sem spilar á leik-
fangapíanó og trúir pví aö
Beethoven hafi verið mest-
ur. Hann getur spilaö allt
sem Beethoven samdi og
fer aöeins frá píanóinu til
aö spila í hornaboltaliöi
Kalla Bjarna. Líf hans væri
fullkomió, ef Gunna hefói
ekki pann áhuga á honum,
sem raun ber vitni.
LUCILLE VAN PELT
(LUCY) — Gunnhildur
Sæmundz (Gunna), er vel á
veg komin meö aö ná takmarki sínu.
Það er fólgiö í oröum hennar: „Ég veró
aldrei ánægó fyrr en óg veró gáfaöri en
svo, aö pað sé hollt fyrir mig“. Henni
liggur hátt rómur og hún veröur aö
vera allt í öllu. Hún getur verið mjög
grimm. Hún er nágranni Kalla Bjarna
og hann er oftast fórnarlamb hennar.
En hann er of auötrúa til aö vera
fullnægjandi fórnarlamb. Hann fellur
alltaf fyrir bröndurum hennar, jafnvel
pegar hún er búin aó vara hann við.,
„Eins og aö skjóta fisk í bala,“ segir
hún um hann. Veikleiki hennar er
óendurgoldin ást hennar til Hjálmars.