Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1979, Qupperneq 2
KristjAn Kristjánsson
skipstjóri og einn peirra sem
vildu auöga dýralíf íslands
meö saudnautum.
GOTTU
LEIÐANGURINN
TIL GRÆNLANDS
Ellefu hraustir menn
fóru sumarið 1929 á 35
lesta báti í fræga ævin-
týraför til Grænlands,
en tilgangurinn var að
ná lifandi sauðnautum,
flytja þau til íslands og
koma hér upp sauð-
nautastofni.
Gísli Sigurösson tók
saman.
Nú þegar draumurinn um bætta
hagsæld stendur um nýtízku tölvu-
væddan iðnaö, fullvinnslu á sjávar-
afla í iystilegar pakkningar, ellegar
hugsanlega framleiðslu á vetni eða
ööru, sem gæti komið í staðinn fyrir
olíu og bensín, er fróðlegt aö virða
fyrir sér það sem menn töldu að
horft gæti til framfara fyrir 50 árum.
Árið 1929 er ekki að neinu leyti
tengt stóratburðum í sögu lands og
þjóðar. Þá var stund milli stríða;
efnahagslífið eitthvað farið að jafna
sig eftir verðfallið mikla upþúr 1920,
sem kom í kjölfar fyrra heimsstríðs-
ins,. Framundan, — og það skammt
framundan — var heimskreppan
mikla, sem var í hámarki á árunum
1931 —1933, og nákvæmlega 10 ár
þar til blásið yrði í ófriöarlúðurinn að
nýju.
Mönnum þótti að vísu sem miklar
framfarir hefðu orðið, þegar litið var
aftur í tíðina. Þær framfarir höfðu
ekki hvað sízt orðið á sjónum. Eftir
þann merka áfanga, sem náðist í
sjálfstæðisbaráttunni 1918, var eðli-
legt að menn hugleiddu í vaxandi
mæli, hvaö gæti orðiö mannlífi á
íslandi til framdráttar. Um þessar
mundir fór stjórn Tryggva Þórhalls-
sonar með völdin, en áhrifamesti
maðurinn í stjórn landsins var aö
flestra dómi Jónas Jónsson frá
Hriflu.
Hugmynd um
nýtt búsílag
Meðal þess sem mönnum þótti að
gæti horft til framfara, var að auka
viö dýralíf landsins meö því aö flytja
hingað sauðnaut frá Grænlandi. Þar
var merkileg skepna, sem hafði
aðlagast frábærlega harðræöi og
liföi á fjallagrösum, mosa og skófum.
©
Þessar skepnur verða stærri en
venjulegir nautgripir hjá okkur og
sauönautakjöt þótti aö minnsta kosti
ágætur matur. Allar líkur voru á því,
að hér gætu sauðnautin lifað á
landinu og orðið dágott búsílag. En
það var stórmál að ná þeim til
landsins.
í því sambandi er vert að minnast
þess, hversu auðvelt verk það væri
nú. Nýlega var skýrt frá því hér í
Lesbók, að vísindamenn merkja
bjarndýr með því að skjóta þau úr
þyrlu meö svefnlyfi, sem svæfir þau
um stundarsakir. Þannig mætti
svæfa heilu hjaröirnar af sauðnaut-
um og lyfta þeim á augabragði yfir í
skip. ísinn viö Grænland er ennþá
samur og jafn, en stendur síöur fyrir
nútíma ísbrjótum en Gottu litlu, sem
ekki hafði einu sinni sprengiefni meö
í förinni, vegna þess að embættis-
mannavaldið á íslandi vildi ekki leyfa
það. Aftur á móti hefur áhugi á
innflutningi sauðnauta ekki gert vart
viö sig í seinni tíö og meira kappsmál
aö draga úr ágangi og ofbeit en auka
kjötframleiðslu, sem nóg er fyrir.
Þetta og margt annað tengt sauð-
nautainnflutningi var rætt heima hjá
Kristjáni Kristjánssyni skipstjóra á
Grímsstaðaholtinu. Kristján var skip-
stjóri á Gottu, en hann og Gunnar
tvíburabróðir hans eru nú þeir einu,
sem eftir lifa af leiðangursmönnum,
liölega 81 árs gamlir. Gunnar var
kominn til fundar við bróður sinn
austan af Selfossi, þar sem hann
hefur búið uppá síðkastiö hjá dóttur
sinni, en báðir eru þeir bræöur vel á
sig komnir eftir því sem eðlilegt má
telja á þessum aldri og muna harla
vel eftir Gottu-leiðangrinum. Þeir
bræður eru fæddir í Efra Vaðli á
Barðaströnd í apríl 1898, en fluttust
ungir með foreldrum sínum vestur í
Arnarfjörð og vöndust þar sjósókn,
bæði á árabátum og skútum.
Kristján fékk skipstjórnarréttindi og
var alla starfsævi sína á sjónum; um
árabil til dæmis skipstjóri á Skaftfell-
ingi og reyndist alla tíð farsæll.
Gunnar varð aftur á móti vélstjóri;
hann fór í Gottu-leiðangurinn sem
vélamaður og síðar setti hann upp
og starfrækti vélaverkstæði í Reykja-
vík.
Alþingi veitir
20 Þúsund krónur
til sauönauta-
innflutnings
Það var upphaf Gottu-leiðangurs-
ins, að Kristján hafði ásamt fleiri
Grænlandsáhugamönnum myndað
félag, sem kallað var Eiríkur rauði og
hafði á sinni stefnuskrá að flytja
lifandi sauðnaut til íslands. Hug-
myndin mun einkum og sér í lagi
Síða úr leiðar-
bók Gottu fró
síöustu dögum
júlímánaðar,
pegar leitaö var
færis aö kom-
ast innúr ísnum
meðfram
strönd Græn-
lands.
^ A ferðtani frft cÁÁm'í/v til 16 daga á ferðinni (
T. D»pl Athuganir Botntepmd Vinna og viöburöir Undirskriff varöstjóra
'Z.
sCteí' /SOaJP '06 y / ý/ y *
'syis/Su OSS Aoyyr/// ddo-yuS
^/JSiyyiS ¥ f/X /C/S' /J?'
t/ ■ / / /
T' X XýuSo /)/■' " n "
■S JyS
J-M-yis X/O'&uA/ y? t/u irrw'f ,// effr
£7 ...Xd'S
\,c/a' Aa. /J/ X/V «//Mu.
/lloyt tfl-' X /oS/-{/ot2/ YVJ /íiÁ' +/*
-y -
t /lÍJui'UJrJszaLLV ?. 9. '/úXt/.:
ffla/c/d/L- /mÁ ^ 7/ AiWÁz'S 'KT
arÁ/ár aM/zf ■f- 6 • r * '
yíjyyny SA/ /rrt/ó /'c'/eSzcct' o&' ./’/</.i'ti.
■ ddozatAzsn/
—
30 //// .
GJ/IoSjJ’ XflJ. ojuest /Cc. /nucrz-./t/ Y'/i'. S'œ//
• (f ' , ssnoiy as s&ds/n/n/ n/ jS' a2/a.&0
/JS // / /yyv. oi/. ís sXk. o'oTL
Athuga&emdir og lelðrjettingar............
(undlnkrift rllara).