Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1968, Page 15
MM kosningarnar 1968
Þá eru hinar ár'legu Melody
Maker kosningar nýafstaðnar
en þessar kosningar þykja ágæt
ur mælikvarði á vinsældir
þeirra manna sem að sjá ungu
fólki um allan heim fyrir and-
legu hugarfóstri þ.e. pop-tón-
listinni. Það sem kemur mest á
óvart í sambandi við þessar
kosningar er hinn mikli sigur
Scott Walkers en Scott, sem að
margir hafa talið „búinn að
vera“ lendir í fyrsta sæti sem
söngvari í Bretlandi og L. P.
plata hans Joanna er kosin 3
bezta tveggja-laga platan í
Bretlandi og 2 bezta í heimin-
um. Scott nær einnig kosningu
sem 2 bezti söngvari heimsins
og L. P. plata hans SCOTT
er í öðm sæti yfir heim-
inn. The Beatles hafa en.n
einu sinni sannað ágæti sitt og
eru án efa lang vinsælasta
hljómsveit í heiminum í dag en
Sgt. Peppers L.P. plata þeirra
sem gefin var út fyrir rúmu
ári og kosin var nr. 1 í þessum
kosningum. Má þar með sanni
segja að lemgi lifir í gömlum
glæðum Einnig er það athyglis
vert að Otis Redding er í 5
sæti sem söngvari en það verð
ur að teljast mikið afrek af
manni sem hefur legið í gröf
sinni í tæpt ár. ARETHA
FRANKLIN var kosin bezta
söngkona í heiminum og er það
að okkar áliti fylli'lega verð-
skuldað. Eric Clapton úr Crem
er í 1. sseti bæði í heimalandi
sínu svo og heiminum öllum
sem hljóðfæraleikari en Cream
urðu nr. 3 sem hljómsveit bæði
í Bretlandi og heiminum. Marg
ir bjuggust við að BEE GEEs
mundu standa sig betur en
raun ber vitni en þeir ná að-
eins 8. sæti listans í Bretlandi
og yfir heiminn eru þeir ekki
taldir í hópi hinna 10 beztu.
Ju'lie Driscoll hefur svo sannar
lega slegið í gegn á árinu en
samkvæmt þessum kosningum
er hún vinsælasta söngkonan í
Englandi í dag. Við skulum þá
ekki fjölyrða meira um kosn-
ingar þessar en hér birtast úr-
slitin í heild þ.e.a.s. 5 efstu
sætin.
BRETLAND:
Söngvari:
1. Scott Walker
2. Tom Jones
3. Donovan
4. Cliff Richard
5. Mick Jagger
Söngkona:
1. Julie Driscol'l
2. Lulu
3. Dusty Springfield.
4. Cilla Black
5. Sandie Show
Hljómsveit:
1. Beatles.
2. Rolling Stones
3. Cream
4. Small Faces.
5. Shadows.
Hljóðfæraleikari.
1. Eric Clapton.
2. Jimi Hendrix
3 Hank Marvin
4. Brian Auger
5. John Mayall
2. laga plata
1. Jumpin Jack Flash
Rolling Stones.
2. This Wheels on Fire
Julie Driscoll
3. Joanna
Scott Walker.
Beatles enn í fyrsta sæti.
í umsjá Baldvins Jónssonar og
Sveins Guðjónssonar
Scott Walker
4. Lady Madonna
Beatles
5. America
Nice
L.P. plata
1. Scott 2.
Scott Walker
2. Fleetwood Mac
Fleetwood M.
3. Ogdens Nut.
Small Faces
4. The Hangsmans
Incredible St Band.
5. Their Satanic
Rolling Stones.
HEIMURINN
Söngvari:
1. Bob Dylan
2.Scott Walker
3. Elvis Presley
4. Tom Jones
5. Otis Redding
Söngkona:
1. Aretha Franblin
2. Lulu
3. Dusty Springfield
4. Júlie Driscoll
5. Cilla Black
Hljómsveit:
1. Beatles
2. Rolling Stones
3. Cream
4. Beach Boys
5. Byrds
H1 jóðf æraleikari:
1. Eric Clapton
2 Jimi Hendrix
Aretha Franklin.
3. Herb Albert
4. Bob Dylan
5. Hank Marvin
Tveggja-laga plata:
1. U.S. Male
Elvis Prestley
2. Joanna
Scott Walker
3. Dock of the Bay
Odis Redding
4. Young Girl
Union Gab
5. Jumpin Jack
Rolling Stones
L.P. plata:
1. John Wesley Harding
Bob Dylan
2. Scott 2
Scott Walker
3. Sgt: Pepper
Beatles
4. Clambake
Elvis Presley
5. Forever Changes
Love
n
29. sept. 1968
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15