Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 29

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 29
Böðvar á Bakka Við komum í Bakkadal. Allstaðar átti Þorvaldur vini, og hef ég líklega aldrei kynnzt vinsælli manni á sæmilega langri *evi minni. A Bakka bjó Böðvar Pálsson, þá kaup- félagsstjóri þar og síðar á BíldudaL I'arna sat höldur í heimaranni, stundaði verzlunarstörf, útgerð og landbúnað, ein- hver gestristnasti og skemmtilegasti maður, sem ég hef kynnzt. í dagbókinni, síðu 498, föstudaginn 12. september 1941, 6tanda þessi orð um heimsóknina til Böðvars: „Við komum að Bakka og stönzuðum fcjá Böðvari, þágum veitingar en geng- um síðar um útivið, og komum m.a. í geysistóran kartöflugarð. Var verið að taka upp, og góð var sprettan. Tók ég eftir mjög góðu áhaldi til að taka upp með. Fyrst var kippt í grasið, og kartöfl- urnar klóraðar upp á eftir með þar til gerði klóru. Er lítill vandi að útbúa hana. Það eru bara beygðir steypujárns- pinnar og negldir á klossa með hand- fangi“. — Þannig var iðnvæðingin í þá daga með kartöflur. Skyggnzt um í Selárdal „Rétt utan við Bakkadal, horfðum við lengi á skarf, sem var sikafandi eftir Bíld. 5 gulendur sáum við hjá Skarfa- klettum við Selárdal. Fremst í Selárdal liggur dys, og er sagt, að þar hvíli jarð- neskar leifar sjórekins Englendings, og eé dysið gott til áheita, og setur þá við- komandi kross á dysið, ef áheitið hefur eftir gengið, og eitthvað hefur þetta dys reynzt vel, því að fjölmargir krossar prýddu það“. Ég man enn, hve mér þótti Selárdal- ur sérkennilega fallegur. Vestan í fjöll- um hans eru gríðarmikil rauð lög, senni- lega sama rauða bergið og víða er i fjör- Steinninn með vínviðarblaðiniu úr Þórishlíðarfjalli. ' '■'rtife,. .Ssi ■ . ■ |t' 1 V .......’’ ■ ii'\ Beykiskógur, eftir málverki Kjarvals. Nú er Selárdalur að mestu í eyði, utan einn einsetumaður, sem býr þar á Upp- sölum með einni belju og fáeinum kind- um, fjarri öllum mannabyggðum, en nærri gömlum steingerfingum. Nú hefur heyrzt um nýja innflytjendur, svo að máski tekst upp á ný kukl og kunnátta í Sclárdal. En víkjum nú aftur að ferð okkar Þorvaldar út í Selárdal 1941. Gestur á Skeiði. Fremst fram við sjó í Selárdal heitir á Skeiði. Um þennan tíma bjó þar gestrisinn öðlingsmaður, mjög við ald- ur, sem hét Gestur. Þangað lögðum við mágarnir leið okkar. Gestur á Skeiði bauð okkur til baðstofu og þáðum við þar hressingu. Gestur var reglulega ræð- inn og skemmtilegur karl. Jóhannes Áskelsson jarðfræðikennari minn, hafði heimsótt Gest sumarið áður, að því er Gestur sagði okkur, og margt fleira bar á góma, sem fróðlegt var og skemmtilegt, því að okkur varð skraf- hefur oft verið tengd göldrum og galdra- mönnum. Merkir prestar hafa einnig setið þar í embætti, þótt prestsetur sé þar ekki lengur neitt. Sei árdals-Páll. Þeirra á meðal var Páll Björnsson, prestur þar frá 25. marz 1645 til æviloka 23. okt. 1706. Afi hans var Arngrímur lærði í móðurætt. Séra Páll var mikill grískumaður og einn mesti ræðuskörung- ur á sinni tíð hérlendis. Hann var trú- aður mjög á galdra og stóð framarlega í ofsóknum á galdramenn. Gestrisinn var hann og höfðingi í allri rausn, auðmaður mikill og hagsýnn. í Selárdal hafði hann mikinn útveg, fann upp betra bátalag. Þess utan var hann stærðfræðingur góður og mikilvirkur rithöfundur. Meðal ritverka hans eru Píningarprédikanir og bókin um Chara- cter bestiae-skepnuskapferli. wm © . Þórishlíðarfjall í Selárdal. örin bendir á steingervingalagið. fjallahvilftir vera einskonar musteri guðs, einhver tign og mikilleiki hvílir yfir þeim. Þetta er stórbrotið landslag og vekur menn til umhugsunar um mannlega smæð hjá mikilfengleik fjall- anna. Þessi umgetna hvilft hjá Hvestu, heitir raunar Hundshvilft, og mætti segja mér, að sá, sem þá nafngift á, hafi ekki verið upp á marga fiska, því að hún hefði átt skilið tignarlegra nafn. um í Hvalfirði og einnig í Hólabyrðu í Hjaltadal, úr því efni er Hólakirkja hlað- in, og er svona sæmilega langt á milli allra þessara staða. Landslagið andar á móti manni forneskju, enda hefur áður verið að því vikið, að saga Selárdals drjúgt yfir kaffibollunum í gömlu bað- stofunni á Skeiði. Og tíminn gleymdist okkur í viðræð- um við gamla manninn, því að klukkan var orðinn 6, þegar við loksins lögðum á brattann fram dalinn, baðaðan í haust- sólinni. Við stöldruðum örlítið á Upp- sölum, fremsta bænum í dalnum. Þeir á Uppsölum, buðu okkur steingerfinga til sölu, höfðu orðið sér úti um nokkurt magn, en svo var þrái okkar mikil), að engin kaup voru gerð. Við vildum finna okki.i steingerfinga sjálfir, þótt áliðið væri orðið dags. Leiðin upp Þórishlíðarfjall. Lá nú leið okkar upp Þórishlíðarfjall. Fórum við á hestunum alllangt uppeftir grasivöxnum geirum, en síðasta spölinn gengum við. Þórishlíðarfjall er að vestanverðu í Seiárdal, nærri fyrir botni dalsins. Það er um 470 metrar á hæð. Líkt og önnur Vestfjarðafjöll er það hlaðið úr blágríts- hamrabeltum með molabergs- og leir- lögum í bland. Eins og af einskærri eðlLsávísun geng- um við nærri beint að steingerfingalag- inu. Stéingerfingalög láta venjulega lítið yfir sér hið ytra, og eru að sjá í engu frábrugðin öðrum leirlögum. — Þau bera engin blaðför utan á sér. Verða menn því fyrst að kljúfa lárétt leirlögin til þess að steingerfingarnir komi í ljós. Sýnist allt benda til þess, að tilgátan sú sé sennileg, að blöð þessi hafi fallið, borin af vindum, í fyrndinni af trjánum í leirtjarnir, síðan pressast af fargi hraunlaganna, sem á ofan hlóðust, og aðhylltist Jóhannes sálugi Áskelsson mjög þá kenningu. Auðvelt reyndist okkur að finna á stuttum tíma mikið magn af steingerðum laufum margra trjátegunda, og er efnið í ieirnum mun harðara og óbrotgjarn- ara en hjá Brjánslæk, og kem ég að því síðar. Fornir furðuskógar í fjalli. Þarna var um margar tegundir að ræða, og skulum við nú bregða töfra- kíki fyrir augað, og reyna að sjá fyrir okkur, hvernig umhorfs var í þessum aldagamla Vestfjarðaskógi. Aðaltrjáteg- undin hefur verið beyki. — Beykiblöð eru algerlega yfirgnæfandi, og vafa- laust hefur beykið verið meðal ein- kennistrjáa Vestfjarðarskógarins á surtar brandsskeiðinu. Sú beykitegund, sem þarna er um að ræða, vex nú aðeins í austanverðum Blað af beykitegund, fundið i Þórishliðarfjalli. 24. desember 1965 ■LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 61

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.