Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 21
FRÁ BÆ I KRÓKSFIRDI Eftir Sesselju Stefánsdóttur Frú Sesselja Stefánsdóttir á - Ægissíðu 56 á að baki sér langa og starfsama ævL Hún var húsfreyja mörg áír á fjöl- mennu heimili að Kambi í Reyk- hólasveit og stýrði heimih sínu með miklum dugnaði, framtaki og bú- hyggju. Maður hennar var Jón Hjaltalín Brandsson, orðlagður dugnaðarmaður og fyrirmyndar- bóndi. í eftirfarandi grein segir Sesselja frá æskuheimili sínu að Bæ í Króks firði, en hún ólst upp hjá Ólafi Sigvaldasyni héraðslækni, þjóð- kunnum ágætismanni, og konu hans, Elísabeti Ragnhildi Jónsdótt- ur. Jón Thorarensen. Foreldrar mínir voru Stefán Jóns- son og Guðrún Andrésdóttir er bjuggu í Berufirði. Frá 'þeim fluttist ég eins árs gömul árið 1882 að Bæ í Króksfirði til fósturforeldra minna, hjónanna Ólafs læknis Sigvaldasonar og konu hans, Elísabetar Ragnhildar Jónsdóttur. Ólafur læknir fóstri minn var fædd- ur 25. nóvember 1836 að Grímstungu í Vatnsdal, sonur Sigvalda prests þar Snæibjörnssonar og konu hans, Gróu Bjarnadóttur. Ólafur varð stúdent 1857, kandidat í læknisfræði 1869 með 1. einkunn. Hann var í her Dana 1862 og Ihlaut þar foringjatign (lautenants). Hann varð fyrst staðgöngumaður hér- aðslæknisins í austurhéraði suðuramts- ins 1869 og sat á Eyrarbakka. Árið 1870 var hann settur sýslulæknir í Stranda- sýslu og austurhluta Barðastrandarsýslu og skipaður þar héraðslæknir fra 14. apríl 1876. Konia hans, Elísaibet Ragnhildur Jóns- dóltir, var dóttir Jóns prófasts Jónsson- ar frá Steinnesi og konu hans, Elínar Einarsdóttur frá Skógum undir Eyja- fjöllum. Þau hjónin, fósturforeldrar mínir, settust að í Bæ í Króksfirði og bjuggu þar alla tíð. Þar andaðist fóstri minn 12. imaí 1896 og hafði þá fengið lausn frá embætti mánuði áður, 14. apríl. Elísa- bet Ragnhildur kona hans og fóstra mín lifði lengi eftir þetta, fluttist til Reykja- víkur og andaðist hér 24. jan. 1926. Frá fósturforeldrusm mínum og æsku- heimili minu í Bæ á ég yndislegar minningar. Heimilið var stórt, mann- margt, háttprýði og menningarbragur ríkti þar á alla lund. Það var sannkall- að höfðingsheimili. Ólafur læknir var sannkallað göfug- menni, góður læknir, duglegur í löngum og erfiðum ferðalögum, en embættis- ekyldunni þjónaði hann af mikilli sam- vizkusemi og jafnframt var hann væg- ur og skilningsríkur gagnvart þeim sem voru fátækir eða hjálpar hans þurftu Við. Elísabet Ragnhildur var fríð kona og fyrirmannleg, vinnusöm og stjórnsöm og svo kærleiksrík og umhyggjusöm við okkur fósturbörnin, að betri hefði hún ei getað verið við okkur, þótt hún hefði átt okkur sjálf. Bú þeirra hjónanna var mjög mynd- erlegt og heimilið mannmargt. Vinnu- konur voru 4, vinnumennirnir 5, venju- lega var aUt heimilisfólk yfir 20 manns, auk þess mikill gestagangur og dvöldu margir á heimili þeirra dögum og vik- um saman. Þau hjónin eignuðust tvær dætur, þá fyrri misstu þau á fyrsta ári og þá seinni, sem hét eftir systur sinni Elín Gróa, misstu þau, þegar hún var komin yfir tvítugt. Hún var mesta efnisstúlka, sem allir sáu mikið eftir. Fósturbörn þeirra hjóna voru: Elísabet Ragnhildur Jónsdóttir Páll Nikulásson, sem kom með þeim hjónum er þau hófu búskap í Bæ. Ólína Jónsdóttir, bróðurdóttir hús- freyjunnar. Þar næst kom ég eins og áður er sagt, eins árs. egar bróðir Elísabetar Ragnhild- ar, Jón stúdent á Ingunnarstöðum í Geira dal, andaðist fluttist ekkja hans, Herdís Andrésdóttir, til Elísabetar mágkonu sinnar og Ólafs læknis, með börn sín, Elínu Elísabetu og Jón Ólaf, og ólust þau börnin upp þar, en Herdís vann hjá mágkonu sinni eftir það til þess síð- asta. Var það hvorttveggja, að þau læknishjónin reyndust börnum Herdís- ar sem beztu foreldrar, og eins var það ómetanlegt að fá Herdísi á heimili vegna dugnaðar og þess hve fjölhæf hún var og verkasnilld hennar orðlögð. Síðasta fósturbarn þeirra hjóna var Elísabet Bartels, nú búsett í Kaupmanna- höfn, sem kom kornung til þeirra og ólst alveg upp hjá nöfnu sinni og fór ekki úr húsum hennar fyrr en hún giftist. Auk þess fluttust að Bæ með húsfreyj- unni systur hennar, Ingunn, Sigríður og Valgerður, og reyndist Ólafur læknir framúrskarandi vel öllu tengslafólki sínu. Bær í Króksfirði var eitt mesta heim- ili við Breiðafjörð um 1880. Ólafur læknir reisti þar öll bæjarhús frá grunni og geta menn skilið hvílíkt stór- virki það var eins og erfitt var með alla aðdrætti á þeim timum. Hann dró að sér byggingarefni bæði á sjó og landi, rekavið norðan af Ströndum, og borðvið úr Stykkishólmi eða úr Flatey, og fannst flestum þegar bæjarhús voru fullgerð þau bera af flestum bygging- um í nálægum sveitum. Búskapur var með miklum myndar- brag og stjórnaði læknirinn sjálfur búi sínu alla tíð, að undanteknum síðustu árum. í Bæ var miðstöð póstferða. Þar var afgreiddur aðalpóstur frá Reykja- vík til ísafjarðar, auk þess póstur um endilanga Barðastrandarsýslu og til Staðar í Hrútafirði og til Kirkjubóls í Tungusveit. Ólafur læknir hafði sumar- póstferðir sjálfur, svo að mannmargt var oft auk hinna mörgu heimilismanna. A vetrum mátti sjá alla íslenzka vinnu, hannyrðir, spuna, prjón, vefnað og fata- gerð. Öll voru þau störf til fyrirmynd- ar. Þá má geta þess að læknirinn hafði stórt apótek á bæ sínum, sem einnig þurfti mikillar vinnu við. f Bæ voru alltaf lesnir húslestrar og allir trúarsiðir í miklum heiðri hafðir, og auk ágætra bóka íslenzkra, skáldrita og sagnfróðleiks voru þar ýmis rit og skáldverk dönsk, norsk og sænsk, auk brezkra höfuðskálda í dönskum þýðing- um. Eins og ég hef sagt hér að framan, þá voru fósturbörnin mörg á heimilinu og æskuminningar okkar krakkanna voru yndislegar. Ljóðadísin á heimilinu leit oft eftir okkur og lét þá margar hendingar fjúka. Um okkur yngismeyjarnar mælti hún: Ein er nett og önnur sett í fasi þriðja í lundu þybbin er jþó af sprundum flestum ber um sveinana: Einn er rjóður, annar góður drengur þriðji tiginn tjörguver til þín hlýjan huga ber. Ólafur Sigvaldason um mig orti hún þetta: Af því hún er ætíð góð við alla vini sína ég má til að laga ljóð um litlu Sellu mína. Sesselja Stefánsdóttir Fylgi henni jafnan gæfan góð græti’ hana engin pína verði faún mesta merkisfljóð og mömmu gleðji sína. Um Ólaf lækni Sigvaldasón segir í vísu einni, sem um hann var ort: „Sjúka græðir geðlipur" og það var mikill sannleikur. Ljúfmennska hans og lipurð var róm- uð, en jafnframt því var reisn og fyrir- mennska yfir honum, þar fór allt saman: höfðinglegur og fallegur maður, fágað dagfar og virðuleiki og festa í orðum og athöfnum, enda hafði herþjónustan mót- að agann, stundvísina og reglusemina, og þessi aðalsblær fylgdi honum til dauðadags. Elisabet Ragnhildur kona háns var honum á allan hátt samboðin og prýði hans. Hún var af göfugum ættum, fríð og fyrirmannleg, fjölhæf og farsæl bús- móðir og gædd óvenjulegri samúð og næmum skilningi gagnvart þeim sem voru fátækir og þurfandi, og umhyggj- an fyrir okkur fósturbörnunum sem hún tók úr öllum áttum var svo dæma- laus, að því verður ekki með orðum lýst. Og að lokum vil ég aðeins segja þetta: Hjá fósturforeldrum mínum í Bæ ólst ég upp við mikinn kærleika, frábæra umhyggju, fagran heimilisbrag og þann yl, sem enn hefur ekki kulnað út í hjarta mínu. Þessi andlegi arfur frá Bæ í Króksfirði varð grundvöllur minn og styrkur, í einu orði sagt ómetanleg blessun fyrir mig, þegar ég sjálf gekk út í lífið og fór að sinna húsmóðurstörfum. Sesselja Stefánsdóttir. Rímrúnir Rekkur hrekkur reginleiðir. Rekkur stekkur feginn heim. Flekkur þekkur þeginn greiðir þekkum hvekkinn veginn tveim- Skýring. Fjármaður œtlar að refsa tveim ó- dœlum hundum sínum. Flekk og Rekk. Rekkur flýr, en Flekkur bítur hann. Jóhann M. Kristjánsson. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 53 24. desember 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.