Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 6
Séð yfir hluta af Prag; Niklas-hrú yfir Moldá og Niklas-stræti til hægrL End a þótt Franz Kafka hafi skrifað verk sín á þýzku, verður að telja hann tékkne skan. í Prag bjó hann mestan hluta ævi sinnar, og þar var hann jarðsettur. að finna eitthvað til þess að halda sér í, að gera sér einhverja grein fyrir til- veru sinni, reynast fálm eitt og fum. Svo hjálparvana er maður nútímans að áliti Kafka. Eretinn Orson Welles hefur gert kvikmynd eftir þessari sögu Kafka, og þykir hún mjög snjöll. Hún var sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði á síðastliðnum yetri, Jón Eiríksson hefur þýtt kafla úr „Málsókininni“ og birt hanh í Árbók skálda 1958 undir heitinu „Fyrir dyrum lögmálsins". I skáldsögunrli „Höllin“ (Das Schloss) segir frá landmælingamanninum K. sem yfirgefið hefur heimahaga sína til þess að ganga í þjónustu hallargreifa nokkurs, sem aldrei kemur fram í sögunni. Hefst sagan með því, að K. kemur til þorps þess, sem tilheyrir höllinni og byrjar tilraunir sínar til þess að komast inn í höllina til hallaryfirvaldanna. E. t. v. kemur trúar- og heimspeki- viðhorf Kafka hvergi betur fram en í þessari skáldsögu. Sérhver tilraun sögu- hetjunnar K. til að komast inn í höllina, þessa byggingu, sém í senn er svo nálæg en samt óendanlega fjarlæg, já, jafnvel sérhver tilraun hans til þess að setjast að í þorpinu, sem höllinni tilheyrir, mis- tekst algerlega. f>vi ákafar sem hann leggur sig fram, þeim mun fjarlægari reynist takmark hans og hann býður hvern ósigurinn á fætur öðrum. Aldrei kemur honum samt það í hug, að til- raunir hans séu tilgangslausar, því að eitt er víst; Höllin er til. Það eru aðeims fyrirmæli þau, sem þaðan koma, sem eru óskiljanleg. í skáldsögunni „Amerika", segir frá 16 ára pilti að nafni Karl Rossmann, sem gerzt hefur útflytjandi frá Evrópu til Ameríku, og tilraunum hans til þess að finna sér fótfestu í hinni nýju veröld. Hér lýsir Kafka umkomuleysi ein- staklingsins í risavaxinni iðnmenningu nútímans og minna sumar myndir þær, sem Kafka dregur hér upp, á Charlie Ohaplin. Þess ber þó að gæ-ta, að skáld- sagan er rituð, áður en Chaplin var með nokkrum hætti kominn fram á sjónar- sviðið, enda kom Kafka aldrei til Amer- iku. Auk þessara þriggja skáldsagna skrif- aði Kafka, eins og getið var hér að fram- an, nokkrar smásögur og uppdrætti í óbundnu máli (skissur), sem hann ekki náði að vinna fullkomlega úr. Beztu smásögur hans eru perlur, ein- stæðar í sinni röð. í einni þeirra, sem um leið er þeirra lengst, lýsir Kafka örlögum ungs manns, sem vaknar upp við það einn góðan veðurdag, að hann er orðinn að risavöxnu skordýri. Kafka lýsir viðbrögðum hans gagnvart þessum örlögum sínum sem og viðbrögðum for- eldra hans og systur. í fyrstu eru hin' síð- arnefndu skelfd, en síðar breytist afstaða sinn, sem var honum köllun og dýr- mætari en allt annað. Mjög lítið birtist samt af verkum Kafka í lifanda lífi, enda gerði hann ekkert til þess að koma þeim á fram- færi. í>au voru eintal sálarinnar í fyllstu merkingu. Meginhluti verka hans, skáldsögumar þrjár sem reyndar urðu aldrei fullgerðar, auk ýmissa ann- arra mikilvægra verka, kom fyrst fram í dagsljósið eftir dauða skáldsins og þá meira að segja andstætt vilja hans. Hann hafði gefið vini sínum, sem sjá skyldi um eigur hans eftir hans dag, ákveðin fyrirmæli um að brenna þau. Þessi vin- ur hans treysti sér ekki til þess að verða við þessum fyrirmælum og hafði látið Kafka vita af því, enda gerði hann sér fullkomlega ljóst, hver verðmæti myndu þar hafa farið forgörðum. Þann- ig forðaði þessi maður einhverjum sér- stæðustu bókmenntum þessarar aldar frá glötun. í lok árs 1917 veiktist Kafka af berklum og lífsferill hans síðan ein- kennist af árangurslítilli baráttu við hinn óvinnandi sjúkdóm. Hann andaðist á heilsuhæli skammt frá Vín 3. júní 1924, mánuði áður en hann hefði orðið 41 árs gamall. Lík hans var síðan flutt til Prag og jarðsett í grafreiti Gyðinga í Prag-Straschnitz. Enn er ekki unnt að skera úr um stöðu Kafka í bókmenntum þessarar aldar. Verk hans njóta stöðugt vaxandi athygli og viðurkenningar. Mörgum finnst sem hann hafi sagt fyrir um, hvaða veg þessi öld myndi ganga. Víst Faðirinn, Hermann Kafka þeirra brátt úr meðaumkun í viðbjóð og fyrirlitningu, og að lokum í afskipta- leysi. Saga þessi er á meðal þess litla, sem þýtt hefur verið eftir Kafka á ís- lenzku, en hún birtist árið 1960 í þýð- ingu Hannesar Péturssonar undir nafn- inu „Hamskiptin“. Lengra verður hér ekki farið í að lýsa Móðirin, Julie (fædd Löwy) verkum Franz Kafka. Lýsing á þeim verður aldrei annað en afar ófullkomin mynd þess, sem þar er að finna. Eins skal þó getið enn. Frásögn hans er lipur og létt og sögur hans eru ekki „leiðin- legar“, sem sumir álíta að hljóti ein- hvern veginn að fylgja góðum bók- menntum. F ranz Kafka var maður einmana. Hann trúlofaðist tveimur stúlkum, ann- arri þeirra meira að segja tvisvar, en þegar á átti að herða gat hann ekki hugsað sér að ganga í hjónaband. Við- horf hans gagnvart hjónabandi og fjöl- skyldulífi var þó mjög jákvætt. Hann taldi hvorttveggja æskilegt og eftir- sóknarvert. Skýringin á breytni hans samt er sennilega sú, að hann hefur álitið, að hjónaband mundi ekki geta gefið honum naegiiegan tíma né næði til þess að leggja rækt við skáldskap er, að óttl og vonleysi eru ríkur þáttur í sögum hans, en þeim mun skærari er birtan af þeim glampa fyrirheits, sem þar er að finna. Rödd hans er rödd hrópandans í eyðimörkinni. Hún er óviss um takmarkið en fullviss um eitt: að við verðum að leita þess. »■"' " - —■ - - - —— — — — Séra Bjarni Framhald af bls. 35 hlustað á hina gömlu hljóma. Nætur- galinn söng, og sólskinið lagði inn um gluggann til keisarans, sem vaknaði aft- ur, endurhresstur og heill heilsu. i Menn hugðu hann dauðan, en nætur- galinn sat hjá honum og söng, og hann sagði við keisarann: „Ég skal sitja að kvöldi dags á trjágreininni þarna við gluggann og syngja fyrir þig, svo að þú verðir glaður og þó hugsandi um leið; ég skal syngja um þá, sem hamingju- samir eru; ég skal syngja um hið illa og góða, sem í kringum þig er og leyndu er haldið“. Er það ekki svo, að þegar á reynir, þá spyr sálin eftir því, sem hefir staðizt prófið? Þá gleymist svo margt, sem menn dáðust að, umkringdir af fjöld- anum. En þá rifjast upp minningin um hið bezta, um hina heilögu hljóma, sem eiga þann mátt að endurhressa sálina. Það eru hinir himnesku hljómar, sem þekkjast á því, að sálin eignast frið um leið og á þá er hlustað. Aldrei gleymist eilífa lagið við píla- firímsins gleðisöng: Fjárhirðum fluttu fyrst þann söng Guðs englar, unaðssöng, sem aldrei þver. Guð gefi, að sá sSngur berlst til mann- anna, að eilífa lagið aldrei gleymist, því það hressir sál í neyð. Guð gefi, að sá söngur þagni aldrei í kirkju hans. Ég vildi, að ég gæti flutt mönnunum boðskapinn þannig, að þeir verði glaðir og þó hugsandi um leið. Þetta erindi vil ég eiga með orðurn mínum. Hagalagðar Kastaði upp skónum. ] Piltur, 13 ára, hét Jón, féll ofan i um holu um vorið um vertíð í Knar- ! artungu í Breiðuvík; hans var leitað 1 af nær 20 manns; fannst nær hálf- um mánuði síðar, þvi skór hans voru uppi á holubarminum, hverjum hann hafði upp kastað. Gryfjan var nær þuKL Varð að síga ofan til hans. Var hann þá andvana og lá á grúfu á þurru. Grímsstaðaannáll 1707. Ýmislegt skeðL Vorið mikið gott og gagnsamt bæði til lands og sjávar. — Nú komu skip um fardagaleyti á hverja höfn. — Þá var bannað að taka skatt í 3 ár af þeim, sem bú reistu. — Björn Markús- son, lögmaður, átti barn fram hjá konu sinni. (Ölfusvatnsannáll 1760). 38 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 24. desember 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.