Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1965, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1965, Blaðsíða 7
---------- SÍMAVIÐTALIÐ ----- Hjá mörgum er tveggja sfunda ferð í vinnuna — 21460 — Eimskipafjelag íslands! — Er Sigurlaugur Þorkelsson við? — Andartak. — Já. — Sigurlaugur? — Já. — Lesbók Morgunblaðsins. Við heyrðum, að hann Harald Faaberg, yngri, væri hér toeima? Hvar væri helzt hægt að ná í hann? — Það vill nú svo til, að mað- urinn er staddur hér hjá mér, sitiur á mó'ti mér. Andartak. — (Það gengur ekki alltaf svona vel). — Harald Faaberg. — Já, góðan dag, Lesbók Morgunblaðsins. Hafið þér ver- ið lehgi heima? — Síðan áttunda júlí. En við förum aftur utan um næstu mánaðamót. — Þér eruð með alla fjöl- skylduna? — Já, konu og tvær dætur. Við höfum ferðazt um allt land í sumar. Höfum ekki verið sam- an heima í tvö ár. — Og hvert hafið þið farið? — Austur, síðan norður —• Mývatn, Eyjafjörður, Skaga- fjörður. Ferðuðumst rólega, með tjald og svefnpoka. Erum ákaflega ánægð með sumarið. — Já, og þér hafið verið full- trúi Eimskips í New York í tvö ár — og líkar vel? — Já, mikil ósköp. Starfið er skemmtilegt, stöðugt sam- band við heimalandið. Við höf- um komið okkur vel fyrir, dætr unum gengur ágætlega í skól- anum, frúin unir.hag sínum vel. Það er ekki hægt að biðja um meira. Það er gott að búa í Bandaríkjunum, fólkið er mjög vinsamlegt í unigengni. >ret ,vel hugsað mér að vera áfram, enda verður svo. — Skrifstofan er á Manhátt- an, er það ekki? — Jú, ég er fulltrúi félagsins á skrifstofu félags þess, sem hefur umboð fyrir Eimskip. Skrifstofan er í Waíl Street. En skipin okkar eru oft affermd í Gloucester, Massachussetts, eða í Cambridge, Maryiand, svo að ég þarf að bregða mér þangað við og við. Annars eru þau yf- irleitt fermd í New York — og flutningur hefur verið mjög mikill að undanförnu. Við höf- um verið með þrjú skip í föst- um ferðum vestur, en ég geri ráð fyrir, að við þurfum að fá aukaferðir á næstunni. Önnur íslenzk skipafélög hafa ekki reglubundnar siglingar vestur, svo að við höfum nóg að flytja. — Hve lengi eru skipin frá íslandi til New York? — Sjö til átta sólarhringa, ör- lítið lengur að vetrinum, ef veð ur er vont. — Og þér faríð með fjölskyld una sjóleiðina? — Báðar leiðir. — Er það ekki fullmikið að verja svo löngum tíma í ferð- ina? — Nei, síður en svo. Við kunnum mjög vel við okkur á sjónum, og fól'k fær mikla og gó'ða 'h'víld á slíkri ferð, því að farþegarýmið er takmarkað — og mjög rólegt um borð. — O'g þið hafið yfirleitt far- þega á þessari leið? — Það er eftirsótt að kom- ast með skipi á sumrin — og þeir, sem hafa einu sinni far- ið, koma gjarna aftur. — En hvar búið þið annars — langt utan við New York borg? — Nei, ekki mjög langt. í Larchmont, Westchester Coun- ty, New Yonk-riki. Ég er klukkutíma og korter í vinn- una. Það er miðlungsvega- lengd. því að margir ferðast í tvo tíma í vinniuna að morgni — oig fara af'tur 'heim að kvöldi. — Bregður yður ekki við? — Þetta kemst al'lt upp í vana. Ég fer alltaf í lest, fæ þá tíma til að lesa talöðin og gliuigga í eitt og annað. Það gera allir í þessum lestarferð- um, og þess vegna líður tíminn fui'ðuskjótt. — Þér farið ekki í bíl? — Nei, umferðin er það mik- il, að fólk, sem þaxf að mæta á ákveðnum tíma í vinnu og fei'ðast þessa vegalengd, hætt- ir yfirleitt ekki á að nota bíl- inn. Ég yrði að fara eld- snemma á morgnana — og heim seint að kveldinu til þess að losna við umferðarþvöguna, sem getur tafið mann ótrúlega lengi. Þarna eiga nefnilega all- ir bíl — og hann ekki fyrir- ferðarlítinn. í Bandaríkjunum er bíllinn ekki lúxus, heldur hi'ein nauðsyn. Mjög margir eiga tvo, sumir þrjá bíla, ef fjölskyldan er stór. f útborgum er mjög lítið um stcætisvagna, sums staðar eru þeir alls ekki — og þá kemst enginn leiðar sinnar nema að eiga bíl. Þarna eru bílarnir líka tiltölulega ó- dýrir. — Þér nefnduð, að dætur yð- ar gengju í skóla. Hve gamlar eru þær? — Þrettán og fimmtán ára. Þær ganga í sama skólann, sem ekki er mjög langt frá heimili okkar. En skólavagninn tekur þær spölkorn frá heimilinu — svo að þetta er allt vandalaust. Annars er algengt, að húsmæð- ur aki börnum sínum í skólann, safna þá oft í bílinn börnum nágrannanna — og skiptast á, sína vikuna hver. — Er námið ekki allfrá- brugðið því, sem stúlkurnar vöndust hér heima? — Jú, einkum vegna þess að nemendum, jafnvel á þessum aldri, er frjálst að velja hluta af þeim námsgreinum, sem þeir leggja stúnd á. — En þá er frúin ein heima allan daginn? —Já, oftast. Það gæti verið tilbi'eytingarsamara hjá henni, ef hún æki bíl,; en það gerir hún ekki. Það er álitlegur spöl- ur í næstu verzlanir, svo að við gerum nær öll innkaup einu sinni í viku og höfum því frystikistu og allan útbúnað tdl þess að geyma matvælin. Þetta er algengasta fyrirkomulagið í Bandaríikjunum, því að hin svo- nefndu amerísku þægindi eru ekki orðin tóim. M'jólik og egg eru samt borin í hús annan hvern dag, og það er vitanlega mikill kostur. — Jæja, við ætlum ekki að halda yður í símanum lengur, en þökkum samtalið og vonum að fjölskyldunni gangi' vel vestur. — Takk fyrir. Þið ættuð að neyna sjóleiðina vestur ein- hvern tíma. Góð afslöppun Jyr- ir bjaðamenn sem aðra. —| Hver veit! Svavar Gests skrifar wm> Þá er hún komin nýja hljómplatan með Beatles. Lögin eru „Help“ og „I’m . down“, bæði. úr hinni nýju kvikmynd þeiri'a, ,,Help“. sem 'Stendur tiLað frumsýna . urn þetta leyti. Bæði epu lög- in eftir þá félaga John Lenn on og Paul McCartney og bæði góð. Platan S'jálf er skemmtileg og upptaka margbrotin. Þeir félagar syngja raddað undír 'söng og verður enginn leikur fyrir þá að flytja lögin opinber- lega, þar sem ekki er hægt að grípa til margfaldrar út- sendingar. Þetta kom fyrir þau Les Paul og Mary Ford fyrir 10—15 árum. Þau sungu og léku inn á margar þlötur sem ’ náðu gífurlegum vinsælduin, en þar var um márgfaldar upptökur 'að ræða, Mary söng Stundum fjórraddað og Les Paul lék allan undiirleik með mi.smun- andi si.peng,iahljóðfærum: En svo þégar þau voi'u fengin til að koma fram opinber- lega, þá fór mesti glansinn af því, þar var aðeins um eina yfirferð að.ræða. (Út- úrdúr, sem kemur þessu ef til vill ekki við). Éeatles halda enn sihum fyrri vinsældum, aðdáendur þeiri'a eru ef til vill ekki jafn skapheitir og þeir voru fyrir 1—2 árum, en þeir eru þarna enn og halda enn upp á sína gömlu og góðu Beatl- es, þó að Rolling Stones, Animals, Kinks, Hollies, Searchers og í það minnsta eitt . þúsund aðrar hljóm- sveitir eigi lika sína aðdá- endur. . Um leið og þessi tveggja laga plata kom út, sendu Beatles frá sér stóra . plötu, fjórtán laga. Á henni eru sjö lög úr framangreindri kvik- rnynd og önnur sjö lög, se.m ,sum hver eru mjög skem.mti- leg . og. nokkur þeirra ólík gei't áður. Píanó og það fleiri en eitt eru notuð í sumum lögunum og eitt lagið er meira að segja í einskonar þjóðlagastíl. Þessi stóra plata nær vafalaust miklum vinsældum, svo að það vei'ða fjórtán ný Beatles-lög. • í gangi næstu mánuðina. Menn éru að vélta því fyi'ir sér hvort mesti ljóm- inn faiú nú ekki að bverfa rpúsik, eða eins og íslending- ar kalla það: bítlamúsik. Á vinsældalistunúm í Énglandi og Amei'íku er þessi músik enn alls ráðandi, þó þrengja sér þarna inn á milli stöku sinni þjóðlagaplötur, og er ^ Jþað, álit músi'kmanna úti í hinum stóra hljómplötu- heirnS, 'að' þjöðlagamúsikin muni taka við af bítlamúsik-. inni. 37. tibCL 1965 — LESBÓK MQRGUNBLAÐSINS 7 'íL',11*vic ■.9 kw'£ Á&.jf æ 3L J»»'iil

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.