Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1962, Blaðsíða 2
S VIP-
MVND
Y RIR rúmum 100 árum
var kenrungin um náttúruval og
framþróun tegundanna kunngerð í
„Linnean Society“ í Lundúnum af
Charles Darwin og Alfred Russell
Wallace. Hin gertæku áhrif hennar
á hefðbundinn hugsunarhátt segja
enn til sín í líffræðivísindum; þeirra
verður greinilega vart í þjóðfélags-
vísindum og sálarfræði; og á óbein-
an hátt hefur kenningin gagnsýrt
menningu okkar.
Hin líffræðilega bylting er enn í full-
um gangi, og helzti framvörður henn-
ar á síðustu árum er dálítið stirð-
legur en þó stæltur maður, fyndinn,
óþolinmóður og gæddur eldmóði og
krafti skólapilts, þó hann sé orðinn 75
ára gamall. Þessi maður er Sir Julian
Huxley og hann hefur ekki að ófyrir-
synju haslað sér völl á þessum vett-
vangi. Afi hans var Thomas Huxley, og
hefur fordæmi hans með sérstæðum
hætti mótað og litað líf sonarsonarins.
Thomas Huxley átti stærstan þátt
í fæðingu og frumvexti Darwins-kenn
ingarinnar, kunngerði heiminum hana,
harðist fyrir henni og sá hana í stór-
um dráttum viðurkennda um víða ver-
öld. Sonarsonur hans hefur manna mest
stuðlað að vexti og viðgangi kenning-
arinnar, fleytt henni yfir marga erfiða
hjalla og hert hana í eldi reynslunnar.
Á ytra borðinu eru þessir menn mjög
Ifkir, báðir afburðavísindamenn, báðir
búnir óvenjulegum rithöfundaihæfi-
leikum, báðir sökkvandi sér í æ rí'kara
mæli niður í félagslegar og siðferðileg-
ar afleiðingar hinnar nýju líffræði. og
báðir gæddir frábærlega viðsýnni og
óheftri hugsun.
Samt er mikilvægur munur á þeim.
Enda þótt Thomas Huxley væri varkár
vísindamaður, var hann skilgetið af-
kvæmi hins bjartsýna og sjálfumglaða
Viktoríu-tímabils. Þekking og skyn
semi voru sífellt að vinna stærri sigra
yfir fáfræði og hjátrú; engin ástæða var
til að ætla að þeirri þróun yrði snúið
1 gagnstæða átt. Hversu bjartsýnn hefði
Thomas Huxley verið, ef hann hefði
órað fyrir að sonarsonur hans ætti eftir
að lifa tvær heimsstyrjaldir og verða
vitni að Auschwitz, Hiroshima, járn-
tjaldinu og daglegri fólksfjölgun í heim
inum sem nemur 100.000 manns?
Hann hefði vissulega orðið að dást
að fjaðurmagni og þrótti sonarsonar
síns, sem sendi mannkyninu þessa orð-
sendingu sjötugur að aldri: „Því við
erum £ senn aðeins líffæri framþróun-
arinnar, sem verka í þjóðfélaginu, og
jafnframt (raunverulega eða aðeins
hugsanlega) hin yfirskilvitlega niður-
staða þróunarinnar, þannig að einung-
is í okkur er hægt að koma til leiðar
fullum blóma framfaranna og gera
ávexti þeirra áþreifanlega."
Julian Sorell Huxley fæddist árið
1887 og var elzti sonur Leonards Hux-
leys, sem var ritstjóri tímaritsins „Corn-
hill Magazine". Hann stundaði nám í
Eton og Balliol, flutti síðan fyrirlestra
Og fékkst við rannsóknir á hegðun jurta
og fugla. En eirðarleysi hans og starfs-
orka knúðu hann til að ferðast víða um
heim, m.a. til Ítalíu, Ameriku og
Spitzbergen. Jafnframt fór hugur hans
að leita æ meir til viðfangsefna, sem
lágu langt utan við hans eigin svið.
Síðan átti hann samvinnu við H. G.
Wells um að semja bókina „The Science
of Life“. Hann lét af prófessorsembætti
sínu við „King’s College" í Lundúnum
í því skyni „að verja öllum tíma mín-
um til skrifta og rannsókna og til að
kanna leiðir til að gera niðurstöður
vísindalegra rannsókna almenningi
skiljanlegar."
Það eru þessi viðfangsefni sem gert
hafa það að verkum, að skammsýnir
og innibyrgðir háskólamenn hafa litið
hann hornauga. Hin ógnvænlegu heiti
„blaðamaður" og „alþýðufræðari" hafa
verið hengd á hann. Það hefur ekki
beinlínis glatt sérfræðingana hve fljót-
ur hann er að ná valdi á viðfangsefn-
um annarra („of fljótur", segja gagn-
rýnendur), hve auðvelt hann á með að
fara yfir víðáttumiklar lendur vísind-
anna og skila samfelldri og áreiðan-
legri skýrslu um meginatriði landslags-
ins.
Hér verður hann að gjalda þess, að
hann er skarpgáfaður, býr yfir furðu-
legu minni og finnur hjá sér knýjandi
þörf til að tengja vísindalegar upp-
götvanir lífinu sjólfu. svo úr verði órofa
heild. Margbreytnin í lífsferli hans
speglar víðfeðmi hugans. Auk starfa
sinna við háskóla hefur hann verið
framkvæmdastjóri dýragarðsins í
LE
Lundúnum, einn af stofnendum „Poli-
tical and Economic Planning", einn af
upphaflegum meðlimum í „Brains
Trust“ brezka útvarpsins (BBC), ráð-
gjafi um menntun innfæddra í Afríku,
meðlimur í „National Parks Com-
mittee“, og á árunum 1946—48 forstjóri
Menningar- og vísindastofnunar Sam
einuðu þjóðanna (UNESCO).
A árum allra þessara margvís-
legu anna hefur hann samið fjöldann
allan af bókum, ritgerðum og fyrir-
lestrum um sundurleitustu efni: maura,
Afríku, fósturfræði, fuglarannsóknir,
áætlunarbúskap, siðfræði, krabbamein,
og að sjálfsögðu margar bækur og rit-
gerðir um framþróunarkenninguna. Bók
hans, „Evolution, The Modern Synthes-
is“, sem kom út árið 1942, er af mörgum
talin vera merkilegasta ritið um þessi
efni síðan Darwin gaf út „Origin of
Species" (Uppruni tegundanna).
Huxley hefur orðið vitni að og notið
góðs af hinni öru þróun í mörgum
greinum vísindanna: hinni nýju vísinda-
legu dýrafræði sem tengd er nýjustu
rannsóknum á hegðun dýranna; frjó-
öngum erfðafræðinnar, sem var óþekkt
á dögum Darwins; og loks hinum geipi-
legu framförum í lífefnafræði, sem er
farin að afhjúpa hina efnafræðilegu
hlið á hegðun og á líffræði yfirleitt.
Könnun Huxleys á tilhugalífi sef-
anda og hegra var meðal fyrstu ná-
kvæmu rannsókna á hegðun dýra, sem
leiddu til verka þeirra Konrads Lorenz
(höfundur „King Solomon’s Ring“),
Tinbergens og annarra. Þetta starf Hux-
leys var þáttur f þeirri viðleitni nútima
vísindamanna að fara út fyrir hið
þrönga svið líffærarannsókna í nátt-
úrugripasöfnum og hinar ónákvæma
athuganir áhugamanna um fuglarann-
sóknir, og að komast til fyllra skilninga
á gagnkvæmum áhrifum og viðbrögðum
dýra og jurta, og á því jafnvægi og
spennu sem er að verki í ríki nátlúr-
unnar.
Huxley átti ríkan þátt í að fá áhuga-
menn til að taka þátt í þessum rann-
sóknum. Skýrslueyðublöðin sem hann
lét gera í samvinnu við James Fisher
gerðu áhugamönnum kleift að safna
nákvæmum upplýsingum um hreiður-
venjur fugla og um stærðina á klóm
þeirra .
Meðan Huxley var framkvæmdastjóri
dýragarðsins í Lundúnum gerði hann
Whipsnade að sjálfstæðum dýragarði.
þar sem dýrin lifðu í umhverfi svipuðu
því sem þau áttu að venjast úti í nátt-
úrunni.
Huxley tekur enn virkan bótt í fugla-
rannsóknum. Það er til marks um fjöl-
hæfni hans, að fyrir noikkrum árum
fór hann með leiðangri fuglafræðinga
til Coto Donana á Spáni og starfaði þá
sem grasafræðingur leiðangursins. f
ferðalögum er hann rómaður féiagi,
hugmyndaríkur, frábær sógumaður og
áhugasamur hestamaður.
Nú orðið er hann laus við kennslu-
störf og aðrar kvaðir. Synir hans tveir
eru fullvaxnir og flognir úr hreiðrinu,
en hann býr í Hampstead ásamt konu
sinni af svissneskum ættum, sem þykir
ótrúlega ungleg í útliti. Þó hann sé
löngu kominn yfir aldurstakmark
virkra vísindamanna, er hugur hans
enn sistarfandi. Fyrir nokkrum árum
tók hann að sér að flytja fyrirlestur
um krabbamein í „Sloane-Kettering
Foundation for Cancer Research“ og
las allt sem hann komst yfir um þetta
efni á nokkrum mánuðum. Síðan samdi
hann tvær langar greinar upp úr fyrir-
lestrinum, og vöktu þær svo mikla at-
hygli, að hann samdi upp úr þeim heila
bók, sem þykir merkilegt rit um þetta
erfiða vandamál.
að er hins vegar sérkennilegt
fyrir Huxley, að hann lætur sér ekki
nægja að rannsaka líffræðileg vanda-
mál út af fyrir sig — heldur verður
hann að tengja hugmyndir þróunarlíf-
fræðinnar manninum sjálfum. A þess-
um vettvangi hefur hann komið fram
með ýmsar eftirtektarverðustu hug-
myndir sínar.
Hann álitur, að maðurinn hafi náð
einstæðri aðstöðu í þróunarsögunni
með því að skapa sér tungumál og getu
til að safna reynsluforða og hefð. Þar
eð hann hefur að miklu leyti náð valdi
á umhverfi sínu, er baráttan fyrir til-
verurétti ekki lengur fyrst og fremst
líkamleg, heldur félagsleg og menning-
arleg.
Hins vegar varð gagngerð breyting
á högum mannsins, þegar hann varð
sér meðvitandi um framþróunina fyrir
tilverknað vísindanna. Nú veit hann,
að hann lifir í þjóðfélagi, sem er breyi;-
ingum háð, og er farinn að gera sér
grein fyrir öflunum, sem þar eru að
verki. Huxley segir um þetta: „Það er
Frh. á bls. 9.
Utgefandi: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur KonráS Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm: Aðálstræti 6. Slmi 22480.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
13. tölublað 1962