Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1962, Síða 1
er einnig Þingvallamynd eftir Ásgeir
Bjarnþórsson, sem margir halda að sé
eftir Kjarval, stórfallegt málverk.
Merkilegasta myndin þarna í stof-
unni er þó eftir Kjarval, máluð 1957.
Mjög sérkennileg sveitastemning og
ólík öðru, sem ég hef áður séð eftir
meistarann. Stórir gráir steinar og tveir
grænir fletir, spínatgrænir. Stefán
sagði eftirfarandi sögu um þessa fal-
legu mynd:
Færeyjagrænka
ÞeGAR ég var að syngja í Rigo-
letto í Þjóðleikhúsinu, þá leit ég oft
við hjá Kjarval, en hann hafði vinnu-
stofu í húsinu hans Jóns Þorsteinsson-
ar, þar á móti. Kjarval vann haki
brotnu, og þegar ég rápaði til hans,
Þennan græna Iit hef ég aldrei sé8,
þetta er eins og tún í Færeyjum.
Mikill snillingur ert þú, sagði þá
meistarinn, auðvitað er þetta Fær-
eyjagrænka, og svo vildi hann gefa
mér málverkið. Ég harðneitaði að
taka við slíkum dýrgrip og með það
fór ég. Þegar ég seinna hélt til Kaup-
mannahafnar, þá fann ég strigavönd-
ul í káetunni minni á Gullfossi. Það
er þessi mynd.
Þrenning á helgum stað
I FLYGILSTOFUNNI er Kjan.
valsmynd frá 1951 og málverk af
Stefáni, sem Ásgeir Bjarnþórsson
málaði 1957 (sjá mynd). Þar er einnig
brjóstmynd af Stefáni, sem Sigurjón
Ólafsson gerði fyrir 15 árum. Richard
litli var svo sláandi líkur höggmynd-
inni, að ljósmyndarinn gat ekki stillt
sig um að taka mynd af þeim sam-
an (sjá mynd).
Þarna er einnig olíumálverk eftir
Ásgrím, hið síðasta, sem hann gerði.
Á því er plata, sem á er greypt: Stefán
Islandi fimmtugur, frá vinum ogvanda-
mönnum. Þar hjá er vatnslitamynd eft-
ir Ásgrím, sem frú Kristjana gaf
Stefáni á brúðkaupsdag þeirra.
Persónan i daúðum hlutum
ÞáB sem fyrst vekur athyglina
á heimili þeirra hjóna eru málverkin
og myndirnar, veggirnir eru bókstaf-
lega þaktir listaverkum. Ég bið Stef-
án um að sýna mér málverkin og hann
verður fúslega við þeim tilmælum.
— Allt hér á heimilinu er annað-
hvort keypt eða gefið til þess að gleðja
okkur hjónin eða börnin, sagði Stefán
við mig, þegar hann stóð upp, hér er
allt persónulegt. Það er með þetta í
huga, sem mér flaug í hug að bregða
upp svipmyndum af hinum þekkta
manni með hjálp þeirra hluta og lista-
yerka, sem strax draga að sér athygli
Fjölskyldan á Solvænget 3: Richard, Kristjana, Stefán og Guðrún.
/ heimsókn hjá
STEFÁNI ÍSLANDI
JF YRIR ekki alls löngu átti
blaðamaður Mbl. þess kost að
heimsækja Stefán íslandi og konu
hans, Kristjönu. Hið fagra heimili
þeirra í Kaupmannahöfn er í snotru
umhverfi, Solvænget 3, nokkuð
fyrir norðan Svanemöllen. Þegar
boðið hafði verið til stofu og Sig-
urður, mágur Stefáns, sem þar var
í heimsókn, bauð mér eld í pípuna,
sagði Stefán:
— Það er ekki hægt að kveikja í
jgamalli tilreyktri pípu með sígarettu-
kveikjara. Það er enginn stíll í því. Og
á samri stund er eins og maður hafi
þekkt hann í mörg ár.
— Og hvernig er veðrið á fslandi,
spyr Stefán mág sinn, sem nýkominn
er að heiman. Það var íínt í Reykja-
Vík, segir Sigurður, en þá grípur
Stefán fram í og segir: — Reykjavík
er ekki fsland, bara smá hjálenda. ís-
land er Norðurland, sérstaklega Skaga-
fjörðurinn, og svo brosir hann hinu
góölátlega brosi Skagfirðingsins, sem
bvo oft hefur varað menn við að ræða
þessi mál frekar.
komumanna á heimili þeirra hjóna.
Yfir sófanum í stofunni (sjá mynd-
ina) er Kjarvalsmynd frá 1939, ein af
mosamyndum hans, og til beggja hliða
eru málverk af börnunum, Richard, 10
ára, og Guðrúnu, 14 ára, sem danski
málarinn Wolff gerði 1956. í stofunni
þá horfði ég þegjandi á hann mála og
fór alltaf jafn þegjandi og ég kom.
Það er gott að fá þig 1 heimsókn,
Stefán, sagði Kjarval einu sinni, þú
ert ekki með neitt kjaftæði. Þegar
hann var að mála þessa mynd, þá
gat ég ekki orða bundizt og sagði:
Þetta er skattholið mitt, segir Stefán,
gamall eikartrésklumpur, sem mér
þykir vænt um. Mig langar til þess að
halda í það eins lengi og húsrúm leyf-
ir. Það er ekki fallegt, en það hefur
sál. Á því og yfir eru myndir og mál-
verk af frúnni.
Á flyglinum mínum, helgasta stað,
eins og Stefán nefndi það, eru þrjár
myndir, af þeim skal fyrst frægan
telja Richard Thors, sagði Stefán, þá
Reumert og svo Jón Helgason. Á
myndina af Reumert er skrifað: Til
min kære ven Stefan Islandi med
guldrösten og guldhjertet, din hen-
givne, Paul.
Frh. á bls. 13.