Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1962, Blaðsíða 13
GUNNÞÓRUNN
f Framhald af bls. 4.
mér og mælt með mér við Valdemar
r-rice. Hef ég hug á að læra hjá hon- s
um látbragðslist (Plastik). Og svo fer
ég í leikhús hér um bil á hverju
kvöldi. Hvaða leikkonur hér fellur yð-
ur bezt við? Ég er mjög hrifin af
Augustu Blad. Og frú Oda Nielsen er
indæl! Ég hef séð „Brúðuheimilið“ í
Konunglega leikhúsinu — ó, ég varð
alveg heilluð af frú Hennings! Já, hér er
margt og mikið að læra. En verst þyk-
ir mér að fá ekki að sjá frú Nansen.
Hvað verðið þér hér lengi? Eins lengi
cg peningamir endast!
Teikningin, sem fylgir hér með, er
tekin úr hinu danska blaði.
Það hefur löngum viljað við
brenna í Leikfélagi Reykjavíkur að
rnenn greini þar á um margt er lýtur
að starfsemi félagsins, einkum að leik-
ritavali og hlutverkaskipun. Svo var
einnig á þeim árum, sem hér ræðir um
og það svo mjög að oft horfði til
vendræða. Má glöggt lesa þetta milli
línanna í bók frú Eufemiu Waage og
F.riðfinnur Guðjónsson vílrur að þessu í
giein sinni í afmælisriti Leikfélagsins
er hann segir: „Verður því þó ekki
neitað, að oft var leikritavali þannig
bagað, að aðeins var tekið tillit til
þess, að í því væru hlutverk við hæfi
eins eða tveggja leikenda, en hinir
ii'ðu að sætta sig við hlutverk, sem
alls ekki voru í samræmi við hæfileika
þeirra. Varð þetta iðulega til að vekja
óánægju, og varð þar að auki tilefni
klíkuskapar innan félagsins". Mun
fcinhver slíkur ágreiningur hafa orðið
til þess að Gunnþórunn Halldórsdóttir
!iét af störfum á vegum Leikfélagsins,
annað hvort skömmu áður en hún fór
lil Danmerkur árið 1905 (síðasta leik-
r:tið, sem hún lék í hjá Leikfélaginu
að þessu sinni, John Storm, var frum-
sýnt 26. des.1904), eða þegar hún kom
heim aftur úr þeirri ferð sama ár. Eft-
ir það lágu eigi leiðir hennar og Leik-
félagsins saman um tugi ára. Var það
eigi fyrr en haustið 1924, er frú Stef-
anía Guðmundsdóttir var formaður fé-
iagsins, að Gunnþórunn hóf aftur leik-
ístarf á vegum félagsins. En enda þótt
Gunnþórunn hefði um þetta leyti ærið
að starfa við hið nýstofnaða verzlunar-
iyrirtæki sitt, þá hafði hún bundizt
?eiklistinni of sterkum böndum til þess
að hún gæti sagt skilið við hana fyrir
fullt og allt. Frá þeim tíma er Gunn-
Jpórunn hætti að leika á vegum Leikfé-
llagsins og til ársins 1924 er hún hóf
þar aftur starf, lék hún með ýmsum
rmáflokkum hér í bæ, var eftirsóttur
gamanvísnasöngvari á skemmtunum og
ó árunum 1920—30 var hún aðalrevíu-
Etjarna bæjarins og lék þá einkum á
vegum Hf. Reykjavíkurannáls, sem Páll
Skúlason ritstjóri átti hvað mestan þátt
sð. Ástæða hefði verið til að ætla að
þessi langa þjónusta Gunnþórunnar við
!hina léttari grein leiklistarinnar hefði
Elævt hæfileika hennar til skapgerðar-
leiks og túlkunar alvarlegra hlutverka.
En raunin varð allt önnur, því að með
komu hennar til Leikfélagsins á ný,
kefst, svo eigi verður um deilt, merk-
asti og glæsilegasti þátturinn í leik-
ferli þessarar mikilhæfu leikkonu. Hún
ttiefur á þesum árum þroskazt mjög í
3ist sinni og hefur nú jafnt á valdi
fúnu gamanhlutverk og veigamikil og
vandasöm skapgerðarhlutverk. Fyrsta
ei nú Petrúnella í Stormum eftir Stein
Sigurðsson. Um leikinn segir svo í
Morgunblaðinu (26. 10. ’24): „Þau
Gunnþórunn Halldórsdóttir, Friðfinnur
Guðjónsson og Stefán Runólfsson fara
Óll ágætlega með hlutverk sín, gaman-
eemi og glens leiksins. Þeim fórst það
evo vel úr hendi að jafnvel Jón Magn-
ússon forsætisráðherra með sinni al-
kunnu stillingu hló oft og tíðum dátt
þar sem hann sat uppi á hinum nýju
svölum“. Eftir þetta leikur Gunnþór-
unn hvert hlutverkið öðru veigameira
og vandasamara. Má með réttu segja að
a-draðar konur verði sérgrein hennar,
enda túlkaði hún þær af sterkri inn-
Jifun og auðlegð skilnings og hjarta-
hlýju, ekki sízi þegar um var að ræða
íslenzkar almúgakonur. Meðal helztu
iilutverka Gunnþórunnar á þessum síð-
ari hluta leikferils hennar má nefna:
Þorbjörgu í Dauða Natans Ketilssonar
eftir Eline Hoffmann, Öglu í Dómum
eftir Andrés Þormar, Geirlaugu í Hall-
sreini og Dóru eftir Einar H. Kvaran,
Grírnu í Jósafat eftir sama höfund,
Staðar-Guanu í Manni og konu, Þor-
grímu galdrakinn í Fróðá eftir Jóhann
Frímann, konu Jóns bónda í Fjalla-
Eyvindi, Vilborgu grasakonu í Gullna
hliðinu, Mettu Marin í Orðinu eftir
Kaj Munk og Ásu í Pétri Guut.
M
VTunnþórunn fær, að heita má
undantekningarlaust, mikið lof fyrir
leik sinn í þessum hlutverkum. Um
leik hennar í Dauða Natans Ketilsson-
ar segir eitt blaðið: „Gunnþórunn Hall-
dórsdóttir lék Þorbjörgu nákvæmt og
eðlilega og efast ég um að aðrir hefðu
bjargað þeim óskapnaði í land“. Um
leik Gunnþórunnar í hlutverki Geir-
laugar í Hallsteini og Dóru segir í Mbl.
(3. 5. ’31): „Þó bar Gunnþórunn Hall-
dórsdóttir .... af öðrum. Leikur henn-
ar var svo látlaus og eðlilegur, að eng-
inn gat fundið, að hér væri um leik að
ræða, heldur veruleika". Og um leik
hcnnar í Jósafat (Grímu) segir sama
blað (20. 3. ’32): „Þessa konu lék
Gunnþórunn af mikilli list. Leikurinn
allur snilldarlegur frá upphafi til enda.
Tilfinningarnar sannar og ósviknar
bæði í sorg og reiði“. Og þannig mætti
lengi teija. Aðeins vil ég bæta því við
að leikur Gunnþórunnar í hlutverki
Mettu Maríu í Orðinu, veríur mér ef
til vill minnisstæðastur af öllu, sem ég
hef séð á íslenzku leiksviði. Svo innileg
og tær leiklist er fágæt, ekki aðeins hér
hjá okkur, heldur þótt víðar sé leitað.
Hlutverkið er eigi mikið að vöxtum,
en gerir þó geysimiklar kröfur til leik-
andans, því að þegar þessi umkomu-
1-ausa, gamla kona vitnar um synd sína
á bænasamkomu Péturs skraddara má
ekki muna hársbreidd svo að atriðið
verði ekki broslegt. En með hinni
miklu nærfærni sinni og djúpu samúð
með smælingjunum sneiddi Gunnþór-
unn hjá þessari hættu með þeim ár-
ar.gri að þetta „litla“ hlutverk var eitt
af áhrifamastu hlutverkum leiksins. Þá
ber og að minnast á leik Gunnþórunn-
ar í hlutverki Ásu í Pétri Gaut. Ása
býr yfir margsiungri skapgerð, sem fær
cít snögga og óvænta útrás í skiptum
l ennar við hinn ódæla son sinn. Hlut-
verkið er því bæðj. erfitt og vandasamt,
en Gunnþórunn leysti það af hendi
með miklum ágætum. Var hún þó kom-
m á áttræðisaldur er hún lék hlutverk-
íð fyrst.
Gunnþórunn Halldórsdóttir fór alls
með 72 hlutverk á vegum Leikfélags-
ins, en ekki er mér kunnugt um hversu
mörg hlutverk hún lék þar fyrir utan.
egar Þjóðleikhúsið var vígt lék
Gunnþórunn sitt gamla hlutverk, konu
Jóns bónda í Fjalla-Eyvindi og Frið-
finnur lék þá Jón sem fyrr. Var þeim
ákaft fagnað er þau birtust á sviði hins
nýja og glæsilega leikliúss. Var það
vissulega ekki að ástæðulausu, því að
þau voru síðustu fulltrúar þeirra frum-
herja íslenzkrar leiklistar, sem með
þrautseigju og ósérplægni unnu mark-
visst að því að skapa Þjóðleikhúsinu
tvimælalausan tilverurétt.
Þegar Gunnþórunn varð áttræð, 9.
janúar 1952, efndi Þjóðleikhúsið til
sýningar á Gullna hliðinu til heiðurs
hinni öldruðu listakonu. Lék Gunnþór-
unn þá hið gamla hlutverk sitt, Vil-
borgu grasakonu. Fögnuðu leikhúsgestir
henni af miklum innileik og var aug-
Ijóst að hún hafði á löngum listferli
smum unnið hug og hjarta samborgara
sinna. Lýsti formaður Félags íslenzkra
leikara yfir því við þetta tækifæri að
Gunnþórunn hefði þennan dag verið
kjörin heiðurfélagi félagsins. Var þetta
í síðasta sinn er Gunnþórunn stóð á
leiksviði og lauk þar með löngum og
merkum leikferli einnar af mikilhæf-
ustu leikkonum þessa lands.
Siguröur Grímsson.
EVELINE
Framhald af bls. 3.
til föður hennar. Ernest hafði verið
uppáhaldið hennar, en henni þótti líka
vænt um Harry. Pabbi var farinn að
láta á sjá upp á síðkastið, hafði hún
tekið eftir; hann mundí sakna hennar.
Stundum gat hann verið reglulega inn-
dæll. Ekki alls fyrir löngu, þegar hún
lá rúmföst einn dag, hafði hann lesið
fyrir hana draugasögu og ristað handa
henni brauð við eldinn. Annan dag,
þegar mamma var enn á lífi, höfðu
þau öll farið 1 skemmtiferð út á
Howth-hæðina með mat og drykk.
Hún mundi að pabbi hafði sett upp
hattinn hennar mömmu til að koma
krökkunum til að hlæja.
Tíminn var brátt á þrotum, en hún
sat áfram við gluggann, hallaði höfð-
inu að gluggatjöldunum og andaði að
sér þefnum ur rykugu baðmullarefn-
inu. Lengst niðri í breiðstrætinu gat
hún heyrt leikið á götuorgel. Hún
þekkti lagið. Skrýtið að það skyldi
koma einmitt þetta kvöld til að minna
hana á loforðið til móður sinnar, lof-
orðið um að halda heimilinu saman
eins lengi og hún gæti. Hún minntist
síðustu næturinnar sem móðir hennar
lifði; hún var aftur komin í þrönga
dimma herbergið hinum megin við
ganginn og fyrir utan heyrði hún
þunglyndislegt lag frá Ítalíu. Orgel-
leikaranum hafði verið skipað að fara
burt og fengið sex pence fyrir. Hún
mundi hvernig faðir hennar reigsaði
aftur inn í sjúkraherbergið og sagði:
„Þessir bölvaðir ítalir! Hvað hafa
þeir hingað að vilja!“
M eðan hún var niðursokkin 1
hugsanir sínar, gagntók eymdarmynd-
in af lífi móður hennar kvikuna í sjálfri
veru hennar — myndin af þessu lífi
hversdagslegra fórna sem lauk með
endanlegri sturlun. Það fór hrollur um
hana þegar hún heyrði aftur rödd móð-
ur sinnar endurtaka í sífellu með fárán-
iegri þrákelkni: j
„Dereván Serán! Dereván Serán!"
Hún spratt á fætur gripin skyndilegri
skelfingu. Sleppa! Hún varð að sleppa!
Frank mundi bjarga henni. Hann mundi
gefa henni líf, kannski líka ást. En hún
vildi fá að lifa. Hvers vegna ætti hún
að vera vansæl? Hún átti rétt á ham-
ingju. Frank mundi taka hana í faðm
ser, vefja hana örmum Hann mundi
bjarga henni.
i
Í5ún stóð í iðandi þvögunni á stöð-
inni við Norðurbakkann. Hann hélt í
höndina á henni og hún vissi að hann
var að tala við hana, segja eitthvað um
íerðalagið aftur og aftur. Stöðin var
full af hermönnum með brúnan farang-
ur. Út um breiðar dyrnar á skýlinu sá
hún bregða fyrir svörtu bákni skips-
ins þar sem það lá við hafnarbakkann
með uppljómuð kýraugu. Hún svaraði
engu. Hún fann að hún var föl og köld
á vanga, og úr völundarhúsi eymdar
sinnar bað hún Guð um að taka stjórn-
ina í sínar hendur, leiða henni fyrir
sjónir hver væri skylda hennar. Skip-
íð blés löngu, sorglegu blístri út í þok-
una. Ef hún færi,- yrði hún með Frank
á sjónum á morgun siglandi til Buenos
Aires. Það var búið að panta farmið-
ana. Gæti hún enn snúið til baka eftir
allt sem hann var búinn að gera fyrir
hana? Bágindi hennar vöktu henni
ógleði í líkamanum og hún hélt áfram
að bæra varirnar í hljóðri og heitri bæn.
Bjalla hringdi og lamdist við hjart-
að í henni. Hún fann að hann tók í
höndina á henni.
„Komdu!“
Öll heimsins höf byltust kringum
hjarta hennar. Hann var að draga hana
út í þau: hann mundi drekkja henni.
Hún greip báðum höndum um járnkalt
handriðið.
„Komdu “
Nei! Nei! Nei! Það var ekki hægt.
Hún kreppti hendurnar um járnið í
örviti. Úr hafrótinu gaf hún frá sér
angistarvein!
„Eveline! Evvy!“
Hann ruddist gegnum hliðið og kall-
aði til hennar að fylgja sér. Það var
hrópað til hans að hann ætti að halda
áfram, en hann kallaði aftur til henn-
ar. Hún sneri náhvítu andlitinu til hans,
hlutlaus, eins og hjálparvana dýr. Augu
hennar báru honum engin boð um ást
eða kveðjur eða kunnugleik.
tflúseigendiir á
hitaveitusvæðlnu
Sparið hitunarkostnaðinn
um 10—30% með því að nota
sjálfvirk stiilitæki
Önnumst uppsetningar
Talið við okkui og leitið
upplýsinga
HÉÐINN =
Vélaverzlun — Simi 24260
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13 '