Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1962, Side 12
Mm
■
ÍSLENDINGASOGUR
Framihald af bls. 1.
hliðstæða hins suðræna riddara-
skapar, en þó frábrugðin honum í
því, að hún er sneydd allri ást-
hneigð. Söguhetjan sýnir af sér
drengskap sinn sem óhlutkennda
dyggð, án þess að vænta launa, en
ekki til heiðurs drottningu hjarta
síns. Drengskapurinn hefur í sér
fólgna fyllingu persónuleikans, sem
hefur ekki aðeins í för með sér
sjálfsagt réttlæti og kröfu um jafna
aðstöðu í skiptum við óvini, en
trygglyndi og hjálpfýsi við vini,
ekki aðeins - óbeit á níðingsverkum
við hvem sem er, líka óvini, og
hjálpfýsi við hjálparþurfa, þótt ó-
kunnugir séu, heldur og eins konar
stórsýni, sem slær striki yfir fjand-
skap og veitir óvini hjálp. Þannig
er þá drengskapurinn samgróinn
sæmdinni, en vex þó um leið upp
frá henni og sigrast á sumum nei-
kvæðum afleiðingum hennar, þegar
hún er í þröngri, eigingjarnri mynd.
Hinir fornu íslendingar voru
mennskir menn, menn með kostum
og göllum, menn sem stóðu báðum
fótum á jörðinni. Og sagnahöfund-
arnir sem lýstu þeim og lífi þeirra,
voru raunsæir menn, sem sögðu
jafnt frá góðverkum og illvirkjum,
sem hvort var innan um annað í lífi
manna. En gegnum stranga hlut-
lægni sögunnar höfum vér þá til-
finningu, að segulnálin vísi alltaf
rétt, vér lesum milli línanna aðdá-
un á göfugmennsku og drengskap.
H,
Gæta og ógæfa
. lutlægni sagnanna merkir í
rauninni karlmannlega bölsýni, sem
getur minnt á lífsskoðun grísku
harmleikanna. Það er mannlegt að
óska hamingju, óska þess að saga
endi vel, en þessar sögur segja mest
frá hörmungaratburðum, oft er aðal-
atburður þeirra fall hetjunnar. Sög-
ur ritaðar eftir lok hins klassiska
tímabils, svo og fornaldarsögurnar,
sýna, hve þungt var undir þessu að
búa: þar ryður krafan um góðan
endi sér til rúms, svo að ekkert fær
við staðizt. En á dögum klassisku
sagnanna horfðust menn hins vegar
í augu við hinn harmkvæða veru-
leika. Það er stundum nserri því
geigvænlegt að sjá þetta.
Hvernig þoldu höfundarnir þetta,
svo að þeir hörfuðu ekki undan,
lugu ekki sér og öðrum til hugar-
hægðar? Fyrst og fremst með því að
segja söguna, gefa mynd af lífinu,
sjá og skoða. Stundum með því að
finna lögmál.
Stundum getur að líta skáldlegt
réttlæti í sögunni, en það er líklega
álíka sjaldgæft í henni og í lífinu
sjálfu. Glæpur og refsing fylgjast
ekki að, eða svara ekki hvað til ann-
ars. Einkennilegt er að athuga Víga-
Glúms sögu. í henni virðist gægjast
fram hugmyndin um sekt, sem dreg-
ur á eftir sér refsingu — það er
eins og það sé bak við hina varð-
veittu sögu, eins og skuggi, en það
er eins og í henni hafi þetta orðið
af að þoka fyrir mannlýsingunni,
hlutlægri og miskunnarlausrL
f íða koma fram hugmyndir,
sem tjáðar eru með orðunum gæfa-
ógæfa, — nöfnin eru fleiri. Þær
eiga rætur að rekja til fornra
magntrúar og fylgjutrúar hugmynda,
en í sögunum er mest af hinu forna
horfið og þetta er orðið að eins kon-
ar lífsspeki. Gæfan er hér skilin
sem líkamlegt og andlegt lífsmagn,
sem dregur að mönnum góða hluti
og veldur því, að þeir farsælast af
því, sem þeir hljóta. Ógæfa er and-
stæðan, þurrð þessa magns, og hef-
ur hún í för með sér, að líkamleg
gæði þverra, en einnig hneigð til ó-
happa og böls. Gæfan býr í ein-
staklingnum, hamingjumanninum,
dregur gæði að honum, en hún
geislar einnig frá honum til ann-
arra, sem hljóta gæfu af honum. Á
sama hátt getur ógæfan verið eins
og sýking, sem breiðist út frá ó-
gæfumanninum eins og sótt. Oft er
talað um ættargæfu eða — ógæfu,
og ættarógæfan getur minnt á
grísku hugmyndirnar um ættarsekt,
einkum þar sem hugmyndirnar um
gæfu og ógæfu hafa oft í sér fólgið
siðferðilegt innihald. f fljótu bragði
getur mönnum virzt, að hér sé að
ræða um sekt og refsingu (eða and-
stæður þess), en í rauninni er þetta
ekki svo, heldur er þetta eins konar
sjúkleg tilhneiging, sem komið getur
fram í margvíslegum sundurleitum
myndum, er stundum eðlislæg,
stundum til orðin við óhapp. Um
vandamál ógæfunnar má læra margt
í Grettis sögu. Eða í Njáis sögu —
engin saga sýnir betur ógæfuna sem
eitthvert sýkjandi, eyðandi afl, sem
grefur um sig og eitrar og berst frá
einum til annars; lesanda kemur í
hug sú tilfinning, að hér sé að ræða
um einhvern alheimskraft, senni-
lega blindan, en fjandsamlegan
rr '"nu.*>
Örlöe-in
0
'nnur hugmynd, sem oft
blandast saman við þessa í sögunum
— og í ritum fræðimanna —, er for-
lagatrúin. Eins og gæfuhugmyndin
hefur forlagatrúin í sögunum losnað
við alla forna trú (á nornirnar).
Gæfuhugmyndin fær stuðning af
athugun á mannlífinu, en forlaga-
trúin er frumspekileg, en stafar þó
einnig af lifstilfinningu. Forlagatrú-
in er mjög algeng og sterk í sögun-
um. Hin forníslenzka hugmynd um
örlögin lýtur að áhrifum á atburði
frekar en á mannsviljan, anda
mannsins. Þannig trúðu íslendingar
á mátt mann á sama hátt og Stóu-
menn. Örlögin voru oft hörð, það
var erfitt að þola raunir lífsins,
þungbært að deyja einmitt nú. En
forlögin voru ekki grimm í sjálfu
sér. Engin örlaganorn var til, sem
gleddist af því að auðmýkja mann-
inn. Þannig er aftur komið að þess-
ari karlmannlegu bölsýni, þessu ein-
kennilega óbifanlega hlutleysi. í
augum íslendinga gátu örlögin og
ógæfan verið annað og meira en
byrði, þau gátu verið áskorun á
hinn frjálsa hug um að mæta því,
sem að höndum bar, án þess að bug-
ast, með festu, „án ótta og án von-
ar“. Þetta merkti hvorki hroka né
tálvonir, þvert á móti var aðalein-
kenni þess raunsæið. Trúin á frelsi
mannsviljans gerði lífið að list:
hátterni manna v-ar stjómað eftir
ákveðnum fegurðarreglum. Þetta
kemur sérstaklega skýrt fram í frá-
sögnum af því, hvernig menn brugð-
ust við dauða sínum. „Þau tíðkast
nú hin breiðu spjótin", sagði Atli,
*) Ekki alveg óskyldar hugmyndir
hafa sumir fræðimenn ' fundið hjá
Shakespeare, sjá t.d. A. C. Bradley:
Shakespearean tragedy, London 1932,
einkum bls. 31 o. áfr., 261 o. áfr.
o. s. frv.
bróðir Grettis, þegar hann hlaut
banasárið. Helgi Dropleugarson var
særður til ólífis, og mælti hann þá
til óvina sinna aðeins þetta: „Nú
seinkaði eg, en þú bræddir heldur“.
Á þennan hátt verður dauðastundin
dýrlegasta stund lífsins: Maðurinn
hefur sig upp yfir örlög sín, lífið,
dauðann. Latneskur orðskviður seg-
ir: Vae victis, vei hinum sigruðu. ís-
lendingasögur segja víða sögu, þar
sem atriðisorðið er: Gloria victis,
dýrð hinum sigruðu.
kaflega skýrt koma fram í
Njáls sögu þessar hugmyndir og öll
þau vandamál, sem þar við eru
tengd, ógæfa og forlög, baráttan við
öfl fjandsamleg mannlífinu, við of-
urvald örlaga, um takmörk mann-
legs máttar og mannlegra vits-
muna. Hinar fornu kröfur um vald
yfir sjálfum sér frammi fyrir dauð-
anum eru sjálfsagðar hér sem ella.
En hér er enn meira vert um
mannshugann. Aftur og aftur má
sjá í þessari sögu, hvernig menn
sigrast á hinu andstæða, jafnvel
dauðanum, ekki aðeins með hetju-
legu hátterni, heldur og með eins
konar heiðríkju hugans, frelsi and-
ans: maðurinn gengur sjálfviljugur
undir það, sem verður að vera,
ekki lengur rekinn út í það, stund-
um bregður fyrir hugmyndinni um
yfirbót eða þá fúsleika til að þola,
og um leið þverr tilfinning hinna
hörðu forlaga og í staðinn kemur
önnur, sú að þrátt fyrir allt muni
ástúðug hönd stjórna. Og þessi
saga, sem svo langa lengi hafði
ekki sagt frá öðru en hvernig
myrkrið og bölið óx og þéttist og
vonin þvarr, endar þó að lokum
með einkennilegri heiðrikju. Orð
Aristólesar um kaþarsis, hreinsun
þá, sem sorgarleikurinn hefur í för
með sér, eiga hvergi betur við en
hér.
En það er auðséð, að hér er trúin
á forsjón að koma í stað forlagatrú-
arinnar; það er nýjung í sögunum.
Og hugmyndin um yfirbót bendir
út fyrir sjóndeildarhring þessa lífs
— einnig það er nýjung. Auðsjáan-
lega er komið inn í síðsumar sagn-
anna. Fornu hugmyndirnar og hug-
myndir kristninnar skerast. Komið
er að lokum þessarar bókmennta-
tegundar, sem fjallaði um baráttu
mannsins í þessum heimi.
D J A S S
Framhald af bls. 8.
förum í djassinum. Hugsið ykkur: Ár-
ið 1930 var bassaleikarinn, vinstri
hönd píanóleikarans, gítarleikari, hægri
fótur tromonuleikarans og báðar hendur
hans önnum kafnar við að slá taktinn.
í dag er þetta aðeins hlutverk bass-
ans og hægri handar trommuleikarans.
Coleman leitar meira frelsis í rit-
manum og vill, að trommuleikarinn slái
hluta af tónverkinu, en láti sér ekki
nægja að leika undir. Nýjungar Cole-
mans eru í aðalatriðum einfaldar, óhjá-
kvæmilegar og ósvikinn djass, en þær
eru það aðeins vegna óþreytandi elju
hans. Þegar hann er ásakaður um að
valda fagurfræðilegri ringulreið, svar-
ar hann: „Nei. Þegar ég komst að því,
að ég gat gert vitleysur, fann ég að
ég var á réttri braut“.
í tónlist Orrtette Colemans eru enn
mörg óleyst vandamál. Nú er hún hríf-
andi og ástríðufull, og að hlusta á hana
er eins og að vera við fæðingu einhvers
sem er nýtt og mikilvægt. Enginn mundi
segja, að hún sé alsköpuð, heldur að
með henni sé stefnt í áhjákvæmilega
átt.
Áþreifanlegasta sönnunin um mik
ilvægi hans er, að hann hefur kornið
fram með nýjar hugmyndir um hljóm-
fall, og laglínur hans krefjast nýrrar
framsetningar. Framsetning Parkers
fylgir ennþá ýmsum öðrum. En Ornette
er sá, sem í raun og veru er frumlegur.
Ornette Coleman verður fyrir þeim
sömu ofstækisfullu viðbrögðum, bæði
innan og utan djassheimsins, sem allir
róttækir nýjungamenn verða að búast
við. Eins og Monk á undan honum hlýt
ur hann bæði lof og er kallaður gervi
maður. Meðal allra þeirra, sem eru fram
arlega í „nýjunginni“, er Coleman hinn
eini, sem enn er umdeildur í djassblöð
um. Og þetta er eðlilegt, þvi tómlist hans
tekur stærsta skrefið frá viðteknum
venjum til endurnýjunar á djassinum.
- SVIPMYND
Frarnihald af bls. 12.
og Hardy. Hin löngu söguljóð hans
nafa fært Nýja-Englandi nokkurs kon-
ar þjóðlegt mál. Hvort nokkur talaði
þetta mál, áður en Frost orti ljóð sín,
er önnur sa;'a. Sennilega gerði enginn
það, því einfaldleikinn í söguljóðunum
iiefur greinilega kostað hann mikið
erfiði, næstum eins og hann hefði
þurft að skapa tungumál. Árangurinn
varð sá að Nýja-England, sem áður
hafði vanizt háfleygu og hámenntuðu
tungutaki Hawthornes og Henry James,
eignaðist hversdagslega rödd, og Frost
gaf því líka nýtt hversdagslegt siðgæði.
F rost hefur sagt, að Ijóð eigi að
„hefjast í gleði og enda í visdómi", og
peirri forskrift hefur hann fylgt trú-
j.ega. Ánægja hans af hinum lítilmót-
iegu hlutum í umhverfi hans hefur
fætt af sér einhver fegurstu og ná-
kvæmustu sveitaljóð, sem ort hafa ver-
ið á enska tungu eftir að Clare leið. En
Fi-ost gerir sig sjaldan ánægðan með
lýsingarnar á því sem fyrir augu ber;
hann vill draga af því siðferðilegar
ályktanir. Hann er kennari í innsíta
eðli sínu. Hann gefur öllum hlutum
mennskar eigindir, hvort sem um er að
ræða ljá, laufblað, skordýr, húsdýr, tré
eða fugla. Tvö síðastnefndu fyrirbærin
ei-u eftirlætisyrkisefni hans.
Þegar Frost heldur fyrirlestra eða
les upp í háskólum, dvelst hann þar
giama nokkra daga til að vera „eina
konar póetískur rafall eða aflvaki“,
eins og hann komst einu sinni að orðL
Kannski er það einmitt þetta sem hann
hefur gert fyrir hinn stóra lesendahóp
rinn í Bandarikjunum. Með aga, kunn-
áttu og hugkvæmni hefur honum tekizt
að gera list sína svo fullkomlega ein-
falda og látlausa, að hún virðist vera
irinan reynslusviðs hvers einasta manns.
Hann er í eiginlegum skilningi lýðræð-
islegasta ljóðskáld Bandaríkjanna eftir
Walt Whitman.
ar við kynntumst, heldur á bíL“
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS