Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1961, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
243
Mannfagnaður í Reykjavík á sumardaginn fyrsta. Ungir piltar sýna leikni sína
á bifhjólum. (Ljósm.: Ó. K. M.)
kennd við staðinn Berkeley og rík-
ið Kaliforníu.
Francium og germanium eru
kennd við Frakkland og Þýzka-
land.
Nobelium hefir fengið nafn sitt
af Nobelstofnuninni í Svíþjóð, þar
sem það fannst.
Scandium er kennt við Norður-
lönd (Skandinavíu).
Hafnium er kennt við Kaup-
mannahöfn.
Holmium er kennt við Stokk-
holm. v
Lutetium er kennt við París.
Polonium er kennt við Pólland.
Rhenium er kennt við ána Rín.
Ruthenium er kennt við Rúteníu
(nú í Rússlandi).
Thulium er kennt við Thule eða
Týli, landið nyrzt á hjara ver-
aldar, sem sumir telja að hafi ver-
ið upphaflega nafnið á íslandi, og
er það eina frumefnið, sem við
ísland er kennt.
Stjörnunöfn
Frumefnin cerium, neptunium,
palladium, plutonium og úranium,
eru kennd við stjörnurnar Ceres,
Neptun, Pallas, Pluto og Úranus.
Ýmislegt
Nokkur frumefni draga nöfn af
því hve erfiðlega gekk að finna
þau.
Dysprosium — er dregið af
gríska orðinu dysprositos, sem
þýðir erfitt að ná í (torfengið).
Krypton — er dregið af gríska
orðinu kryptos, sem þýðir falinn.
Tantalum — hefir fengið nafn
sitt af goðsögninni um Tantalus,
sem guðirnir refsuðu og píndu,
þannig að hann gat hvorki náð
í svaladrykk né ávexti, þótt hvort
tveggja væri hjá honum. Álíka
erfiðlega gekk að hafa upp á
tantalum.
Xenon — er komið úr grísku
af orðinu xenos, sem þýðir furðu-
legur og lýtur að því hve erfið-
lega gekk að hafa upp á þessu
efni, vegna þess hve furðulega
það hagar sér.
Sum frumefni hafa fengið nafn
vegna tengsla sinna við önnur
frumefni, er áður voru fundin.
Protoactinium — hefst á gríska
orðin proto, sem þýðir fyrst, og
er skeytt við nafnið á frumefninu
actinium, vegna þess að það verð-
ur að actinium þegar það geislar
sér út.
Radon — dregur nafn sitt af
radium og er gastegund í sam-
bandi við það.
Selenium — er komið af gríska
orðinu selene, sem þýðir máni, og
fekk það nafn vegna þess að það
er ^Jtylt tellerium, en það nafn er
komið úr latínu, tellus, sem þýðir
jörð.
Niobium — er skylt frumefninu
tantalum og hefir fengið nafn sitt
vegna þess, að móðir Tantalus hét
Niobe.
Árið 1885 tókst Carl von Wells-
bach að kljúfa didymium í tvö
frumefni. Menn höfðu áður haldið
að didymium væri frumefni, og
er nafn þess komið af gríska orð-
inu didymos, sem þýðir tvíburi,
og fekk það þetta nafn vegna þess
hve mjög það líktist lanthanum,
svo að það gæti verið tvíburi þess.
En nú er það var klofið í tvö
frumefni, fekk annað þeirra nafn-
ið neodymium (sem þýðir nýtt
didymium). Hitt efnið fekk nafn-
ið prasedymium (prasios er gríska
og þýðir grænn) og þýðir nafnið
því grænt didymium.
Dómari mælti við kæranda:
— Þér segið að þessi maður hafi rænt
yður. Hér er alt það, sem fannst í vös-
um hans. Getið þér helgað yður no-kkuð
af því?
— Já, ég á þennan vasaklút, hann er
merktur með B í einu hominu, sagði
kærandi.
— Það er engin sönnun, mælti dóm-
ari, eg er sjálfur með vasaklút, sem er
merktur B í einu horninu.
— Jæja, sagði kærandi, eg misstl
líka tvo vasaklúta.