Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1961, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
235
HUNANG ER GOTT
I
OG HEFIR LÆKNINGAMÁTT
VÉR MENNIRNIR höfum þann
sið að eta allt sem tönn á festir,
hvort sem það er heilsusamlegt
eða ekki. Öðru máli er að gegna
um býflugumar. Þær velja sér
aðeins úrvals fæði. Þær finna það
einhvern veginn á sér úr hvaða
blómum er hægt að fá slíkt úr-
valsfæði. Ef þeim líkar ekki eitt-
hvert blóm, yfirgefa þær það þeg-
ar og leita að öðru, sem er betra.
í hunanginu, sem býflugurnar
safna, eru öll hin nauðsynlegustu
fjörefni. Það er því ekkert undar-
legt að læknar ráðleggja sjúk-
lingum sínum oft að neyta hun-
angs, til þess að fylla í þau skörð,
sem eru í mataræði þeirra. Hitt er
ekki jafn kunnugt, að hunang hef-
ir mátt til þess að eyða sóttkveikj-
um. Læknir nokkur og sýklafræð-
ingur vildi ekki trúa þessu. Og til
þess að sýna fram á að hunangið
hefði alls ekki þennan eiginleika,
gerði hann sjálfur tilraun. Hann
setti margar tegundir sýkla í hun-
ang. Nokkrir þeirra voru dauðir
eftir fáar klukkustundir, og eft-
ir fáa daga var enginn sýkill lif-
andi. Þá varð læknirinn undrandi.
Annar læknir, dr. D. C. Jarvis,
hefir ritað grein um hunang og
telur þar upp marga ágæta kosti
þess sem fæðu. Að lokum segir
hann: En frá mínu sjónarmiði er
það langmerkilegast vegna lækn-
ingamáttar síns. Hunangið hefir
góð áhrif á meltiilguna, það lækn-
ar vondan hósta, og það linar þján
ingar liðagigtar. Ef þér þjáist af
svefnleysi, vaknið um miðjar næt-
ur og verðið andvaka, þá er ráðið
að taka inn eina teskeið af hun-
angi með kvöldverði. Ef þetta er
gert reglulega, þá mun ekki líða
langur tími þar til þér sofið ró-
lega á hverri nótt.
Ef þér fáið vondan hósta, þá er
hægt að lækna hann með hunangi.
Þetta hefir alþýða manna gert um
margar aldir, og þetta ráð er ó-
brigðult enn í dag:
Sjóðið eina límónu (eða
sítrónu) við hæga suðu í tíu
mínútur; það er gert til þess að
mýkja hana, og að safinn renni
betur úr henni. Skerið hana svo
sundur um miðju og kreistið
safann úr henni á venjulegan
hátt, og hellið honum í vatns-
glas. Bætið þar í tveimur mat-
skeiðum af hreinu glycerine og
hrærið þetta vel saman. Fyllið
því næst glasið af hunangi.
Þetta hóstameðal er tekið eftir
þörfum. Ef þér fáið hóstakast á
daginn, skuluð þér taka inn eina
teskeið af því, en hræra vel upp í
glasinu áður. Ef hósti amar yður á
nóttunni, skuluð þér taka inn eina
teskeið um leið og þér farið að
hátta, og ef þér vaknið við hósta
skuluð þér líka taka inn eina te-
skeið. Ef hóstinn er mjög vondur,
þá er rétt að taka meðalið inn
nokkrum sinnum á dag, eina te-
skeið í hvert sinn, t.d. eina um leið
og þér farið á fætur, aðra nokkru
seinna, þriðju á eftir miðdegis-
verði, fjórðu um miðaftan, fimmtu
á eftir kvöldmat og sjöttu um leið
og þér farið í rúmið. En þegar
hóstinn fer að skána, þá skuluð
þér fækka inntökunum. Að minni
reynslu er þetta bezta hóstameðal
sem til er. Menn fá ekki velgju
af því eins og af sumum öðrum
hóstameðulum. Bömum má gefa
það ekki síður en fullorðnum.
Þetta meðal læknar hósta þegar
öll önnur meðul eru gagnslaus.
Það kemur fyrir að menn hafa
óþægindi af kiprum (fjörfiski) í
augnalokum og við munnvikin.
Þetta getur lagast með því að
taka inn tvær teskeiðar af hreinu
hunangi eftir hverja máltíð. Venju
lega læknast þetta þá á viku-
tíma.
Oft ber það við að menn fá
sinadrátt, einkum í fætur. Það er
venjulega hægt að hafa hemil á
þessu með því að taka inn tvær
teskeiðar af hreinu hunangi með
hverri máltíð. Venjulega hverfa
sinadrættirnir eftir viku, en þó er
rétt að halda áfram með hunang-
ið til þess að þeir komi ekki aftur.
Um langan aldur hefir alþýða
notað hunang með góðum árangri
við alls konar bruna. Ef það er
borið á þegar í stað, dregur það úr
sviða og varnar því að upp hlaupi
blöðrur. Og svo grær brunablettur
inn furðu fljótt.
Við nasastíflu og bólgu í nefrót-
um hefir mér reynzt það óbrigðult
ráð, að láta sjúklinga tyggja vax-
köku, sem hunangið hefir verið
tekið úr. Skal tyggja dálítinn bita
af þessu í stundarfjórðung og
skirpa honum svo út úr sér. Þetta
er gert fimm eða sex sinnum á
dag. Fer þá ekki hjá því að sjúkl-
ingnum batnar, en gott er að
tyggja vaxið svo sem einu sinni á
dag næstu viku, svo að sjúkdóm-
urinn taki sig ekki upp aftur. En
ef vaxkökur eru ekki til, þá skyldi
sjúklingurinn taka inn eina mat-
skeið af hunangi eftir hverja mál-
tíð.
Annars er það góður siður að
taka inn tvær teskeiðar af hreinu
hunangi á dag, það getur komið í
veg fyrir margs konar kvilla,