Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.1960, Qupperneq 4
576
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
mílna hraða á klukkustund. Niðri
í djúpinu, nokkrum hundruðum
feta neðar, rennur Cromweil-
straumurinn til austurs. Hér er
um að ræða sannkallaða elfur
neðansjávar, og vatnsmegin henn-
ar er engu minna en Golfstraums-
ins þar sem hann fer fram hjá
Florida. Undir þessum straumi
fundu rannsóknamennirnir þriðja
strauminn, er rennur til vesturs,
en er miklu minni.
Það hefir k’omið mjög flatt upp
á haffræðinga að þessi mikla
neðansjávarelfur skyldi finnast.
Og segja má að hún komi eins og
skrattinn úr sauðarleggnum og
rugli þá í ríminu. Þeir höfðu áð-
ur reiknað út alla strauma í
Kyrrahafi og hvernig jöfnuður
heldist þar, og allt fell það í ljufa
löð, hver straumurinn jafnaði
annan upp. En nú uppgötvaðist
þarna allt í einu þessi megin-
straumur, kominn óraleiðir austan
úr hafi, og enginn vissi um að
hann var til. Þó er vatnsmagn
hans um 30 miljónir tonna á seK-
úndu, sem enginn maður hafði
gert ráð fyrir!
Hér ber þess þó að geta, að á
jarðfræðisárinu fannst skekkja í
útreikningum haffræðinganna um
strauma í Kyrrahafi sem vegur
upp á móti þessu.
Málið er þó ekki leyst með því.
Hvaðan koma þessir miklu straum
-ar og hvað verður um þá? Ekk-
ert af því, sem menn þóttust vita
áður, getur leyst úr þeirri spurn-
ingu. Haffræðingarnir eru nú
neyddir til þess að athuga málið
frá rótum, allar fyrri niðurstöður
eru hrundar í grunn.
(Úr bókinni „Frontiers of the Sea‘ )
H nefaleika
œtti að leggja niður
Það er ekki oft sem ísland fær viðurkenningu í enskum blöðum
og Islendingar sé taldir öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Þó er það
gert í þessan grein, sem
Ðoctor“. —*
ÞÚSUNDUM saman flykkjasl
menn til að horfa á hnefaleika.
Miljónir manna horfa á þá í sjón-
varpi. Og allir telja þetta góða
skemmtan. f
Ýmislegt hafa hnefaleikar til •
síns ágætis. Þar kemur frant
hreysti, snarræði, skjót úrræði og
hugrekki, og allt eru þetta mann
kostir. Þess vegna kom það eins
og köld hellidemba yfir alla, þeg-
ar læknablaðið „Lancet“ hóf her-
ferð gegn hnefaleikunum í júní í
fyrra, og öll blöðin sögðu frá þvi
með stórum fyrirsögnum, að nú
hefði læknar hafist handa um að
stöðva þessa manndrápa-íþrótt.
En þetta hófst þó fyr Þegar i
febrúar árið 1952 birtist grein um
það í „Family Doctor“, þar sem
svo segir:
„Seinustu fimm árin hafa 47
atvinnu-hnefaleikarar og að
minnsta kosti 22 aðrir hnefaleik
arar verði drepnir í hringnum. Og
margir fleiri hafa fengið það
áfall, að þeir bíða þess aldrei
bætur andlega. Rothögg valda
alltaf skemmdum á heilanum.
Þótt menn skeinist og beinbrotni,
þá getur það læknast. En heila-
skemmdir læknast ekki“.
Hvað er nú satt í þessu? Hafa
læknar rétt að mæla er þeir
dæma hnefaleikana hættulega og
villudýrslega? Var það rétt sem
„Lancet“ sagði: „Meðal lækna er
nú risin sú andúðaralda gegn
birtist í enska læknablaðinu „Family
hnefaleikum, að það er skylda
allra lækna að berjast fyrir af-
námi þeirra“.
Eða hafa þúsundir hnefaleika-
manna og miljónir æstra áhorí-
enda rétt fyrir sér, er þeir segja
að hnefaleikar sé ekki hættulegri
en margar aðrar íþróttir, og and-
úðin gegn þeim sé sprottin af of-
stæki og heimsku?
Satt er það, að sumar íþrótta-
greinar eru hættulegri heldur en
hnefaleikar. Árlega slasast mikíu
fleiri knattspyrnumenn heldur en
hnefaleikamenn. Annars er erfitt
að gera upp á milli íþrótta um
hve hættulegar þær sé, en hnefa-
leikar verða líklega 8. í röðinni.
En höfuðmunurinn er fólginn 1
öðru. Hann er fólginn í því. að í
hnefaleik reyna menn að slasa
hver annan vísvitandi. í öllum
öðrum íþróttum er það fordæmt
ef menn slasa keppinauta sína vís-
vitandi.
í hnefaleik er það keppikeflið
að slá mótstöðumann sinn í rot.
Öruggasta ráðið til þess, er að
greiða andstæðingnum eins mörg
og þung höfuðhögg og unnt ex.
En afleiðingin verður sú, að heii-
inn í þeim sem rotast, verður fyr-
ir skemmdum.
Menn eru ekki að hugsa um
það. Keppikeflið er að valda þess-
um skemmdum. Ef hnefaleikari
særist, fær til dæmis húðflettu á
augnabrún, þá keppist andstæó