Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1959, Page 16
424
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
4 53
V A 10 7
♦ 8 5 2
* A K 6 4 3
A
V
♦
*
G 9
8 6 5 4 2
D G 10 9
10 8
N
V A
S
A D 10 8 7
V K D G
♦ 76
A D G 8 7
A A K 6 4 2
V 9 3
♦ Á K 4 3
A 5 2
Þetta er bridgeþraut, samin af sviss-
neskum spilamanni, Jean Bease. Og
hann spyr: Geta S-N unnið „game“-
sögn á þessi spil? Hvað eiga þeir að
segja? Og hvernig á að spila til að
vinna?
Það er þegar auðséð, að ekki er hægt
að vinna 3 grönd, ef hjarta kemur út;
þá fá S-N ekki nema 8 slagi. Fjóra
spaða er heldur ekki hægt að vinna,
ef tromp kemur út. Vonlaust er einnig
að vinna 5 tigla eða 5 lauf. Eina sögnin,
sem þá er eftir, er 4 hjörtu. Hvernig er
hægt að vinna þá sögn?
Heppilegast er fyrir andstæðinga að
slá út trompi. Það drepur N með ás,
tekur svo slagi á SÁ og SK og trompar
spaða, fer inn á TÁ og trompar annan
lágspaða. Nú tekur hann slagi á LÁ og
LK, slær svo út láglaufi og trompar
með H9. Seinast kemur TÁ og þá er
spilið unnið.
En hvernig ætti S-N að slampast á
að segja 4 hjörtu? Bease hefir fundið
lausn á því líka. N byrjar og segir 1 gr.,
sem er mjög venjuleg sögn. S svarar
með því að segja 4 hjörtu, en það er
beiðni um að N segi 4 spaða, eftir gild-
andi reglum. N athugar það ekki og
segir pass.
RÉTTDÆMI
Það er sagt, að einu sinni hafi
Magnús Stephensen átt að dæma mál
milli konungs og einhvers annars, og
VINDMYLNUR voru algengar hér fyrrum. I Reyk.iavík voru t. d. tvær vind-
mylnur, önnur á Hólavelli, hin í Bankastræti, og þá var gaman þegar stormur-
inn sveiflaði mylnuvængjunum, segir Gröndal á einum stað. — Nú munu allar
vindmylnur horfnar nema þessi eina, sem er í eynni Vigur. (Ljósm.: vig.)
hafi hann dæmt mikil útlát á hendur
konungi, en hinn orðið frí. Átti þá
stjómin að segja, að það væri óhætt að
veita honum æðsta embættið í lands-
yfirréttinum þess vegna, að hann færi
ekki í manngreinarálit í dómum sínum.
(Þjóðsagnakver Magnúsar Bjarnason-
ar). —
SPÁ BJARNA LANDLÆKNIS
Það var á fyrri árum Árna biskups
Þórarinssonar, þá prests að Lambastöð-
um, að húsfreya hans átti tvíbura. Sat
Bjarni landlæknir Pálsson meðal ann-
arra skírnarveizlu þeirra, og gerðu
menn sér að gamni við Ama prest út
af frjóvsemi þeirra hjóna, en hann
kvaðst þá mundu hættur þeim störf-
um, sneri máli sínu til Bjarna, því hann
hugði hann sér meðmæltan; en Bjarni
kvað þau hjón eignast mundu 7 drengi
og 2 stúlkur, þó mundi annað hvort, að
þær yrði ekki langlífar, ella mundi
hann þá andaður, er þær fæddust, og
fór þetta eins og hann sagði. En það
sagði hann kunningjum sinum, að til
marks hefði verið, að einu sinni hefði
hann mætt Steinunni húsfreyu á
Lambastöðum í húmi dags frammi í
dyrum, hefði sér þá sýnzt 9 börn um
kring hana, en 2 af þeim sá hann að-
eins í þoku. (Merkir Islendingar V.)
KASTFIMI
Sigurður L. Jónasson segir mér, að
þeir skólabræður hans Geir Ámason
Vídalín og Jón Jónsson yngri frá Mos-
felli (d. í skóla 1853) hafi verið frá-
bærlega kastfimir. Þeir hafi getað kast-
að steini yfir skólann neðan frá læk og
eins frá skólanum og suður í hólmann
í Tjörninni. (ÓL Davíðsson)