Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1955, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
’ 293
BJÖRGUNARSVEIT GRINDAVÍKUR
Grindvíkingar í slysavarnadeildinni „Þorbjörn" urðu fyrstir til að bjarga úr sjávarháska með fluglinutækjum Slysa-
varnafélags íslands, 38 mönnum af franska togaranum „Cap Fagmet" 24. marz 1931. Síðan hefur hver björgunin rekið
aðra, 24 mönnum af „Skúla fógeta'1, 14 af „Trocadore", 15 af „Lois“, 23 af „Clam“, 20 af „Preston North End“ og nú
síðast 42 skipbrotsmönnum af togaranum „Jóni Baldvinssyni" frá Reykjavík. — Samtals hefur björgunarsveitin bjarg-
að 176 mönnum af þessum skipum, fyrir utan margvíslega aðra björgunarhjálp og aðstoð.
Fyrir þetta mikla og fórnfúsa björgunarstarf vottar stjórn Slysavarnafélags Islands Grindvíkingum viðurkenningu
sína og innilega þakklæti.
Þannig hljóðar heiðursskjai, sem forseti Slysavarnafélags íslands afhenti björgunarsveitinni hinn 8. þ. m. — Myndina
af björgunarsveitinni tók ljósm. Mbl. ÓI. K. Magnússon við það tækifæri. í efri röð lengst til vinstri er Sigurður Þor-
leifsson, formaður Slysavarnardeildarinnar „Þorbjörn" í Grindavik, en þriðji maður í efri röð, talið frá vinstri, er
Tómas Þorvaldsson, formaður björgunarsveitarinnar.
fram, að alltaf hafi verið um skyn-
villur að ræða.
Ég hefi athugað allt sem sagt
hefir verið með og móti því að
fljúgandi kringlur sé til, og ég hefi
komizt að þeirri niðurstöðu, að
„hinir óþekktu fljúgandi hlutir"
séu til, og að hér sé um að ræða
geimför komin langt að. En ég held
því ekki fram, eins og sumir rann-
sóknamenn hafa gert, að þessi
geimför séu komin frá annari jarð-
stjörnu í voru sólhverfi.
KOMIN FRÁ FJAKLÆGUM
SÓLIIVERFUM
Það er álit mitt, að þessum fljúg-
andi kringlum sé stjórnað af vits-
munaverum, sem eigi heima í öðru
sólhverfi, eða öðrum sólhverfum.
Þess vegna hefi ég leyft mér að
gefa þessum gestum nýtt nafn, og
kalla þá „Uranides“, sem er dregið
af gríska orðinu „ouranus“, sem
þýðir himinn.*)
Vér vitum svo vel hvernig hag-
ar til á hinum öðrum jarðstjörnum
í sólhverfi voru, að allir gæti verið
sammála um, að geimförin geta
ekki verið komin þaðan. Eina jarð-
stjarnan, auk jarðarinnar, þar sem
helzt gæti verið um líf að ræða,
og þá eingöngu jurtagróður, er
Marz. En hann er ekki byggilegur
neinum verum, er hugsazt gæti að
*) Á íslenzku mætti þá kalla þessi
geimför Himinskjöldu, og er það
skemmtilegra nafn heldur en „fljúg-
andi kringlur", eða „fljúgandi diskar“.-
væri oss fremri um mannvit og
menningu.
Og þar sem loku er fyrir skotið
að geimförin geti verið frá jarð-
stjörnum í voru sólhverfi, þá tel
ég að þau hljóti að vera frá jarð-
stjörnu eða jarðstjörnum sem snú-
ast um aðra sól eða sólir. Senni-
lega er þá hér um að ræða þær
sólir — eða stjörnur — sem næstar
eru vorri sól, en hún er líka stjarna,
eins og allir vita.
Þrátt fyrir hinar miklu vegar-
lengdir, sem eru milli sólhverfis
vors og hinna næstu sólhverfa, þá
eru ferðalög þar á milli vel fram-
kvæmanleg, er tekizt hefir að ná
valdi á ótakmörkuðum krafti.
Á hinn bóginn legg ég ekki trún-
að á, að á geimförunum sé menn,