Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1955, Síða 4
288
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
kom norður yfir ána. Hann kvaðst
og hafa verið í Laugardælum í Flóa
og ekki kennt sér neins meins þar,
og ekki fyr en hann fór yfir Hvítá
á leið að Skálholti.
Séra Loftur lagði fram vitnisburð
26 heimamanna í Skálholti, þar
sem þeir telja að hann sé alveg
saklaus af því að hafa valdið veik-
indum Jóns. Ennfremur lagði hann
fram sams konar vitnisburð frá
nokkrum sóknarbörnum Skálholts-
kirkju og fleiri vitnisburði. Prestar
þeir, er þarna voru samankomnir,
gáfu honum og hinn bezta vitnis-
burð að öllu leyti, og einnig gáfu
þeir Jóni góðan vitnisburð. Þóttist
enginn vita af neinni óvild eða
„ósáttarefni" þeirra í milli.
Nú bauðst Loftur til þess að
vinna eið að því, að hann hefði ekki
valdið veikindum Jóns með göldr-
um, og að hann hefði ekki afhent
Jóni neina gaidrastafi.
Prestarnir þóttust ekki geta
tekið neina ákvörðun í málinu, því
að tylftardóm mundi þurfa til þess
að dæma manni tylftareið, en þeir
voru þarna ekki nema tíu, auk
biskups og prófasts. Var málinu
svo skotið til allsherjar presta-
stefnu á Þingvöllum þá um sum-
arið, og var öllum prestum milli
Hítarár og Jökulsár á Sólheima-
sandi gert að skyldu að koma þang-
að.
i^ALDRAMÁLIÐ kom nú fyrir
prestastefnu á Alþingi hinn 30.
júní um sumarið. Var þing þá fjöl-
mennt, því að þar átti að taka hyll-
ingareiða til handa Kristjáni kon-
ungi V. Var sendur hingað konung-
legur umboðsmaður, Jens Rodsteen
flotaforingi, til þess að sjá um hyll-
inguna, en hann kom til Vestmann-
eya degi fyrir þing og sendi þaðan
orð, að allir þeir, sem hyllingareið
skyldi vinna, ætti að koma til
Bessastaða að loknu þingi, og þar
fór eiðatakan síðan fram.
Jóhann Klein umboðsmaður höf-
uðmanns var á þingi og útnefndu
þeir Brynjólfur biskup dóm í
galdramálinu. Sátu í þeim dómi 6
prófastar og 25 prestar, eða alls 32
menn með þeim biskupi og Klein.
Lagði séra Loftur þar fram vitnis-
burði sína og að auki nýan vitnis-
burð 7 manna í Haukadal um að
þeir hyggði hann algjörlega sak-
lausan af galdraáburðinum. Bauðst
hann svo til að vinna eið að því
að hann hefði ekki afhent Jóni
nein galdrablöð né á neinn hátt
verið valdur að sjúkdómi hans.
Dómur féll í málinu 1. júlí og
var Lofti dæmdur tylftareiður og
honum nefndir til eiðvættis prest-
arnir Árni Halldórsson í Hruna,
Björn Stefánsson á Snæfoksstöð-
um, Helgi Grímsson á Húsafelli,
Rafn Ólafsson á Stað í Grindavík,
Benedikt Pétursson á Hesti, Jón
Gíslason í Miðdal, Þorleifur Kláus-
son á Útskálum, Þórður Bárðarson
á Torfastöðum, Sigurður Eyólfsson
á Kálfatiörn, Jón Jónsson í Fells-
múla, Jón Halldórsson í Borgar-
þingum og Jón Snorrason á Mos-
felli. Skyldi Loftur vinna eiðinn
fvrir prófasti eða biskupi fyrir
Mikaelsmessu á Þingvöllum, en
yrði honum eiðfall, skyldi hann
missa embætti og dæmast til kon-
ungsnáðar. En vegna þess að Jó-
hann Klein var þá farinn af þingi,
skyldi þessum dómi skotið til hans
til staðfestingar.
Þarna var og samþykkt eftir
upnástungu biskups, og með sam-
þykki Lofts, að því er virðist, að
hann skyldi nú þegar laus við prest
-þjónustu í dómkirkjunni í Skál-
holti, og ekki taka við því embætti
aftur fyr en hann hefði hrundið af
sér illmælinu.
Hinn 30. maí hafði Loftur kvitt-
að fyrir 3 ára prestsþjónustulaun
sín í Skálholti, 5 hndr. á hverju ári.
En hann þjónaði embættinu til 17.
júlí og fekk þá 3 rdl. viðbótarkaup.
Næsta sunnud. hefir svo séra Teit-
ur Pétursson tekið við embættinu.
Hinn 13. ágúst þá um sumarið
gefur Brynjólfur biskup Lofti þann
vitnisburð skriflegan, að hann „viti
ekki annað en allt heiðarlegt og
ærlegt til Lofts í lærdómi og lifn-
aði, frá æskuárum hans til þessa
að undanteknum þessum galdra-
grun“. Sýnir það meðal annars að
biskupi var annt um að málið yrði
Lofti ekki til áfellis.
IJINN 27. september um haustið
4 stefndi biskup svo Lofti og
prestum þeim, sem áttu að sanna
eiðinn með honum, til Þingvalla.
Kofflu prestarnir þangað allir. Auk
þess komu þeir þangað Sigurðiir
lögmaður og Jón sonur hans. ,En
áður en til þess kæmi að Loftur
ynni eiðinn, lögðu prestarnir fratn
skjal, er þeir höfðu allir ritað und-
ir. Segja þeir þar að prestastefnu
dómi hefði átt að skjóta undir úr-
skurð Jóhanns Klein, en hann muni
ekki hafa séð dóminn svo að þeir
viti, og uggi þá að hann kunni að
sjá eitthvað í þessu, er þeir sjái nú
ekki. Segjast þeir ekki vilja fara
lengra án hans atkvæðis, né ganga
á dóm sinn, en ef viðstödd yfir-
völd sé ekki ánægð með þessa af-
sökun, óska þeir úrskurðar biskups
um hvort þetta sé ekki næg afsök-
un fyrir sig að vilja ekki standa að
eiðum að þessu sinni.
Þá óskaði biskup umsagnar ann-
arra presta er þarna voru, hvort
þessa afsökun ætti að taka gilda.
En þeir prestar voru: Torfi prófast-
ur Jónsson í Gaulverjabæ, Einar
prófastur Illugason, Álfur Jónsson,
Jón Erlendsson, Guðmundur
Bjarnason, Jón Oddsson, Teitur
Pétursson, Þórður Þorleifsson og
Hannes Björnsson. Kváðust þeir
allir vilja halda fast við presta-
stefnudóminn, og ekkert yrði gert
fyr en umsögn Jóhanns Klein væri
komin, en biskup ætti ekki sök á