Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1955, Side 1
Kirkjuprestur í Skálholti
flœmdur burt fyrir galdur
JÓSEF prestur Loftsson á Ólafs-
völlum, dótturson Odds bisk-
ups Einarssonar, var mikill mað-
ur vexti og fullhugi. Hann var
annálaður fyrir tvennt, framúr-
skarandi söngrödd og krafta.
„Hann gerði það eitt sinn til þrek-
raunar, að hann óð Hvítá á Þeng-
ilsevri um vetur í frosti, svo hann
hakaði vatnið, og studdist við iárn-
staf, en settist á bæarbröskuld er
hann kom heim í Skálholt, og
drakk mikla blöndu kalda. en eftir
bað sló að honum hrolli. Þá leysti
Brvniólfur biskun hann fvrir of-
dirfð“, segir EsDÓlín. Að þessu vík-
ur Þorsteinn Erlingsson í „Eiðn-
um“, þar sem hann telur presta
þá, er komnir voru til að hlusta á
eið Ragnheiðar biskupsdóttur:
Þá stendur Jósef sterki á Ólafsvöllum
í stuttri hempu, sem er alltof víð;
hann syngur hæst, og auk þess bezt af
öllum.
Hann óð í gaddi Hvítá forðum tið
og sjö marka ask hann svalg í boða-
föllum
af sýru á eftir; hún var aðeins þíð.
En svo var miltið hreint og hraustur
maginn,
að hann fékk aðeins kveisu rétt um
daginn.
Séra Jósef var þrígiftur. Synir
hans með fyrstu konunni voru þeir
Loftur, Björn og Skafti.
Loftur mun hafa komið í Skál-
holtsskóla 1655. Fell þar hverjum
manni vel við hann. Mun hann
hafa orðið stúdent 1661. Vildi hann
þá komast til háskólans í Kaup-
mannahöfn, og árið 1663 selur hann
Brynjólfi biskupi Sveinssyni, með
ráði foreldra sinna og Björns bróð-
ur síns, jörðina Gröf í Lundar-