Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1955, Blaðsíða 12
104 W
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
drekkhlaðin og þó hafði fólkið eng-
an farangur með sér. Það hljóp frá
öllu til þess að reyna að forðast
Rússana. Fjöldinn allur af fleytum
þessum kom aldrei fram. Margar
fórust í sjógangi, öðrum grönduðu
kafbátar og flugvélar Rússa....
FYRSTU mánuðina eftir að Rússar
hernámu landið að nýu, fóru þeir
fram með spekt. Þeir hétu frílið-
unum og skógarmönnunum fullu
frelsi ef þeir gæfi sig fram. Allur
fjöldinn þekktist þetta, því að vetur
fór í hönd, og það var ekkert til-
hlökkunarefni að liggja úti í skóg-
unum. Með þessu náðu Rússar tök-
um á þeim á hinn auðveldasta hátt.
En svo fóru þeir'að hverfa smátt
og smátt, og eftir nokkurn tíma hóf
NKVD skipulagðar ofsóknir að nýu
og þúsundum saman var fólkið sent
í lokuðum gripavögnum austur á
bóginn til þrælkunar og tortím-
ingar.
Gert er ráð fyrir því að 20—25
þúsundir manna hafi beðið bana í
loftárásum Rússa 1944, en um 100
þúsundum manna hafði tekizt að
flýa land. En samkvæmt opinberri
tilkynningu frá Moskva um fólks-
fjölda í Eistlandi árið 1946, kemur
í ljós, að þjóðinni hefur fækkað um
300.000 og af því sést að þá þegar
hafa Rússar herleitt 150—175 þús-
undir manna. En hve marga þeir
hafa flutt úr landi síðan, veit eng-
inn, aðeins er vitað að herleiðingin
helt áfram lengi eftir þetta. í stað-
inn hafa verið fluttir þangað Mon-
gólar og alls konar lýður. Einn af
helztu mönnum kommúnista í Rúss
-landi sagði einu sinni, að það hefði
verið mesta yfirsjón Péturs mikla
að hann skyldi ekki herleiða allar
baltnesku þjóðirnar. Nú hefur ekki
átt að vanrækja þetta.
-□-
UM tuttugu ára skeið naut Eist-
land frelsis, og urðu þá meiri fram-
farir þar í landi heldur en orðið
höfðu á öldum áður. Atvinnuvegir
voru í blóma, listir og vísindi döfn-
uðu. Nú er þarna allt í kaldakoli.
Bændurnir eru orðnir þrælar Rússa
og einnig verkamenn. Þeir eru
bundnir við vinnustaði sína og frí-
tíma sínum verða þeir að verja
„sjálfviljuglega“ til yfirvinnu og
póhtískra íunda. Þeir eiga sér eng-
in heimili, því að hver fær ekki
nema 6 fermetra kytru til að vera
í, eða eitt horn af herbergi. Skól-
arnir eru rússneskir og börnum
er kenndur vopnaburður, enda þótt
þau verði að ganga berfætt allan
ársins hring. Trúarlíf er reynt að
berja niður. 171 kirkju hefur verið
lokað, og leynilögreglan fylgist ná-
kvæmlega með öllum þeim, sem til
kirkju fara. Bókmenntir og listir
eru úr sögunni, þar er varla prent-
að annað en áróðursrit.
*
Ogurleg
vetiiissprengjii
í B Ó K, sem nýlega er komin út í
Bandaríkjunum og er eftir James
Shepley og Clay Blair, er sagt frá þvi,
að Bandaríkin eigi nú svo ógurlega
vetnissprengju að hún mundi nægja til
þess að strádrepa heila þjóð. Sprengi-
magn hennar er á við 45 milljónir smá-
lesta af þrúðtundrinu TNT, sem var
hið langsterkasta sprengiefni, sem
þekktist áður en kjarnorkan kom <il
sögunnar.
Þessi sprengja er talin 2400 sinnum
öflugri heldur en kjarnasprengjan, gem
lagði Hiroshima í rústir, og svo er
kraftur hennar mikill, að menn á-
ræddu ekki að gera tilraun með hana,
þegar kjarnorkutilraunirnar fóru fram
austur í Kyrrahafi í vor sem leið.