Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1955, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
33
Stórfiskaveiði hjá Sikiley
Ein veiðistöðin við
Messinasund. —
Takið eftir háu
siglunni á varð-
bátnum og mann-
inum efst í henni.
Á veiðibátunum
eru einnig háar
siglur, sem varð-
menn standa í.
F'RÁ því í apríl og fram í ágúst
stunda menn sverðfiskaveiðar í
Messinasundi, milli Ítalíu og Sikil-
eyar. Það eru sérstakir svartbik-
aðir bátar, sem þessar veiðar
stunda, og veiðisvæðinu er skipt
milli þeirra þannig, að 20 veiði-
stöðvar eru við mjósundið, Sikil-
eyar megin. í hverri veiðistöð eru
þrír bátar. Einn þeirra er nokkuð
stór og liggur fyrir festum. Hann
er kallaður „felcua“ og á honum er
geisihátt siglutré og í toppi þess er
alltaf maður á verði til þess að
skyggnast að ferðum sverðfisk-
anna. Hinir tveir bátarnir eru
miklu minni og eru þeir kallaðir
„ontri“. Þeir eru bundnir við stóra
skipið þangað til menn hafa komið
auga á tsverðfisk.
SVERÐFISKVEIÐAR
Messinasundið er þarna örmjótt,
ekki nema um 6 km. Sunnan að
því er Jóniska hafið, en að norðan
Tyrrhenian-hafið. Flóð og fjara er
ekki samtímis báðum megin við
sundið, og þess vegna er þar ógur-
legur straumur og hættulegar
hringiður. Hefur því jafnan farið
illt orð af sundi þessu og gengu
Skólavörðustíg. Því má aðeins bæta
við, að í fangaskrá hegningarhúss-
ins stendur, að honum hafi verið
sleppt úr varðhaldi kl. 12 á hádegi
hinn 15. desember 1875, eftir að
hafa verið inni 10 mánuði og 20
daga. Þess er ekki getið hvers
vegna refsingartími hans hefur ver-
ið styttur. En í hegningarhúsið kom
Guðlaugur aldrei framar.
Á. Ó.
miklar tröllasögur um það í forn-
öld. Ítalíu megin er klettur eða
bjarg, sem heitir Scylla og í helli
þar átti að eiga heima furðuskepna
nokkur, er grandaði skipum. En
Sikileyar megin var önnur óvætt-
ur, sem menn kölluðu Charybdis,
og var jafnvel hættulegri. En það
er hin mikla hringiða eða hvirfil-
straumur, sem þar er.
Mig langaði til þess að horfa á
sverðfiskveiðar og eg var svo hepp-
inn að komast á veiðibát á einni
stöðinni. Sex menn voru á bátn-
um: Formaður, sem jafnframt er
skutlari, fjórir ræðarar og einn
varðmaður í siglu, sem leiðbeinir
ræðurunum þegar eltingaleikur við
sverðfisk er hafinn.
Ég spurði mennina hvernig á því
stæði að sverðfiskarnir færi hér um
sundið.
— Þeir eru eins og hverjir aðrir
„túristar“, sagði einn.
— Hvaða vitleysa, sagði annar.
Þeir eru hér í alvarlegum erindum,
þetta er fengitíminn hjá þeim, Hef-
urðu ekki séð þá synda saman tvo
og tvo?
— Ef kvenfiskurinn er skutlaður,
sagði formaður, þá fer karlfiskur-
inn ekki burtu, og þess vegna fá