Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1947, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
367
langan, fram og aftur. en varð hvergi
hreindýra var. En bein og horn af
þeim rakst hann á. Taldi hann að
dýrin mundu flest hafa fallið vetur-
inn 1880—81.
Guðmundur G. Bárðarson prófessor
ritaði grein um hreindýr í Náttúru-
fræðinginn 1932. Hafði hann þá und-
anfarin sumur ferðast um Reykjanes-
fjallgarðinn. Á þeim ferðum hafði
hann með sjer góðan sjónauka, en
hann sá aldrei neitt til hreindýra og
hvorki fann hann af þeim horn nje
bein. Telur hann að ástæðurnar til
hvarfs þeirra geti verið margar, svo
sem of mikil veiði, að stofninn hafi
úrkynjast, eða þau flutt sig lengra
norðaustur upp á hálendið. Kemur
þar að hinu sanna, sem Magnús gisk-
aði á.
Nú vill svo vel til að sagnir eru um
það, að hreindýrin hafa rásað austur
á bóginn. Kristleifur Þorsteinsson á
Stóra-Kroppi hefur getið þess, að fyrir
eitthvað 120 árum hafi hópur hrein-
dýra komið í Bæjarsveit í Borgar-
firði. Voru þau elt en tóku sprett-
inn og alla leið upp á Kaldadal, það
er menn vissu seinast.
Fyrir eitthvað 50 árum kom hrein-
dýr saman við fje í Stóra-Botni.
Árið 1918 sáust 3 hreindýr á Mýr-
um og rásuðu þau til fjalla.
Sumurin 1927—29 var Guðmundur
Einarsson frá Miðdal upp á Kili og
sá hann þá tvisvar hreinöýr. Voru
5 í fyrri hópnum, en 6 í þeim seinni.
Enginn vafi er á því, að þessi hrein-
dýr öll hafa verið komin vestan af
Reykjanesi.
Ilvað varð um hrcindýrin?
Það er engin ástæða til að ætla að
hreindýrunum hafi verið útrýmt á
Reykjanesfjallgarði með veiðum, allra
síst, ef stofninn hefur verið orðinn svo
stór, að hann hafi skift mörgum
hundruðum (hvað þá ef hann hefir
skift þúsundum). Þeir voru aldrei
mjög margir, sem stunduðu hrein-
dýraveiðar. Og um mesta veiðimann-
inn er þess getið, að hann hafi lagt
70 dýr að velli um ævina, og skiftist
sú veiði niður á mörg ár. Hafi hrein-
dýrunum því stórfækkað vegna veiði
skapar, þá hefur stofninn altaf verið
mjög lítill, annars mundi varla hafa
sjeð högg á vatni.
Árið 1902 voru hreindýr alfriðuð
og eftir þann tíma fara engar sögur
af hreindýraveiði hjer syðra. Þó er
ekki fyrir að synja að eitt og eitt dýr
hafi verið drepið. En hreindýr eru á
þessum slóðum fram til 1930. Jón Guð
mundsson á Brúsastöðum bjó á Heiða-
bæ í Þingvallasveit 1908—1920, og
segir hann að þegar hart var á vorin
hafi hreindýr komið niður að vatni,
venjulega tvö, en einu sinni þrjú. —
Seinast sá hann hreindýr á Mosfells-
heiði 1920. Á þessum árum sáust og
fáein dýr öðru hvoru í Henglafjölium
og á Mosfellsheiði. Þórður Eyjólfsson
frá Vindheimum í Ölfusi sá 9 dýr hjá
Grindaskörðum vorið 1908 og á þeim
árum komu hreindýr niður undir Sel-
vog í vorharðindum.
Ólafur Þorvaldsson, sem einu sinni
var í Herdísarvík, sá 4 hreindýr í
október 1910 í Langahlíðarfjöllum.
Ef þau 23 hreindýr, sem slept'var
á land í Hafnarfirði upphaflega, hafa
tímgast jafn ört og sögusagnir herma,
þá hefði sá stofn, sem hjer var uppi
standandi þegar friðunarlögin komu
átt að vera orðin að stórri hjörð nú.
En hreindýrin eru horfin af Reykja-
nesskaga, og er tæplega til nein ónn-
ur skýring á því en sú, að þau hafi flú-
ið þaðan upp á hálendið.
Bláfjöllum. Og vorið 1895 sáust 5
hreindýr á Hellisheiði.
En 1930 eru þau algjörlega horfin.
Þá hafa þau yfirgefið stöðvar sínar
fyrir fullt og alt, eru hcrfin inn á há-
lendið og hafa sennilega borið beinin
þar.
Á.Ó.
^ ^ ^ ^
uimir
Veöur slógu víöikjarr.
Valur iló af heiöUm.
•Einum skógarþresti þvarr
þrek á snjóabreiöum.
Sá þar varöi söngvarúst
sest aö jaröar erfi
undir svaröar einni þúst
út í Garðahverfi.
Fangavanur fullhugi
fjörs aö manar leiti
lineig á svana svifflugi,
sœröur banaskeyti.
Þungur flótti þreytir mátt,
þiggur nóttin völdin
segir ótta af einum fátt.
Er þar hljótt á kvöldin.
Er þá nœr aö svinnur sveinn
söngva hrœri strenginn.
þar, sem blœrinn brosir cinn?
Braginn lœrir enginn.
Einkennilegt er að Þorvaldur Thor-
oddsen skyldi hvergi verða var við
hreindýr á Reykjanesskaga 1883. Það
bendir til þess að þau hafi haldið sig
annars staðar þá, en hvarflað svo aft-
ur vestur á bóginn til fyrri stöðva. —
Þannig fann Magnús Ólafsson tvo
hópa 1887. Það er haft eftir Ögmundi
Sigurðssyni skólastjóra, sem var
manna áreiðanlegastur í frásögnum,
að 1899 hafi 15—20 hreindýr sjest í
F'ast í barmi fyrstu rós
fljóösins armur tengir.
Himna bjarmi yst viö ós
ofurharma lengir.
★
Er á vori signir sjót
sólu borinn friöur,
þá er skorin rjett viö rót
rósin, sporuö niður.
HELGI BJÖRNSSON.