Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Side 120
120
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
Ögmundur Helgason var settur forstöðumaður handritadeildar frá
1. apríl, en honum haíði áður verið falin forsjá deildarinnar til
bráðabirgða.
I fyrri stöðu Ögmundar var síðan ráðinn að undangenginni
auglýsingu hennar Eiríkur Pormóðsson cand.mag., starfsmaður
deildar erlendra rita, og tók hann til starfa í handritadeild 15. maí.
Unnur Björk Lárusdóttir B.A. var í /2 starfi til aðstoðar í
handritadeild frá 26. febrúar fram á vor, meðan ekki var gengið að
fullu frá ráðningarmálum deildarinnar.
Nanna Bjarnadóttir deildarstjóri var frá 1. apríl sett til að vera,
þegar á það reyndi, staðgengill landsbókavarðar.
Laufey Porbjarnardóttir lét samkvæmt eigin ósk af !4 starfi sínu
frá 1. maí. Hálfu starfi Bryndísar Isaksdóttur var frá 15. maí breytt
í Vi starf.
Anna Jensdóttir bókasafnsfræðingur, er ráðin var að deild er-
lendra rita í stað Eiríks Þormóðssonar, gat ekki tekið til starfa þar fyrr
en 20. ágúst. Unnur Björk Lárusdóttir B.A. var ráðin til að gegna
umræddu starfi frá 20. júní til 19. ágúst.
Þá var Þorsteinn Kári Bjarnason B.A. ráðinn til sumarafleysinga
í fullu starfi frá 15. júní til ágústloka.
Skjöldur Eiríksson B.A., eftirlaunamaður, sem unnið hefur
undanfarin ár í /2 starfi í tímavinnu, var frá sumarmánuðina
vegna veikinda. Að samkomulagi varð um haustið, að hann sleppti
starfi sínu við safnið og yngra fólk tæki við því erilsama og oft
erfiða verki, er hann hafði unnið ótrauður um árabil við bóka-
flutninga og uppröðun í hillur. Réðust mál svo, að Þorsteinn Kári
Bjarnason og Unnur Björk Lárusdóttir, sem áður eru nefnd, voru
ráðin í tímavinnu til fjórðungsstarfs hvort frá október að telja.
Anna Jensdóttir, sem hóf starf í deild erlendra rita 20. ágúst, var
frá 1. nóvember ráðin deildarstjóri í deildinni.
Ágústa Edda Sigurjónsdóttir ljósmyndari var ráðin frá 1. nóv-
ember umsjónarmaður myndastofu Landsbókasafns, en Ivar
Brynjólfsson var þá samkvæmt eigin ósk leystur frá umræddu
starfi, er hann réðst umsjónarmaður myndastofu Þjóðminjasafns.
Helgi Magnússon sótti um að verða leystur frá /2 stöðu bóka-
varðar, og var honum veitt lausn frá 1. nóvember að telja.
Sú breyting varð á stöðu Helgu Kristínar Gunnarsdóttur M.A.
1. nóvember, að henni var breytt úr /2 starfi í 14 starf. Á sama tíma
var stöðu Ingibjargar Gísladóttur bókasafnsfræðings breytt um
sinn úr /2 í 54 starf.