Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 109
FRÁ STEPHANI GUTTORMSSYNI
109
Kvæði þín í „Öldinni“ líka mér vel, eins þessi þrjú kvæði þín í
jólablaði „Heimskringlu“. Kvæði þín flest, sem eru trúarlegs eðlis,
falla mér ekki í geð.
Ekki er ég orðinn kirkjutrúarmaður samt. Mér er svona um og ó
um marga af prestunum. En þarfir eru þeir. Kristur sagði lýðnum
að breyta eftir kenningum hinna skriftlærðu, en ekki eftir fram-
ferði þeirra. Þetta á við á öllum tímum.
Þetta bréf er ekki vinsamlegt. Hvaða álit svo sem þú hefur á mér,
þá er mér samt vel til þín. - Gleðilegt nýár!
Vinsamlegast,
Stefán Guttormsson.
Ég veit ekki, því miður, við hvað bréfritari á, þegar hann í upphafi bréfsins kveðst hafa
haldið, „að ailir væru búnir að gefa sig upp á bátinn, síðan ég kastaði teningunum". Ég hef
ekki fundið grein í vestur-íslenzku blöðunum eftir Stephan, er þarna væri vitnað til og
bakað hefði honum umtal og jafnvel óvild manna. Hvað sem því líður, fáum við í þessu bréfi
Stephans Guttormssonar að kynnast lífsviðhorfi hans, eins og það var í ársbyrjun 1904.
Hann hefur greinilega átt í þó nokkru sálarstríði og nú viljað gera Stephani G. grein fyrir
nokkuð breyttum viðhorfum sínum, þar sem skáldið halði í bréfum sínum gerzt trúnaðar-
vinur hans.
Allt bendir til, að bréfaskiptum þeirra nafnanna haíi lokið með þessu bréfi.