Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 122
122
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
FUNDIR OG Landsbókavörður sat dagana 15.—17.
RÁÐSTEFNUR október fund evrópskra landsbóka-
varða, er haldinn var í Flórens á Italíu.
Átta starfsmenn safnsins sóttu fund um íslenzka bókfræði, er
Háskólinn á Akureyri stóð fyrir þar nyrðra dagana 20. og 21.
september.
Hildur Eyþórsdóttir flutti erindi á ráðstefnunni um bókfræði-
verk Landsbókasafns og Porleifur Jónsson um Norræna samskrá
um tímarit (NOSP).
Vinnuhópur vann fyrir ráðstefnuna að könnun bókfræðiverka ís-
lenzkra bókasafna, og verður þeirri könnun nú haldið áfram.
BOÐ FRÁ LIBRARY Landsbókasafni barst seint á árinu 1989
OF CONGRESS bréf frá forstöðumanni Þjóðbókasafns
Bandaríkjanna, The Library of Con-
gress í Washington, þar sem landsbókaverði var gefinn kostur á að
mæla með einhverjum starfsmanni safnsins til þátttöku í níu
mánaða námskeiði, frá hausti 1990 til vors 1991, er fram færi í
Library of Congress og fólgið væri í því að kynna þátttakendum
meginþætti í starfsemi Þjóðbókasafnsins ameríska.
I stað þess að nefna til starfsmann Landsbókasafns var mælt, að
höíðu samráði við Einar Sigurðsson háskólabókavörð, með Guð-
rúnu Karlsdóttur, einum reyndasta bókaverði Háskólabókasafns,
og vitnað til fyrirhugaðrar sameiningar safnanna. Guðrún Karlsdóttir
var um vorið valin til þátttöku í umræddu námskeiði, og er þess vænzt,
að reynsla sú, er hún hefur öðlazt með virkri þátttöku í störfum Library
of Congress á fyrrnefndu námskeiði, komi að góðu haldi í viðbúnaði
þeim, sem uppi er hafður vegna sameiningar Landsbókasafns og
Háskólabókasafns, og síðar í starfi hcnnar í Þjóðarbókhlöðu.
STYRKUR ÚR Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs veitti Lands-
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐI bókasafni á árinu 115 þús. króna styrk,
er varið skyldi til vandaðs umbúnaðar
um handrit Halldórs Laxness.