Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 5
SKRÁ UM DOKTORSRITGERÐIR
ÍSLENDINGA
prentaðar og óprentaðar
1986-1990
Ólafur F. Hjartar og Þorsteinn Kári Bjarnason
tóku saman
INNGANGUR
í samantekt þessari er að finna upplýsingar um þá íslendinga,
sem lokið hafa doktorsprófum við háskóla heima og heiman á
árunum 1986-1990. Viðbætur aftast sýna, að alltaf ber einhverja
undan, og eru allar ábendingar um þá sem hér kynni enn að vanta
upplýsingar um þegnar með þökkum.
Sú er forsaga þessa máls, að í Árbók Landsbókasafns 1962-1963
(Reykjavík 1964) birtist Skrá um doktorsritgerðir íslendinga ...
1666-1963. Þessi skrá, sem er hin fyrsta sinnar tegundar, var
aukin fram til 1980 og gefin út í Árbók Landsbókasafns 1981
(Reykjavík 1982), auk þess sem hún var sérprentuð. Framhald
þeirrar skrár birtist síðan sem Skrá um doktorsritgerðir íslend-
inga ... 1981-1985, í Árbók Landsbókasafns 1986 (Reykjavík
1988), og var hún einnig sérprentuð.
Hin nýja skrá víkur ekki í neinum meginatriðum af braut
forvera sinna. Aðalskrá kemur fyrst og er þar raðað eftir höfund-
um í stafrófsröð, síðan efnisskrá, sem raðað er í 53 efnisflokka í
stafrófsröð eftir heitum þeirra.
í aðalskrá kemur næst á eftir höfundi og fæðingarári (dánarári,
ef með þarf) heiti ritgerðar. Á eftir titli er skýrt frá því hvort
ritgerð er prentuð, óprentuð (ópr.) eða ijölrituð (fjölr.). Áð lokum
er skráð dagsetning varnar og heiti háskólans og staður. Þess
verður að geta, um dagsetningu varnar, að í sumum tilvikum
reyndist ekki unnt að afla þeirra upplýsinga og varð þá að notast
við þá dagsetningu, þegar ritgerðin var talin tæk til varnar.
Víkja þarf nánar að útgáfuþættinum: Þegar um prentaða
ritgerð er að ræða, er greint frá útgáfustað, útgefanda og útgáfu-
ári, eftir því sem unnt er. Einnig er reynt að lýsa ritgerðinni nánar,