Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Síða 118
118
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
Hallfríður Baldursdóttir sér um íslenzk blöð og tímarit, en
skráning þeirra allt frá árinu 1974 er eitt brýnasta verkefni
deildarinnar.
Regína Eiríksdóttir (í 'A starfl) sá um bóknúmerakerfið, úthlut-
un númera og síðan eftirlit með þeim, jafnframt því sem hún sér
um tölvukeyrslu íslenzkrar bókaskrár.
Anna Georgsdóttir (í 3A starfi) færði aðfangaskrá og hafði
umsjón með geymslueintökum íslenzkra rita.
Guðmundur Þórhallsson hefur aðalumsjón með innheimtu og
eftirliti prentskila og hefur það allt í fastri hendi. Honum til
aðstoðar er Axel Kristinsson (í /2 starfí), er fylgist grannt með
bókaútgáfunni í blöðum og býr þannig í haginn fyrir aðdrættina.
Hann vinnur og að vantanalista.
Ragnar Agústsson, er sinnir ljósritun í /2 starfi, vinnur í /2 starfi
á móti að innköllun hljóðrita. Hefur Ragnar unnið þar mjög þarft
verk, en stefnt er að því að birta síðar í viðauka skrá yfir eldri
hljóðrit, sem skiluðu sér ekki til safnsins á sínum tíma.
íslenzki ritauki ársins var 6676 rit, og ber þess þá enn að geta, að
allur þorri íslenzkra rita er talinn í tveimur eintökum hvert rit.
Dr. Haraldur Sigurðsson, fyrrum bókavörður og seinast deild-
arstjóri í Landsbókasafni, vann í ígripum, kominn á níræðisaldur,
að skrá, er nefnist ísland í skrifum erlendra manna um þjóðlíf og
náttúru landsins, er hann hóf fyrir 40 árum, en sinnti síðar á
starfsárum sínum í safninu öðrum þræði á vegum þess. Gert er ráð
fyrir, að skráin komi út að ári (þ.e. 1991).
DEILD ERLENDRA Anna Jensdóttir bókasafnsfræðingur,
RITA er hóf starf í safninu 20. ágúst, var sett
deildarstjóri frá 1. nóvember að telja.
Auk umhirðu, flokkunar og skráningar erlendra rita, heyrir
umsjá og varzla aðallestrarsals undir deildina, ennfremur heimlán
erlendra rita.
Saztekverkefnið svonefnda, er skýrt var frá í síðustu Arbók,
hvíldi enn þungt á deildinni, og haíði Sigríður Helgadóttir (í /2
starfi) forystu fyrir því. Tókst að kalla að ljúka því á árinu.
Bryndís Isaksdóttir (í 3A starfi) vann einkum að flokkun er-
lendra rita, en að skráningu auk Sigríðar Guðrún Eggertsdóttir og
Ingibjörg Gísladóttir. Þær unnu og allar nokkuð við salgæzlu.
Ingibjörg tók við útlánum erlendra rita, er Eiríkur Þormóðsson