Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Síða 59

Eimreiðin - 01.01.1903, Síða 59
59 »Pér er víst óhætt að fara heim og læra betur! Faðir minn er á húsvitjunarferö, skaltu vita.« Pað kemur einhver akandi á eftir okkur upp brekkuna. Eg heyri hvernig marrar í snjónum undir sleðakjálkunum. En ef það væri nú hann, sem kemur. Telpan hlustaði og skimaði í þá áttina; svo fór hún að há- gráta. »Eað er hann faðir minn,« sagði hún kjökrandi, »hann gerir útaf við mig, hann gerir útaf við mig!« »Já, nú eru góð ráð dýr, og skjót ráð betri en silfur og gull,« sagði beiningamaðurinn. »Sjáðu,« sagði barnið, »þú getur hjálpað mér. Taktu við reipinu og dragðu sleðann, þá heldur faðir minn, að þú eigir hann.« »Hvað á ég svo að gera við hann?« sagði beiningamaðurinn og lagði reipið um herðar sér. »Farðu með hann hvert sem þú vilt nú. en komdu með hann upp að prestssetrinu, þegar orðið er dimt. Ég skal hafa gætur á þér. En þú verður að koma með polcann og sleðann, heyrirðu það!« »Ég skal reyna.« »Guð hjálpi þér, ef þú kemur ekki,« hrópaði telpan um leið og hún hljóp frá honum til að flýta sér heim á undan föður sínum. Förumaðurinn sneri sleðanum hryggur í hug og'dró hann niður að veitingahúsinu. Hann hafði dreymt sína drauma, veslinginn, meðan hann gekk þarna í snjónum með hálfbera fætur, Hann hafði verið að hugsa um stóru skógana norður við Löfven, stóru Finnskógana. Hérna í Brúarsókn, þar sem hann nú gekk fram með sund- inu, sem sameinar efra og neðra Löfven, í þessum héruðum, sem voru alkunn fyrir auð og fegurð, þar §em herragarður liggur við herragarð, járnnáma við járnnámu, hérna voru honum allir vegir of erfiðir, öll herbergi of lítil, öll rúm of hörð. Hér hlaut hann að þrá beisklega frið hinna stóru eilífu skóga. Hér heyrði hann þreskivölinn hamra í hverjum láfa, eins og þreskingin ætlaði aldrei að taka enda. Viðarhlöss og kolakerrur komu án afláts heim úr skógunum ótæmánlegu. Endalausar raðir af vögnum, hlöðnum málmum, ólcu eftir vegunum í djúpum hjól- förum, sem hundruð fyrirrennara höfðu grafið niður. Hér sá hann

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.