Eimreiðin - 01.01.1903, Blaðsíða 69
69
ísland.
Tileinkað íslenzkum skólabörnum.
Töframynd í Atlanzál,
ennisbjarta, tigna móðir;
dýrust mynd í sona sál,
sem í hjörtum tendrar bál
heitt sem þínar Heklu-glóðir!
Vér lútum þér með Iotning,
vér lútum þér, Norðurhafs drotning!
Vér elskum þig með fossum og fjöllum,
já fannbungum, hraunum og jöklunum öllum;
því þú ert vor móðir, vort minningaland.
Móðir og minningaland!
Héðins, Greitis fósturfold,
fóstran Kjartans, Gunnars móðir,
Arasonar móðurmold!
margrar hetju blóð og hold
geyma þínar göfgu slóðir.
Vér lútum þér með lotning,
vér lútum þér, fornkappa drotning!
Vér elskum þig með fossum og fjöllum
og fornaldar minnum og köppunum öllum;
því þú varst þeim móðir, vort minningaland.
Móðir og minningaland!
Auðgast sögu og sagnaland,
Sæmund þú á brjóstum fæddir;
Ara og Snorra ættarland,
Esþólíns og Siurht land,
þú, sem heim um fornöld fræddir!
Vér lútum þér með lotning,
vér lútum þér, sagnanna drotning!
Vér elskum þig með fossum og fjöllum
og fortíðar minnum og sögunum öllum;
því þú varst þeim móðir, vort minningaland.
Móðir og minningaland!