Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Síða 56

Eimreiðin - 01.01.1903, Síða 56
56 En nú hefði Kristján kapteinn haft hönd í bagga með, nú hefði hann búið svo um hnútana, að þessir prestar skyldu aldrei koma aftur, hvorki þeir né biskupinn. Héðan af gæti presturinn og vinir hans drukkið svo mikið sem þeir vildu þar á prests- setrinu. Heyrum nú hvílíkt þrekvirki hann hefði unnið, hann Kristján Berg, sterki kapteinninn. Pegar biskupinn og prestarnir voru komnir upp- í vagninn og búið var að loka vagndyrunum vel og rækilega, þá hefði hann farið upp í vagnstjórasætið og ekið með þá eina eða tvær mílur á þessari heiðbjörtu sumarnótt. Og þá hefði Kristján Berg látið þá háæruverðugu finna, hvað það væri að sitja með lífið í lúkunum. Á harða, harða stökki hefði hann látið klárana fara. Pað hefði verið þeim maklegt fyrir að vilja ekki lofa heiðarlegum manni að fá sér neðan í því. Haldið þið að hann hafi ekið eftir veginum með þá, haldið- þið hann hafi verið að hugsa um að þeir hristust ekki? Hann hleypti yfir skurði og móa, hann fór á fljúgandi ferð niður brekk- urnar, hann ók niðri í fjörunni, svo að vatnið hvítfyssaði um hjólin, hann hleypti ofan í flárnar og hentist niður urðirnar, svo brattar, að hestarnir urðu að spyrna við og renna sér fótskriðu. Og á meðan sátu biskup og prestar r.áfölir í vagninum og þuldu bænir sínar. Slíka ferð höfðu þeir aldrei farið. Og hugsið ykkur, hvernig þeir muni hafa litið út, þegar þeir komu að gistihúsinu í Hrísseli, lifandi — en hristir eins og högl í skinnpung. »Hvað á alt þetta að þýða, Kristján kapteinn?* segir biskup- inn, þegar hann opnar vagndyrnar fyrir þá. ^Pað á að þýða það, að biskupinn skuli hugsa sig um tvis- var, áður en hann komi aftur að vísítera hjá honum Gústaf Ber- ling,« segir Kristján kapteinn, og þá setningu hefur hann hugsað upp löngu áður, til þess að hafa svarið á reiðum höndum. «Skilaðu þá kveðju til Gústafs Berlings,« segir biskupinn, »og því með, að til hans komi hvorki ég né nokkur annar biskup framar.« Parna stendur nú K ristján sterki kapteinn við gluggann og segir prestinum frá afreksverki sínu. Bví Kristján kapteinn hefir flutt hestana í hægðum sínum til veitingahússins og kemur svo suður til prestsins með fréttirnar.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.