Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Page 13

Eimreiðin - 01.01.1903, Page 13
13 er enn rannsakað, og að þingið (1901) hafði gert alveg sérstakar ráðstafanir til að undirbúa það. Pað var sannarlega hyggilega gert af flokknum, að binda sig ekki við nein einskorðuð atriði í þessu þýðingarmikla vandamáli, fyr en árangurinn af þeim undir- búningi er kominn í ljós. Par sem nú þessi 4 aðalmál (*r. 1, 7, 9 og 10), sem aug- sýnilega eiga að sitja í fyrirrúmi fyrir öllum öðrum, eru jafnyfir- gripsmikil og þau eru, þá mun mörgum virðast, að flokknum hefði mátt nægja, að taka þau ein upp í stefnuskrá sína. Petta mundu líka flestir pólitiskir flokkar í öðrum löndum hafa gert. En þar er víðasthvar nokkru öðru máli að gegna, löggjöfin komin lengra áleiðis en hér. Hjá oss er það svo margt, sem kippa þarf í lið- inn, að ekki dugir að sinna eingöngu örfáum málum og vanrækja önnur, unz hinum er ráðið til lykta. Pess vegna hefir Framsóknar- flokknum fundist nauðsynlegt, að sýna afstöðu sína til margra annarra mála, sem hann jafnframt ætli að láta sér ant um. Flest þessara mála eru þó • þannig vaxín, að þau má styðja með sér- stökum fjárveitingum á fjárlögunum, og að því er til hinna tekur, sem ekki mundi unt að skipa nema með sérstakri löggjöf, þá er meiningin sjálfsagt sú, að þau verði frekar að »bíða betri tíma«, eða að því að eins sé unnið að þeim í bráð, að þau tefji ekki um of fyrir þeim fjórum aðalmálum, sem mest áherzla er lögð á. Pað má því með sanni segja, að þessi fjögur aðalmál (nr. 1, 7, 9 og 10) séu kjarninn í stefnuskrá Framsóknarflokksins, þau mál, sem flokkurinn framar öllum öðrum skýtur undir dómsúrskurð íslenzkra kjósenda. Peir eiga að skera úr því, hvort þeir kjósa heldur að styðja stefnu Framsóknarsóknarflokksins í þessum mál- um, eða fylkja sér undir merki þeirra manna, sem fundið hafa sig knúða til að skipa sér í annan andvígan flokk, og því hljóta að ætla sér að fylgja fram einhverri annarri stefnu í þessum mál- um. Um tvo andstæða flokka getur því aðeins verið að ræða, að þeir fylgi fram mismunandi skoðunum í aðalmálum landsins. Peir, sem ekki eru með stefnu Framsóknarflokkins, hljóta því að vera á móti henni.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.