Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Side 11

Eimreiðin - 01.01.1903, Side 11
Pó það sé nú eigi sagt me5 berum oröum, hver mál eigi ab telja til fyrra flokksins og hver til hins síbara, þá ber þó stefnuskráin ljóslega með sér, hver þau mál eru, sem flokkurinn leggur mesta áherzlu á, að fyrst sé ráðið fram úr. Röðin ein nægir til að sýna, að það eru atvinnumálin (nr. I—4), sem hann fremst af öllu ber fyrir brjósti, ogþá framar öllu öðru LANDBÚNAÐURINN (nr. 1). Framsóknarflokkurinn hefir með réttu séð, að það er einmitt þessi atvinnuvegur, sem framtíð landsins verður aðallega að byggjast á. Og þar sem það hins vegar er ljóst, að landbúnaðurinn sem stendur er mjög tæpt staddur og á mjög í vök að verjast gagn- vart hinum sívaxandi sjávarútvegi, þá hefir flokkurinn álitið, að vinda yrði bráðan bug að því, að vinna að efling hans. Pví megi með engu móti skjóta á frest. Og jafnframt er það svo skýrt tekið fram, á hvern hátt þetta skuli gert, að öllu ákveðnari yfir- lýsing er naumast hægt að hugsa sér. Pað á fyrst og fremst að gera með endurskoðun á landbúnaðarlöggjöfinni, og má nærri geta að full þörf muni orðin á henni, þar sem sumt af þeirri löggjöf stafar frá 1280 og er því um 600 ára gamalt. Það er, margt orðið úrelt, sem yngra er. En auk þess er mönnum orðið ljóst, að sú endurskoðun, sem fram fór á nokkrum köflum þessarar löggjafar fyrir tæpum 20 árum, hefir í sumum greinum hraparlega mistekist, og eru í stefnuskránni sérstaklega til nefndir þeir agnúar, sem augsýnilega standi almennum búnaðarframförum fyrir þrifum, og því verði að ráða bráðar bætur á. Allir hljóta að játa, að auknar jarða- og húsabætur séu ein hin helztu skilyrði fyrir þrifum landbúnaðarins. En eðlilegt er, að leiguliðar kveinki sér við að leggja fé sitt og krafta í þær að nokkrum mun, meöan þá vantar nægilega trygging fyrir því, að þeir sjálfir eða niðjar þeirra fái að njóta góðs af þeim. Einmitt þess vegna vill Fram- sóknarflokkurinn með lögum tryggja leiguliðum arð eða uppbót fyrir allar þær jarða- og húsabætur, sem þeir kunnaaðgera, og ‘má vænta, að það mundi að stórum mun örva menn til framkvæmda í þessu og leiða til mikilla framfara í búnaði, ekki sízt, þegar jafnframt er gert ráð fyrir að styðja þessar framkvæmdir með ríflegum lánum og fjárveitingum. En Framsóknarflokkurinn lætur svo sem ekki hér við sitja. Hann heitir einnig að létta gjöldum á landbúnaðinum og veita auk þess ríflega fé, ýmist að láni eða gjöf, til þess að stofna fyrirmyndarbú, mjólkurbú, slátrunarhús, útvega markað

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.