Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 78

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 78
78 Þeir skorast allt af allir undan öllu peníngatillagi, en vilja láta aðra kosta allt. Og þess vegna gat tombólan gengið, af því það var að fara i annara vasa, en ekki þeirra. Það voru líka ekki nema 2 eða 3 af öllum flokknum, sem vissu af því, að verzlunarsamtökin voru styrkt af þeirra sjóð. Vilji maður geta brúkað þess kyns fólk, þá verð- ur maður að brúka tóma slægð, sem þeir ekki geta séð við. Það þarf enn þá að kreppa meira að löndum okkar til þess þeir betrist. Skyldi þá ekki vera snjallast, þótt ljótt sýnist, að koma þeim í sem mest illindi við Dani, sem þeir geti ekki smokkað sér út úr, nema með dugnaði og samtökum. Hér vantar kergju, og af því kergjan var komin í verzlunarsökunum, þess vegna hafa Íslendíngar þó sýnt dálítinn dugn- að í því máli. Eg held að menn verði að fara að láta skríða til skarar og sigla með gapandi höfðum og gínandi trjónum á Dani. Eg býst við, að Vorsaa fari undan í flæmíngi, þótt við skrifum honum, og gaman væri að fá eitthvað. En satt að segja þá hefi eg varla skap til að knékrjúpa honum hvað eptir annað, þegar að hann hefir ekki drengskap til að halda orð eins og ærlegur maður. Hann lofaði biskupnum að senda okkur, og mér og yður hefir hann gefið góðar vonir. — Eg er hræddur um að það dragi einhvern dilk á eptir sér, að eiga við hann, en pláss hefðum við líklega fyrir það, þegar búið er að laga til herbergi safnsins. Hvað brúðuhöfuðin snertir, þá held eg, að þau þyrftu ekki að vera sér'ega dýr, því þau mega flest eða öll vera hárlaus, nema ef menn vildu sýna búníng frá elztu tímum; mest kemur uppá, að höfuðin séu fríð og vel gjörð, og væri bezt að hafa nokkuð háan topp upp af enninu, til þess að faldurinn tolli betur. Eg þarf að fá 2 höfuð gerð á þann hátt og svo 1 — 2 gerð á annan hátt. Eg vil biðja yður að útvega mér 1 höfuð hárlaust og sendi eg hér með 3 Rd. Sá sem skrifaði á móti mér um byggingarnar, hét H. Hoff, adjunkt við einhvern skóla. Eg get ekki sem stendur fundið bókina innanum skólaskýrsluruslið á bókasafninu. Fyrirgefið þessar línur. Yðar Sigurður Gudmundsson. 17. Reykjavík 30. Nóvember 1870. Háttvirti vin! Eg ætla í fáum orðum að drepa á, hvað gert hefir verið, síðan seinast. Forngripasafnið er nú búið að fá í stand 2 herbergi, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.